19.10.1983
Efri deild: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

24. mál, tollskrá o.fl.

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Hv. 5. landsk. þm. spyr: Var brýn nauðsyn að lækka toll á makkarónum, fíkjum og döðlum? Ég vil benda á að í þessum vöruflokki, sem lækkaður var tollur á, eru fleiri ávextir og matvæli en bara það sem tínt hefur verið til í frekar ómerkilegum dagblöðum og er nú tínt til sem rök virðulegs 5. landsk. þm. Ég ætla að leyfa mér að lesa upp, með leyfi forseta, það sem lækkað var: Það voru þurrkaðar döðlur úr 70% í 40%, nýjar og þurrkaðar fíkjur úr 70% í 40%, makkarónur, spaghetti o.fl. úr 60% í 40%, ýmsar kornvörur, t.d. Corn flakes, 50% í 40%, spergill úr 60% í 40%, ávextir almennt úr 80% í 40%, kaffiduft úr 70% í 40%, hálftilreidd kornvara úr 50% í 40%, maís, niðursoðinn, niðurlagður eða frystur, 60% í 40%. Ég held að þetta séu yfirleitt allt vörur sem heimilin nota nokkuð jöfnum höndum, og svara ég þannig þeirri spurningu.

Í öðru lagi var því fagnað að tollur skyldi lækkaður á búsáhöldum o.fl. Ég skil það. Alþfl. hefur haft hagsmuni fólksins í landinu í huga undanfarið. Ég veit ekki hve lengi það varir, en það er fullkomlega tímabært. En það þarf að halda áfram að lækka tolla. Það er heildarendurskoðun á tollskránni í gangi og fleiri vörutegundir nú í skoðun, þó að það hafi verið talið af mörgum þm. — til viðbótar við þrýsting annars staðar frá — að tollar á vörum skyldu lækkaðir sem fyrst og áður en heildarendurskoðun tollskrárinnar lýkur.

Hljómplötur og snældur lækkuðu í tolli nýlega og það stendur til að halda áfram að lækka fleira á þeirri línu, hljóðbönd eða myndbönd. Það sem knúði nú á var að fram undan er jólamarkaður og að fullyrt er að mikið sé flutt inn í landið á óeðlilegan hátt — með smygli eins og það er orðað.

En hitt er annað mál, að ég reikna ekki með að ferðamenn sem slíkir, sem halda sig innan þess ramma sem þeim er sniðinn, séu taldir smyglarar, þannig að ég tel óheiðarlegt að blanda þeim í tal um smygl. Það segir sig sjálft að ferðamenn, sem kaupa fyrir þann gjaldeyri sem þeir fá og koma með það magn sem þeir mega koma með til baka, eru ekki smyglarar. Ef þeir koma aftur á móti með meira en þeir mega og kaupa fyrir hærri upphæðir en þeir hafa heimild til að nota erlendis, þá er hægt að gefa þeim ýmis nöfn.

Og hverjir standa að smygli? Það hef ég ekki minnstu hugmynd um. Hvernig í ósköpunum á ég eða einhver annar þm. að vita það? Ef tollgæslan sjálf vissi það, þá þyrfti hún ekki að hafa mikið fyrir að ná þeim og stöðva smygl.

En þetta eru sem sagt svörin við þeim spurningum sem til mín var beint, og ég get fullvissað hv. þm. um að það er unnið mjög kappsamlega í tolladeild fjmrn. að því að endurskoða tollskrána og það verða fleiri vörutegundir lækkaðar í tolli og tollskráin í heild verður vonandi kynnt innan tíðar fyrir þingflokkunum.