22.11.1983
Sameinað þing: 24. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (901)

372. mál, bráðabirgðasamningur milli Íslands og SwissAluminium

Gunnar G. Schram:

Herra forseti. Í þessum umr., sem nú standa hér á öðrum degi, hefur verið hart deilt á það bráðabirgðasamkomulag, sem nýlega hefur verið gert milli ríkisstjórnar Íslands og Swiss Aluminium en hér liggur fyrir skýrsla iðnrh. til Alþingis um þann bráðabirgðasamning.

Við höfum heyrt álit og niðurstöður hæstv. fyrrv. iðnrh., 5. þm. Austurl., í þessu efni. Ég, eins og fleiri ræðumenn í þessari umr., er algjörlega ósammála því mati og þeim skoðunum sem komu fram í ræðu hæstv. fyrrv. iðnrh. og tel að staðreyndir málsins, ef hlutlægt er á það litið, leiði óhjákvæmilega og tvímælalaust aðra niðurstöðu í ljós í þessu efni.

Það er mín skoðun að bráðabirgðasamkomulagið sem hér er til umr. sé viðunandi áfangi í álmálinu. Þau atriði sem samið var um í þessu bráðabirgðasamkomulagi eru mörg hver mjög til bóta og gefa vonir um að loksins fari að rofa til í átmálinu á Alþingi og í málinu í heild eftir það myrkur sem yfir því hefur hvílt síðustu árin. Ég held að sú niðurstaða sé alveg óhjákvæmileg, ef menn líta hlutlægt og með sanngirni á þetta mál en ekki í einhverju galdraljósi fortíðar. Jafnvel með þessu fyrsta bráðabirgðasamkomulagi hafa margir hlutir áunnist.

Í fyrsta lagi hefur hér verið brotist út úr þeirri sjálfheldu og þeirri herkví sem þessu máli hefur verið haldið í, kannske óviljandi um mörg undanfarin ár. Málið var í algjörri sjálfheldu. Það er það ekki lengur eftir þetta samkomulag.

Í öðru lagi hefur náðst samkomulag við Alusuisse um að fram skuli fara endurskoðun á aðalsamningnum um álverið. Ekkert slíkt endurskoðunarákvæði var í frumsamningnum, aðalsamningnum. Það er þess vegna stórkosttegur ávinningur að nú hefur mótaðilinn fallist á og samþykkt að samningurinn skuli allur tekinn til endurskoðunar, meira en tíu árum áður en hin samningsbundna endurskoðun á að fara fram, þannig að hér er vitanlega um mikinn ávinning að ræða.

Í þriðja lagi hefur í þeirri endurskoðun verið fallist á af hálfu Alusuisse að um verði að ræða fullverðtryggt nýtt orkuverð, ekki það orkuverð sem við ella hefðum orðið að una til 1994, heldur nýtt orkuverð fullverðtryggt.

Í fjórða lagi hafa menn rætt um og lýst vilja sínum til þess að fjalla um í framhaldsviðræðum helmingsstækkun álversins. Ég held að það fari ekki milti mála að allir þeir sem þessum málum eru kunnugir telja að langraunhæfasti og skynsamlegasti stóriðjukosturinn á Íslandi í dag er stækkun átversins.

Í fimmta lagi er það nýr eignaraðili. Nú er átverið að öllu leyti, 100%, í eigu hins svissneska félags. Nú liggur fyrir að það mun fallast á það, ef eftir verður leitað, ef Íslendingar hafa áhuga á, að þeir eignist hlutabréf í álverinu, þannig að um hina virku aðild Framsfl. gæti kannske orðið þar að ræða.

Ég er ekki úr þessum ræðustól að mæla með því að Íslendingar kaupi hlut í álverinu. En það liggur hins vegar fyrir að Alusuisse hefur gefið í skyn að ef Íslendingar kjósa komi það fyllilega til greina. Um er talað að Alusuisse selji nýjum aðila helminginn af hlutabréfunum. Þá gætu Íslendingar komið þar inn með oddaaðild ef svo ber undir.

Í sjötta lagi eru það skattarnir. Skattamálin voru aðalágreiningsefnið síðustu árin. Deilan um þær reglur sem giltu um skattana og skattlagninguna leiddi til þess að málið er nú komið í alþjóðlegan gerðardóm, skotið þangað af gagnaðilanum. Um það hefur verið samið að komið skuli á nýju fyrirkomulagi í skattamálum sem útiloki að mestu, vonandi með öllu, deilur á því sviði. Nýjar skattareglur eru okkur í hag, svo að málið þurfi ekki að fara í hnút á nýjan leik út af deilu um skattálagninguna.

