23.11.1983
Neðri deild: 16. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (944)

82. mál, Ríkismat sjávarafurða

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það er að sjálfsögðu erfitt að koma upp. í ræðustól eftir að hinn ókrýndi sjútvrh. þeirra Alþb.-manna hefur flutt hér alllanga ræðu. Ég á þó ekki við hv. síðasta ræðumann, heldur að sjálfsögðu hv. 4. þm. þeirra Sunnlendinga, sem almennt gengur undir nafninu „hinn ókrýndi sjútvrh. Alþb.manna“, og mátti heyra það á ýmsu í hans ræðu áðan, án þess að ég ætli að fara neitt að tíunda það.

Ég ætla ekki heldur að fara mikið í efnislega umr. um þetta frv. Ég er þeirrar skoðunar að skoða beri alla þá hluti sem geta orðið til þess að bæta og það verulega, meðferð sjávarafla og þess útflutnings sem þjóðin fyrst og fremst byggir nú á.

Ég vil þó segja það um einn þátt þessa, að ég er þeirrar skoðunar að gjalda beri varhug við því að láta hagsmunaaðila, t.d. útflytjandann, hafa of mikil áhrif í þessu máli. Ég get fallist á það, og tel það raunar rétt, að matið eigi að vera sem mest óháð þeim aðilum sem þarna hafa verulegra hagsmuna að gæta og þá treysti ég á að hægt sé að finna á Íslandi einstaklinga sem eru þannig sinnaðir að þeir láti ekki annað en það sem þeir telja sjálfir rétt hafa áhrif á sig.

Ég ætlaði hins vegar að fara örfáum orðum almennt um þessi mál.

Það er hér sagt, og hv. 4. þm. Suðurl. sagði það, að þetta frv. geri ekki ráð fyrir miklum breytingum frá gildandi lögum. Vera má að það sé rétt, um það skal ég ekki fullyrða, og að sjálfsögðu verður að skoða þetta mál vel, en að mínu viti og að því leyti sem ég hef farið yfir þetta er of lítið hert að frá því sem verið hefur eða er. Nú er þarna auðvitað alltaf spurning um framkvæmd. Það skiptir ekki alltaf mestu máli hvað á blaðinu stendur, heldur skiptir máli hvernig framkvæmdin á því er sem á að gera.

Ég hygg að öllum hv. alþm. sé kunnugt að gífurlega mikil óánægja hefur verið meðal sjómanna a.m.k. með ríkjandi framkvæmd á ferskfiskmati. Menn hafa bent á það, og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að það sé rétt, að svo mikill mismunur á mati sé milli staða að menn telji borga sig að keyra jafnvel langar leiðir til að fá miklum mun betra og hagstæðara mat fyrir afurðirnar en þeir fá í sinni heimabyggð. Auðvitað er slíkt alveg ótækt. Það hlýtur að verða að gera ráð fyrir að sem samræmdastar reglur og samræmdust vinnubrögð séu við framkvæmd þessa þáttar. Ég tel að það verði skilyrðislaust að herða mjög kröfur til gæða að því er varðar þessa gullkistu þjóðarbúsins. Það er kunnara en frá þurfi að segja að það virðist vera æðimikill misbrestur þar á og er auðvitað engum til gagns, nema síður sé, að halda áfram á þeirri braut.

Ég er því þeirrar skoðunar, að það verði, og það frekar fyrr en seinna, að taka þessi mál til gagngerðrar skoðunar og breytingar verði gerðar til að herða eftirlit og mat, ekki bara á þeim þættinum sem snýr að sjómanninum, sem dregur fiskinn og kemur með hann að landi, heldur ekki síður í vinnslustöðvunum eftir að aflinn er kominn á land. Þar hygg ég að sé ekki síður að finna æðimikinn misbrest á því hvernig með þessar vörur er farið. Það kæmi mér ekki á óvart þó að í mörgum tilvikum væri svo til alltaf verið að vinna gamlan fisk.

Þetta þýðir auðvitað bæði hert eftirlit og svo líka bætta stjórnun veiðanna og meðferð þess afla sem að landi er komið með, þannig að það sé reynt að stilla strengi saman og það fáist sem allra mest verðmæti fyrir vöruna.

Ég er ekki sammála hv. síðasta ræðumanni, Hjörleifi Guttormssyni, um að það yrði til bóta að ákveða t.d. sérstakan úthaldstíma togara. Ég sé ekki að gæði aflans mundu aukast. Ég held að aldur fiskjarins eigi miklu frekar að ráða í þessum efnum en úthaldsdagar viðkomandi skips. Það fer ekki alltaf saman. Þarna talar maður sem er að mínu viti ekki nógu kunnugur því sem um er að ræða. Það fer ekki aldeilis saman úthaldsdagar togara eða aflinn sem hann kemur að landi með. Það er víðs fjarri. Og það er einmitt að þessu leytinu sem oft er afskaplega erfitt að átta sig á skoðunum og afstöðu sumra einstaklinga þegar verið er að fjalla um mál. Ég er ekki að segja það mönnum til hnjóðs, en þeir þyrftu bara að starfa í þessari atvinnugrein einhvern tíma til að kunna á henni skil. Það á við hv. þm. Hjörleif Guttormsson. Hann þyrfti að vera á togara nokkrar vikur eða nokkra mánuði til þess að komast að raun um að það er víðs fjarri að þessir tveir þættir fari saman. Svo er auðvitað hægt að tína fleira til, en ég skal ekki gera það hér. (Gripið fram í.) (ÓRG: Já, rétt hjá þér. Láta þá hafa það.) Já, ég heyri að hv. þm. Ólafur Ragnar er ánægður þegar hann fær hjálp utan þingsalar við túlkun mála á Alþingi. (Gripið fram í.) Að sjálfsögðu má hann það. Ég sagði ekkert um það. Ég sagði að hv. þm. væri greinilega ánægður með það. Það er svo hans mat, hvort hann túlkar það svo að maðurinn megi ekki tala. Hann má tala mín vegna eins mikið og eins lengi og hann vill. Það er forseta að sjá um að hér sé haldið upp þingreglum, ekki mitt.

Ég skal ekki, herra forseti, fara öllu fleiri orðum um þetta. Þetta mál hlýtur að verða skoðað gaumgæfilega í nefnd. Ég treysti því að um það verði fjallað í ljósi þess ófremdarástands sem ég tel að hafi verið að því er varðar fiskmatið í landinu og að menn reyni að skoða þau mál ofan í kjölinn og finna leiðréttingar á því sem miður hefur farið. Að mínu viti er það mjög margt og þar er um að kenna æðimörgum aðilum sem að því hafa staðið. Það er á engan hátt réttlátt að kenna sjómannastéttinni einvörðungu um það, nema síður sé. Það á ekki minni þátt í þeim áföllum, sem í þessu hafa orðið, hvernig farið er með hráefnið eftir að í land er komið. Það er ekki síður þáttur í þessu máli.

En vonandi tekst mönnum að koma á bæði þeim lögum og reglugerðum sem til þurfa og ekki síst því hugarfari sem þarf til að breyta viðhorfum til þessa máls, sem ég tel að sé kannske stærsti þátturinn í því að við getum unnið bug á þeim áföllum sem orðið hafa og við megum vænta ef ekki verður hugarfarsbreyting í þessum efnum.