23.11.1983
Efri deild: 20. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1103 í B-deild Alþingistíðinda. (960)

11. mál, launamál

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að hafa örfá orð um þetta frv. nú við þessa umr. Afstaða Kvennalistans til þeirra aðgerða, sem þetta frv. boðar, hefur ítrekað komið fram hér á Alþingi og við munum ræða þetta frv. nánar hér í hv. d. þegar það kemur til 2. umr. Ég vil aðeins ítreka að Samtök um kvennalista eru eindregið á móti þeim aðgerðum sem þetta frv. felur í sér og telja að þótt það í núverandi mynd feli í sér að samningsréttinum sé skilað aftur þá er hér aðeins um málamyndaaðgerðir að ræða miðað við óbreytt ástand að öðru leyti.