Síðast en ekki síst hefur verið samið um 54% verðhækkun á orkunni sem við seljum og Alusuisse greiðir fyrir. Það má vel vera að menn telji þetta ósköp lítinn kepp í sláturtíðinni. En það er ástæða til að benda á að 137 millj. á ári eru í sjálfu sér enginn smápeningur. Það er mikil viðbót í þessum efnum, sem ekki þýðir að slá striki yfir og segja að ekki skipti neinu máli.

Þetta eru í hnotskurn þau atriði sem sýna hvern hag við höfum haft af þessu bráðabirgðasamkomulagi. Sumt er þegar í hendi, eins og mestöll hækkunin á orkuverðinu. Um hin atriðin, sem ég nefndi, hefur verið ákveðið að semja frekar á þessum grundvelli.

Lítum fyrst á þá ákvörðun að setja deilurnar fyrir sérstakar dómnefndir. Deilan um skattamálin var komin fyrir alþjóðlegan gerðardóm vestur í Bandaríkjunum. Um það hefur nú samist, eins og fram kemur í skýrslu iðnrh. í upphafinu, í lið 1, að leggja málin fyrir sérstakar þrjár dómnefndir. Það kom fram í ræðu hæstv. fyrrv. iðnrh. fyrir nokkrum dögum að taka bæri skattakröfuna út úr gerðardómnum og það væri óskynsamleg málsmeðferð að fela dómnefnd beggja aðila að fjalla um slíkt. Í því sambandi má minna á fréttatilkynningu iðnrn. 22. des. s.l., gefin út af þáv. iðnrh. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Iðnrh. hefur sent Alusuisse tillögu að samningsgrundvelli milli aðila í framhaldi af sáttatillögu þeirri sem hann lagði fram á fundi með dr. Müller, formanni framkvæmdastjórnar Alusuisse, 7. des. Tillaga þessi var kynnt og rædd á fundi ríkisstj. í gær og send Alusuisse að því búnu. Í tillögunni er gert ráð fyrir að Ísland fallist í meginatriðum á óskir Alusuisse um að ágreiningsefni um skattamál liðinna ára verði sett í úrskurð þriggja manna gerðardóms og verði niðurstöður bindandi fyrir báða aðila og í samræmi við þær verði Coopers & Lybrand falið að endurákvarða skattagreiðslu ÍSALs.“

Hér höfum við nákvæmlega sömu málsmeðferð og nú hefur verið samið um, rúmlega hálfu ári síðar, lögð til af hæstv. fyrrv. iðnrh. í fréttatilkynningu 22. des. og í samkomutagsgrundvelli sem sendur var til Alusuisse í Zürich með telexskeyti daginn áður eða 21. des. Nú er það alveg ljóst, að það var skynsamleg ákvörðun að setja þær deilur, sem uppi hafa verið í þá gerðardómsmeðferð sem fyrrv. iðnrh. lagði til í orðsendingu sinni. Það var viturleg ákvörðun og viturleg niðurstaða. Hér hefur ekki verið annað gert en að framkvæma þá niðurstöðu sbr. kafla 1.1 í bráðabirgðasamkomulaginu, sem ber fyrirsögnina „Lausn deilumála varðandi skattgreiðslur“. Það ber að fagna því, að ekki er að sjá annað en samstaða ætti þá að geta náðst um það atriði miðað við forsögu málsins.

Sama er að segja um önnur atriði. Þar eru dómnefndir tvær að störfum, önnur sem fjallar um ýmis lögfræðileg atriði og þar að auki einnig nefnd íslenskra skattasérfræðinga sem á að reikna út álögurnar eftir niðurstöðum annarrar dómnefndarinnar, sem ég var að víkja að áðan.

Í öðru lagi má undirstrika hér mikilvægi endurskoðunarinnar. Það er ákvæði 2.1 í samningnum. Endurskoðunarákvæðið var, eins og ég sagði, ekki fyrir hendi. Það er kannske ein mikilvægasta niðurstaðan í þessu bráðabirgðasamkomulagi að samningsaðilinn fellst á endurskoðun í þessum málum. Með leyfi forseta les ég lið 2.1:

„Aðilarnir samþykkja hér með að taka upp nú þegar samningsviðræður um endurskoðun á ýmsum þáttum og skilmálum samningstengsla sinna, og verði þar fjallað um eftirfarandi meginatriði“ o.s.frv.

