24.11.1983
Sameinað þing: 25. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (990)

103. mál, lagahreinsun og samræming gildandi laga

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að lýsa stuðningi mínum við þessa till. Skýringin á því að beiðni hefur ekki komið til mín um að vera meðflm., sem ég hefði hiklaust verið, er eflaust sú að ég var ekki heima í síðustu viku vegna starfa minna í Norðurlandaráði.

Þetta er tiltölulega ný till. Um efni hennar vil ég segja þetta. Ég held að það sé ákaflega nauðsynlegt að fara í gegnum lagasafnið og grisja burtu lög sem enga þýðingu hafa lengur. Og ekki síður að fara faglega í gegnum það sama lagasafn og kanna hvort lög og lagagreinar kunna að skarast. Það jaðrar auðvitað við hneyksli að við skulum einungis hafa undir höndum lagasafn sem er gefið út 1973. Allir þm. kannast við hversu þægilegt verk það er að blaða í gegnum óteljandi eintök af Stjórnartíðindum í hvert skipti sem við þurfum að kanna hvort breytingar hafi orðið á gildandi lögum frá útgáfu lagasafns.

Ég vænti þess að í framtíðinni verði úr þessu bætt. Í sumum þjóðþingum er sú regla viðhöfð að lög eru gefin út í lok hvers árs, t.d. í Þýskalandi. Það er auðvitað dagljóst að á því verður að ráða bót, að lagasafn sé ekkí gefið út um jafnlangt skeið og hér hefur verið gert. En vegna þessarar umr. finnst mér líka full ástæða til að minnast á þá vinnuaðstöðu sem alþm. hafa hér á hinu háa Alþingi. Aðstoð við þm., við t.d. könnun á því hvort mál sé í raun og veru þingtækt, hvort það skarar önnur lög og annað þess háttar tæknilegs eðlis við lagagerð, sú aðstoð er hér nær engin. Það er ekki hægt að ætlast til að einn maður ráði við það að sinna þingmönnum að þessu leyti. En það ér siður í þessu landi að líta á störf þm. sem grínið eitt.

Við tölum í öðru orðinu um lýðræði þar sem hver fullorðinn Íslendingur, sem uppfyllir sett skilyrði, getur sest við löggjafarstörf á Alþingi Íslendinga, án tillits til menntunar, þjálfunar og annars slíks. Þetta er auðvitað nafnið tómt á meðan hinn kjörni fulltrúi á ekki nokkra möguleika á einföldustu tæknilegri aðstoð. Það er engin ástæða til að hver sá sem er kjörinn til löggjafarstarfa á Alþingi kunni í raun og veru nokkuð fyrir sér í lagagerð. Það þarf ekki að þýða að hann sé ekki fullfær um að hafa skoðanir á því hvernig reka skuli þjóðfélagið og hafi góðar hugmyndir um það. Tæknileg vinnubrögð eiga ekki að þurfa að vera honum neitt vandamál. Hitt er annað mál að þau eru það. Það er ekki vafi á því að að hefur stórháð mörgum manninum, sem hefur komið hér inn á hið háa Alþingi með góðum vilja og góðu viti. Það hefur háð honum að hann hefur fyllst vanmetakennd vegna þess að hann kunni ekki hina tæknilegu hlið málsins. Þetta á auðvitað ekki að gerast. Þetta má ekki gerast, því að þetta er ekki lýðræði. Þetta hindrar þm. í að sinna störfum sínum.

En það er eftir öðru að því hefur verið komið inn í þjóðarsálina að störf þau sem hér eru unnin séu svo sem ósköp lítils virði og hvorki þurfi þm. að þiggja fyrir þau laun né hafa vinnuaðstöðu sem venjulegu fólki er boðin í þjóðfélaginu. Við skulum ekki þvo okkur sjálf alveg af Þessum hugmyndum því óneitanlega hefur Alþingi Íslendinga, a.m.k. virðist manni svo oft á tíðum, tvenns konar hlutverk. Annað, og það finnst mér vera verkefni hins háa Alþingis, er að setja landinu lög og gera það í einhverri alvöru, gera það vel og vanda til þess. Það er hins vegar sjálfsagt lögmál, já við skulum segja lýðræðisins að menn þurfa svo á hinn bóginn að stunda nánast skrípalæti hér til þess að vekja athygli þjóðarinnar á flokkum sínum og öðru pólitísku jagi sem virðist komast inn í öll mál. Vissulega skal ég ekkert hafa á móti því að menn heyi hér mælskulist og þrátti hér klukkutímunum saman. En vitaskuld er það engum til gagns, síst af öllu umbjóðendum hv. þm. Lágmarkið er þá a.m.k. að það sé skemmtilegt, til þess að hægt sé að þola það og sitja undir því. Við erum nefnilega hér, hv. þm., til að setja þessu landi, lýðveldinu okkar lög. Það er okkar meginverkefni. Að baki þeirri vinnu liggur auðvitað viss þekking, hugmyndir, vilji, hugsjónir. Tæknilega hliðin á ekki að standa okkur fyrir þrifum, engum þm.

Ég vildi nota þetta tækifæri til að koma þessum sjónarmiðum mínum á framfæri. Ég er þeirrar skoðunar að hér séu unnin mjög alvarleg störf og þýðingarmikil. Til þess að þau séu vel unnin eigum við að hafa alla þá aðstoð sem við þurfum, og lágmarkskrafa hlýtur að vera að við höfum lagasafn landsins til að vinna við. Það eru nú liðin 10 ár síðan það kom út síðast, og loksins eygjum við það að fá það á borð okkar og þjóðin öll. Því að eitt er nú hvernig okkur gengur að finna lög í þessu landi, annað er hvernig vesalings þjóðin fer að því, eins og nú standa sakir. Ég vil því lýsa stuðningi mínum við þessa till. Ég held að það sé skynsamlegt að skipa nefnd kunnugra manna til að fara tæknilega í gegnum lagasafnið. Ég er ekki nógu vel að mér til að vita hvernig að þessu verki er staðið núna. Vissulega veit ég að fólk situr yfir því að taka lög úr lagasafni og fella inn í safnið þau lög sem hafa verið sett síðan 1973, en ég held að nefndin sem fær þessa till. til meðferðar geti kannað það og séð um að þar taki menn þá höndum saman, hvernig sem það nú verður. Aðalatriðið er að unnið verði að því, án þess að verkið tefjist mjög mikið, að grisja safnið svo það komi að sem bestum notum.

Ég held að við vinnum öll á því að löggjafarstörf þingsins verði tekin alvarlega, en við séum ekki talin hér stunda einhvers konar pólitískan trúðleik.

Ég vil aðeins að lokum nefna sem dæmi um litla virðingu fyrir löggjafarstörfum Alþingis að í tíð minni sem nefndarformaður hér í þinginu kom þó nokkrum sinnum fyrir að ég og samnefndarmenn mínir sendum lagadeild Háskóla Íslands mál til umsagnar og fengum ekki svo mikið sem svar. Það segir kannske dálítið um hversu alvarlega störf okkar eru tekin hér á hinu háa Alþingi. Úr því skulum við bæta, hv. þm., og ég held að þessi till. sé spor í áttina til þess.