10.10.1983
Sameinað þing: 1. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (9)
Rannsókn kjörbréfa - varamenn taka þingsæti
Frsm. 3. kjördeildar (Matthías Á. Mathiesen viðskrh.):
Herra forseti. 3. kjördeild hefur haft til meðferðar kjörbréf þm. 2. kjördeildar, en kjörbréfin eru:
1. Kjörbréf Guðmundar J. Guðmundssonar, 7. þm. Reykv.
2. Kjörbréf Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur, 11. þm. Reykv.
3. Kjörbréf Gunnars G. Schram, 2. þm. Reykn.
4. Kjörbréf Geirs Gunnarssonar, 5. þm. Reykn.
5. Kjörbréf Friðjóns Þórðarsonar, 1. þm. Vesturl.
6. Kjörbréf Alexanders Stefánssonar, 2. þm. Vesturl.
7. Kjörbréf Davíðs Aðalsteinssonar, 5. þm. Vesturl.
8. Kjörbréf Þorv. Garðars Kristjánssonar, 4. þm. Vestf.
9. Kjörbréf Páls Péturssonar, 2. þm. Norðurl. v.
10. Kjörbréf Ragnars Arnalds, 3. þm. Norðurl, v.
11. Kjörbréf Stefáns Guðmundssonar, 5. þm. Norðurl. v.
12. Kjörbréf Lárusar Jónssonar, 2. þm. Norðurl. e.
13. Kjörbréf Steingríms J. Sigfússonar, 4. þm. Norðurl. e.
14. Kjörbréf Helga Seljan, 2. þm. Austurl.
15. Kjörbréf Tómasar Árnasonar, 4. þm. Austurl.
16. Kjörbréf Jóhönnu Sigurðardóttur, 2. landsk. þm.
17. Kjörbréf Eiðs Guðnasonar, 5. landsk. þm.
18. Kjörbréf Karls Steinars Guðnasonar, 6. landsk. þm.
19. Kjörbréf Kolbrúnar Jónsdóttur, 8. landsk. þm.
20. Kjörbréf Ólafs G. Einarssonar, 9. landsk. þm.
Kjördeildin hafði ekkert við þessi kjörbréf að athuga.
Leggur hún til að kosning þessara þingmanna verði tekin gild og kjörbréfin samþykkt.