Eins og ég sagði var þessi endurskoðunarréttur ekki fyrir hendi. Hér hefur ákaflega mikið áunnist. Hér er unnt að taka upp mikilvæg atriði til endurskoðunar sem ekki var heimild fyrir áður.

Í því sambandi segir í lið 2.2, að það sé tilætlun aðilanna að verðið á samningsbundnu rafmagni verði verðtryggt, sem það ekki hefur verið. Það hefur verið bundið fast og óverðtryggt. Hér kemur í fyrsta skipti inn verðtrygging. Ég þarf ekki að skýra það frekar hvað í því hugtaki felst. Tekin er upp verðmiðun við tiltekinn grundvöll, þannig að verðið mun taka breytingum til hækkunar eða lækkunar með hliðsjón af viðmiðunargrundvellinum, og einnig að upphaflegt samningstímabil í endurskoðuðum rafmagnssamningi verði 15 ár.

Hér hefur vitanlega mjög mikið áunnist, þar sem ekki er aðeins um að ræða endurskoðunina og verðtryggt raforkuverð, heldur endurskoðun á ýmsum öðrum ákvæðum, þ. á m. sköttunum. Þeir voru ásteytingarsteinninn mikli sem olli því að málið fór allt í þann mikla rembihnút sem endaði að lokum fyrir alþjóðlegum gerðardómi, sem það hefur nú verið tekið úr.

Í bráðabirgðasamkomulaginu segir að ákvæði aðalsamningsins varðandi ákvörðun á framleiðslugjaldi ÍSALs skuli endurskoðuð í því skyni að gera þau skýrari og betur aðlögunarhæf að verðbólgukenndu efnahagsástandi í heiminum og til að stuðla að því að komast megi hjá deilum í framtíðinni er spillt geti góðri sambúð milli aðilanna.

Það er vitanlega eitt meginmálið og ég hygg að það dyljist engum, í hvaða flokki sem hann er, að það er nauðsyn á því að gera skattareglurnar miklu skýrari, ljósari og einfaldari, byggja þær ekki bæði á hagnaði og framleiðslu, eins og er, heldur finna þar miklu einfaldari aðferð, sem býður ekki heim þeim hvimleiðu deilum og vandkvæðum sem við þekkjum í meðferð málsins á liðnum misserum og árum.

Þá má nefna hér stækkun álversins. Ég hef vakið athygli á að um það er einnig fjallað í samkomulaginu. Einnig um eignaraðild Íslendinga sem ég held að margir muni telja mjög óæskilega, en alla vega má það vera einhvers virði að sú heimild mun verða fyrir hendi. Stækkun álversins er í sjálfu sér ekkert smámál. Ég veit ekki hvort menn hafa það að engu að geta skapað þar ný atvinnutækifæri fyrir 400–500 Íslendinga. Ég er alveg sammála Guðmundi Einarssyni í því að vitanlega ber ekki að gleyma almennum iðnaði í landinu, en ég held að ekki sé hægt að líta alveg fram hjá því að stóriðja er mikilvæg og þá ekki síst sú atvinna sem hún skapar. Það þekkjum við vitanlega frá því atvinnufyrirtæki í Straumsvík sem starfað hefur undanfarna áratugi þar.

Það má einnig minna á það, þó svo að næstsíðasti ræðumaður hafi gert það, að tekjurnar sem við höfum af álverinu eru vitanlega ekki raforkutekjurnar einar, þó að einblínt sé fyrst og fremst á það atriði. Það liggur fyrir, að af þeim rúma milljarði sem Ísland hefur í gjaldeyristekjur af álverinu á hverju ári eru tekjurnar af raforkunni 25%. Það liggur fyrir í reikningum. Aðrar tekjur eru vinnulaun, skattar, aðföng, þjónusta o. fl. Þannig þýðir ekki að einblína á orkuverðið. Þó svo að það sé vitanlega mikilvægur þáttur er það þó ekki nema fjórðungur af þeim tekjum sem íslenska þjóðin hefur af þessu stóriðjuveri.

