23.11.1983
Neðri deild: 16. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1049 í B-deild Alþingistíðinda. (934)
7. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Þetta er að ýmsu leyti merkilegt frv. til l. Hér er um að ræða brbl. frá því á þriðja í páskum. Þau eru sett hinn 5. apríl 1983. Þau eru orðin nokkuð gömul þegar þau koma hingað til umfjöllunar.
Maður veltir því fyrir sér hvað yrði nú ef Alþingi samþykkti ekki þessi brbl. Ábyrgðirnar hafa verið veittar samkv. þessum lögum og peningunum hefur verið úthlutað. Ég ber fram þessa spurningu vegna þess að ég minnist þess ekki að leitað hafi verið neitt til flokkanna á Alþingi um þetta leyti, flokkanna sem þá höfðu fulltrúa á Alþingi eða þeirra stjórnmálaflokka sem líklegt var að mundu fá þm. kjörna í komandi kosningum. Ég minnist þess heldur ekki að fram hafi farið nein verulega almenn umræða um þetta mál í þjóðfélaginu þegar sú ákvörðun er tekin í stjórnarráðinu að veitt skuli sjálfskuldarábyrgð af hálfu ríkisstj. upp á 120 millj. kr. Mér sýnist það vekja okkur til umhugsunar um hversu gallað það kerfi er sem við búum við þegar verið er að setja brbl. með þessum hætti.
Ég man ekki eftir að það bæri neitt að ráði á þessu máli í kosningabaráttunni. Hins vegar hefur það komið fram í ýmsum tilsvörum ráðh. nú, eftir að Alþingi kom saman síðsumars, að þeir hafa jafnvel tekið svo til orða, hvort þeir hefðu átt að halda áfram að taka erlend lán til þess að reka atvinnulífið. Þetta frv. er einmitt um það að taka erlend lán til þess að reka atvinnulífið. Hér höfum við einmitt dæmi um það að verið er að taka erlend lán til þess að reka atvinnulífið. Þetta var eins konar kosningavíxill og Alþingi stendur náttúrlega í hörmulegum sporum nú að eiga að fara að taka afstöðu til þessara brbl., sem voru sett, að ég tel, án þess að nokkuð hafi verið leitað eftir því á sínum tíma að það væri meirihlutastuðningur eða væntanlegur meirihlutastuðningur við lög eins og þessi.
Ég vil vekja athygli á þessu, herra forseti, og ég tel að ég a.m.k. fyrir mína parta geti ekki staðið að samþykkt þessa frv. til laga til staðfestingar á brbl. Í rauninni er búið að koma þm. öllum í þá aðstöðu að þeir geta tæpast greitt atkv. um það.