24.11.1983
Sameinað þing: 25. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1107 í B-deild Alþingistíðinda. (969)
Rannsókn kjörbréfs
Frsm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Magnúsar Guðmundssonar bæjarritara, sem er 1. varaþm. B-lista Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, en hann kemur í stað Steingríms Hermannssonar, hæstv. forsrh.. sem er á förum til útlanda og mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni.
Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréfið og gerir engar aths. við það og leggur til að það verði samþykkt.