Ég ætla að víkja undir lokin að raforkuverðinu. 54% hækkun hefur náðst fram á því. Ár eftir ár leið án þess að nokkur hækkun fengist fram á því, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þáverandi yfirvalda í iðnaðarmálum og stóriðjumálum. Ég er ekki að draga í efa að þar hafi góður vilji búið að baki og þar hafi menn reynt eftir bestu getu og af fremsta megni að ná fram hagstæðum samningum um hækkun á orkuverðinu. Staðreyndin er hins vegar sú, að slíkar hækkanir náðust aldrei fram. Málið fór í æ meiri og erfiðari hnút eftir því sem misserin liðu, en það er fyrst núna sem þetta hefur náðst fram. Þá kveður við sá söngur, að hér hafi menn samið af sér og raforkuverð til álvera annars staðar sé miklum mun hærra. Það er þess vegna fróðlegt að líta aðeins örstutta stund á svonefnda CRU-skýrslu frá því í janúar á þessu ári, hún er nú ekki eldri, og líta þar á staðreyndir um orkuverð til núverandi útflutningsálvera, en.það eru þau álver sem bera verður saman við vegna þess að það eru álver á sama grundvelli og álverið í Straumsvík.

Ef við lítum á Noreg, þar sem framleiðslugetan er 705 þús. tonn, fær rúmur helmingur álverksmiðjanna í Noregi orku á verði sem að meðaltali, eins og hér stendur, virðist vera um 8 mill plús 3.5 mill í skatt, en að öðru leyti er um eigin orku að ræða og er kostnaðurinn af henni talinn um 7 mill. Við höfum upplýsingar, sem ekki hafa verið vefengdar, um að sú orka sem Alusuisse kaupir í Noregi kosti 9.9 mill. Lítum á Grikkland sem hefur eitt álver. Það greiddi 1981 um 8 mill fyrir orkuna. Lítum á Ghana. Þar er um eitt átver að ræða, 200 þús. tonn á ári. Þar eru greidd 6 mill fyrir orkuna. Nú er þar að vísu lokað vegna vatnsskorts í Volta-ánni. Í Egyptalandi var verðið 1981 2.5 mill, en hefur hækkað árið 1983 í 5 mill. Í Kamerún greiddi eitt álver 10 mill 1981. Í Mið-Austurlöndum er orkuverðið að jafnaði 9.8 mill. Í Venezúela er það 7 mill og í Súrinam 5 mill. Kanada þekkja menn. Þar er álver, Alcan, sem greiðir 2.5 mill. Það er kannske ekki sambærilegt þar sem um eigin orku að vissu leyti er að ræða. Í Nýja-Sjálandi voru greidd fyrir orkuna 10 mill 1981, sem eru nýjustu tölur sem liggja fyrir. Hér má renna yfir langan lista, lesa upp nöfn margra landa og nefna mörg álver, en allt ber að sama brunni. Verðið er yfirleitt lægra en það sem náðist fram í bráðabirgðasamkomulaginu við Alusuisse á haustdögum.

Það má einnig benda á það, og reyndar hefur hv. alþm. Birgir Ísl. Gunnarsson undirstrikað það mjög vel með tilvitnun í skýrslu Orkustofnunar, að vitanlega er algerlega úr lausu lofti gripið að salan á raforku til álversins hafi valdið hækkun á orkuverði til almennings á Íslandi. Það er þar bókfært og skjalfest og verður ekki með rökum við því haggað. Það vill svo til að fyrir nokkrum dögum aflaði ég mér álits hjá Landsvirkjun einmitt um þetta atriði. Álitsgerð Landsvirkjunar um það var nákvæmlega samhljóða áliti Orkustofnunar. Niðurstaða þeirrar álitsgerðar er sú, að sala á orku til stóriðju hafi ekki valdið hækkuðu orkuverði til almennings á þessu tímabili, heldur lækkuðu ef nokkuð er. Þá má einnig benda á það, úr því að þetta bráðabirgðasamkomulag er á dagskrá, að ef ekki er gert ráð fyrir meiri hækkun til almenningsveitna á næsta ári en samsvarar verðbólgu, um það veit á þessari stundu vitanlega enginn, áætlast rekstrarhalli Landsvirkjunar 1984 án bráðabirgðasamkomulagsins 180 millj. kr. Til að ná hallalausum rekstri þyrfti Landsvirkjun þá að hækka orkuverðið til almenningsveitna um 10.6%, ef ekkert bráðabirgðasamkomulag hefði verið gert. Með bráðabirgðasamkomulaginu aukast tekjur Landsvirkjunar af sölu til ÍSALs og Áburðarverksmiðjunnar út árið 1984 um nærri 160 millj. kr. Þörf fyrir hækkun heildsöluverðs til almenningsveitna umfram verðbólgu yrði því óveruleg. Náist hins vegar samningar um enn frekari hækkanir á árinu 1984 gæti orðið um að ræða minni lántökur í erlendum gjaldeyri eða lækkun raungildis á orkuverði til almenningsveitna. M.ö.o.: bráðabirgðasamkomulagið við ÍSAL, 54% hækkun raforkuverðsins, gerir það líklegt að ekki þurfi að hækka orkuverð Landsvirkjunar á næsta ári til almenningsveitna, sem ella hefði verið óhjákvæmilegt um rúm 10% miðað við þann halla sem reiknað er með. Hér er þá um talsverðan ávinning að ræða, sem ég held að engum geti blandast hugur um og sumir mundu kannske vilja kalla mikilvægan.

