23.11.1983
Efri deild: 20. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1102 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
11. mál, launamál
Magnús H. Magnússon:
Virðulegi forseti. Við Alþfl.-menn sögðum fyrir síðustu kosningar og segjum enn að gamla vísitölukerfið sé úrelt. Það hefur tryggt viðgang verðbólgunnar mun betur en laun láglaunafólks og komið hátekjufólki að meira gagni en láglaunafólki. Auk þess var vísitalan stórlega fölsuð og í mjög vaxandi mæli hin síðustu ár. Þess vegna erum við ekki mótfallnir því í sjálfu sér að gamla vísitölukerfið verði af lagt en það á ekki síður að taka það úr sambandi þegar það mælir útgjöld fólks en þegar það mælir tekjurnar. Á þetta við um bensínskatt, þungaskatt, flugvallagjald og öll gjöld sem miðast við fasteignamat og fleiri gjöld.
Við viðurkennum einnig að einhver kjaraskerðing, allveruleg kjaraskerðing, var óhjákvæmileg miðað við aðstæður í þjóðfélaginu. Og þó að við höfum talið og teljum að gamla kerfið sé úrelt þá höfum við líka sagt að það bæri að taka upp annan hátt á verðbótum, taka upp kaupmáttartryggingu lægri launa sem m.a. tæki mið af þjóðartekjum eins og kom fram hjá hv. 5. landsk. til lækkunar og ekki síður hækkunar þegar það á við. En við viðurkennum ekki að kjaraskerðingin eigi að koma jafnt niður á öllum og ég tala nú ekki um ef hún kemur meira niður á lágtekjufólki, en þeim sem betri hafa kjörin eins og ég sýndi fram á við umr. um 26. mál þingsins hér áðan. Og þó að við styðjum það út af fyrir sig að gamla vísitölukerfið verði tekið úr sambandi bæði að því er varðar mælingu á launum og gjöldum fólks þá erum við alfarið á móti því að aðilum vinnumarkaðarins sé bannað að semja um annan og skynsamlegri hátt á verðbótum.
Ég tel t.d. nauðsynlegt að næstu verðbætur verði eftir krónutölureglu, þ.e. að fundið verði út hvað kjaraskerðing launa í lægri flokkum hafi á hverju tímabili verið mikil og hún verði bætt með sömu krónutölu til allra, þeirra tekjulægstu jafnt sem þeirra tekjuhæstu. Sagt er að slík regla geti ekki gengið til lengdar. Það má vera rétt. En hún ætti í öllu fali að geta gilt einu sinni eða tvisvar. Miðað við aðstæður í þjóðfélaginu í dag þá verður að nota allra fyrsta tækifæri til að bæta kjör þeirra tekjulægstu og elli- og örorkulífeyrisþega, aðrir verða að bíða þar til þjóðfélagið réttir svolítið úr kútnum.
Um slíka reglu, krónutöluregluna, og reyndar allar skynsamlegar reglur um verðbætur er bannað að semja samkvæmt 2. mgr. 1. gr. frv. Það tel ég fráleitt. Hæstv. forsrh. kom inn á það hér áðan í sinni ræðu að verðbætur, ef upp verða teknar að nýju, þurfi að vera með allt öðrum hætti en áður. Þessu erum við sammála, algjörlega sammála, en samkvæmt þessu frv. þá er það bannað. Það er bannað að taka upp hvers konar skynsamlegar leiðir í þessum efnum samkv. frv. og það teljum við fráleitt. Ég sýndi fram á það við umr. um 26. málið um fjármálaráðstafanir til verndar lífskjörum að fólki með lægstu tekjurnar og elli- og örorkulífeyrisþegum er ekki hlíft. Álögur á það eru hlutfallslega meiri en á aðra. Það nær auðvitað engri átt. Það hljóta allir skynsamir menn að sjá.
Virðulegi forseti. Við Alþfl.-menn munum freista þess að flytja brtt. við frv. til að sneiða af því allra verstu vankantana.