24.11.1983
Sameinað þing: 25. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1106 í B-deild Alþingistíðinda. (968)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hér liggur fyrir svohljóðandi bréf:

„23. nóvember 1983.

Steingrímur Hermannsson forsrh. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Magnús Reynir Guðmundsson bæjarritari, Ísafirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“ Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt ásamt ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs þings.“

Þessu bréfi fylgir kjörbréf Magnúsar Reynis Guðmundssonar og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréf þetta til rannsóknar. Á meðan verður fundinum frestað í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]