Menn geta velt því fyrir sér hér í þessu sambandi hvernig á því stendur að á það er öll áhersla lögð hér í þingsölum og á síðum sumra blaða og málgagna stjórnarandstöðunnar að afflytja þetta bráðabirgðasamkomulag, sem er tvímælalaust verulegur ávinningur en aðeins skref í áttina til heildarendurskoðunar. Hver er ástæðan fyrir því að það er svo afflutt á þennan máta? Ég held að í sjálfu sér liggi svarið við því í augum uppi og sérstaklega þó ef menn hafa undir höndum stefnuskrá Alþb., sem út var gefin árið 1981. Með leyfi forseta stendur eftirfarandi á bls. 72:

„Alþb. er því andvígt að erlend auðfélög fái aðstöðu til atvinnurekstrar á Íslandi.“

Herra forseti. Fyrir nokkrum dögum bárust okkur hér í þessum sal og öðrum Íslendingum uggvænlegar fregnir af ástandi helstu nytjafiskastofnanna við landið, sem varð tilefni til langrar umr. hér. Sú mikla auðlind mun þess vegna ekki skila þeim arði í þjóðarbúið á næstu misserum sem við hafði verið búist. Sú staðreynd varpar enn skýrara ljósi en áður á það, hver nauðsyn það er okkur að skjóta sem flestum stoðum undir íslenskt atvinnulíf. Sú staðreynd sýnir jafnframt mikilvægi orkufreks iðnaðar hér á landi í framtíðarbúskap þjóðarinnar. Enn höfum við Íslendingar ekki beislað nema 1/10 hluta þeirrar orku sem felst í fallvötnum landsins og enn minni hluta jarðhitaorkunnar. Þar eigum við auðlind sem enn er að mestu leyti ónýtt og í henni felast miklir möguleikar, en aðeins ef rétt er á málum haldið. Mönnum hefur í þessum umr. hætt til að einblína á orkuverðið og þann hagnað sem við höfum af sölu þess til erlendra stóriðjufyrirtækja. Ég hef vakið athygli á því, að orkusalan er aðeins fjórðungur af þeim heildarhagnaði sem íslenskt þjóðarbú hefur af því stóriðjufyrirtæki, sem hér er til umr. Menn þurfa ekki lengur að fara í grafgötur um að það felast miklir möguleikar í stóriðjufyrirtækjum hér á landi. Menn þurfa hins vegar að ganga þar fram með gát. Stóriðjan er ekki nein allsherjarlausn á efnahagsvanda þjóðarinnar í bráð og lengd. Það er einnig rétt, að uppbygging stóriðju má ekki verða á kostnað annars iðnaðar, eins og hér hefur komið fram í umr., eða annarra atvinnugreina og þar verður að ganga fram með fullri gát, eins og sagan af járnblendiverksmiðjunni í Hvalfirði sýnir dæma gleggst. En ég held að það sé alveg ljóst, að ef á þessum málum er haldið af festu og skynsemi og ofstækislaust rætt við þá erlendu aðila sem hér vilja fjárfesta, og þeir bíða reyndar ekki í neinum biðröðum eins og á hefur verið bent stundum, höfum við Íslendingar alla burði til þess að nýta orkulindir landsins til hagsældar fyrir þjóðina um mörg ókomin ár. En það er eins og jafnan: — þar veldur hver á heldur.