22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í B-deild Alþingistíðinda. (892)
102. mál, Íslandssögukennsla í skólum
Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir svarið og þakka henni einnig fyrir hitt að leggja á það áherslu að þekkingarkennsla eigi að sitja í fyrirrúmi þegar sagan er lesin. Viðhorfin verða jafnmörg og kennararnir og námsbókarhöfundarnir. En þekkingargrundvöllurinn er sá sami. Hann er aðeins einn í þeim efnum.
Ég vil geta þess að þær námsbækur, sem samdar hafa verið eins og „Kjör fólks fyrr á öldum“ eftir Hauk Sigurðsson, eru þannig úr garði gerðar að stuðst er við heimildir, sögulegar heimildir og svo er búin til saga utan um heimildirnar. Hins vegar virðist í mörgum tilfellum gæta ansi mikils misskilnings þegar þessi saga er búin til, þannig að ég hygg að stundum verði nemandinn ekki fróðari á eftir. Þar virðist vera ruglað saman kúgildum og því að menn hafi búið með kýr. Þar virðist einnig vera gert ráð fyrir að karlmenn sinntu mjöltum. Og ég held að það gæti ansi mikils misskilnings hvernig staðið hafi verið að fráfærum. En þetta er frumraun og ég vona að reynt verði að betrumbæta þessa sögubók á þann veg að hún rangtúlki ekki söguna.
En hitt held ég að sé staðreynd, því miður, að ástæðan fyrir að farið var að blanda saman námsefninu hafi m.a. verið sú að með þeim hætti var talið handhægast að minnka sögukennsluna í skólum án þess að eftir því væri tekið.