03.12.1984
Neðri deild: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1542 í B-deild Alþingistíðinda. (1009)
179. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. samgrh. og þeim aðilum öllum sem unnu að gerð þessa frv. fyrir vasklega framgöngu. Enda þótt bæði ég og sjálfsagt fleiri hér í hv. þd. höfum nokkrar efasemdir um einstök atriði í frv. eins og það er lagt fram, þá tel ég það vera til mikilla bóta og greiða verulega úr þeim vanda sem upp er kominn í sambandi við menntunarmál sjómanna. Þegar ég tala um menntunarmál sjómanna er ég ekki aðeins að tala um þá menntun og það skólanám sem þarf að fara á undan áður en skipstjórnarmenn fá sín atvinnuréttindi, heldur hin almennu menntunarmál allrar stéttarinnar, sem eru í algjörri niðurlægingu, eins og best sést kannske á því að nágrannar okkar eru um þessar mundir farnir að finna að því á hvað lágu stigi sú menntun er sem þessi hluti þjóðarinnar öðlast hér á landi. Það hefur því miður legið fyrir lengi að meðan kröfur hafa vaxið við sambærilega skóla í nágrannalöndum okkar og skipstjórnarmenn og vélstjórar meðal þeirra þjóða hafa orðið að leggja á sig lengra nám en áður var og bæta við þekkingu sína og kunnáttu af mörgum ástæðum, þá hefur þetta staðið í stað hér heima. Þótt vilji hafi verið mikill hjá bæði kennurum og skólastjórnum stýrimannaskólanna og vélskólanna til að bæta þar um hefur skort til þess allt fjármagn, enda hefur svo farið að í stýrimannaskólanum hefur orðið mikil nemendafækkun meðan aukningin er slík hjá öðrum menntastofnunum að þar er farið að tala um að reisa skorður við umsóknum og inntöku nýrra nemenda. Þetta er ein hliðin á þessu máli. En önnur meginhliðin er sú að aukin menntun þessara manna eykur öryggi þeirra sem þeir eiga að hafa forsjá fyrir um borð í skipum sínum.
Á s.l. vetri var mjög ítarlega rætt um öryggismál sjómanna og þá komu menntunarmál og undanþágurnar að sjálfsögðu inn í þá umr. Hæstv. samgrh. brást mjög fljótt við og skipaði nefnd þm., sem allir þingflokkar tilnefndu menn í, og þótt þessi nefnd fengi nokkuð langan tíma til starfa þá var henni gert skylt að skila áfangaskýrslu í okt. s.l. Þetta var gert, það var skilað áfangaskýrslu til hæstv. ráðh. og jafnframt nokkrum tillögum sem n. taldi nauðsynlegt að unnið yrði að þegar á þessu hausti.
Vegna þess að hér hefur verið minnst á af öðrum hv. þm. menntunarsjóð sjómanna vil ég upplýsa það að hv. þm. hefur misskilið mig þegar ég talaði um að sjómannasamtökin hefðu þegar stofnað slíkan menntunarsjóð. Þetta er ekki rétt. Hins vegar var það í tillögunum frá þessari þingmannanefnd til hæstv. ráðh. að þetta ætti að gera. Og það væri ekki aðeins vegna skipstjórnarmanna eða vélstjóra heldur einnig hinna sem gegna áhættusömum störfum um borð í skipunum, t.d. fiskiskipunum og reyndar í dag farskipunum líka, þar sem þeir þurfa að kunna til þeirra verka sem eytt er mörgum vikum í að kenna öðrum sambærilegum stéttum í landi — og fólkið er á fullum launum meðan það er að læra það.
Okkar tillaga til ráðh. var sú að stofnaður yrði sjóður sem sjávarútvegurinn sjálfur ætti frumkvæði að ásamt þessum mönnum, sjóður sem veitti möguleika á því að koma slíku námi á fót með öðru móti en bara í hinum sérhæfðu fagskólum. Hæstv. samgrh. kynnti þetta í ríkisstj., að ég held tveim dögum eftir að við afhentum honum þetta álit úr þingmannanefndinni, en ég hef verið formaður í þeirri n. og afhenti honum álit okkar og tillögur. Þessu var vel tekið í ríkisstj., svo vel að hæstv. sjútvrh. hafði orð á nauðsyn þess að slíkur sjóður yrði settur á stofn við setningu Sjómannasambandsþings sem hófst nokkrum dögum síðar.
Landssamband ísl. útvegsmanna hefur líka gert merkilega samþykkt um beint peningaframlag til þessara mála. Mér er kunnugt um að nú liggja á borði hæstv. samgrh. tillögur frá Slysavarnafélagi Íslands um beina kennslu þeirra áhafnarmanna sem ekki hafa farið í sérskóla, um námskeið sem fjalla ekki aðeins um almenn sjómannsstörf eða kennslu í sjómennsku, heldur einnig meðferð og notkun allra öryggistækja sem eru orðin mörg og dýrmæt um borð í skipunum. Ég vænti þess, sérstaklega vegna þess að ég veit að þessar tillögur eru mjög vandlega unnar hjá Slysavarnafélagi Íslands, að hæstv. samgrh. taki á þessu máli eins og hann hefur tekið á þessum málum öllum og reyni að hrinda því í framkvæmd. Það má vera að þetta heyri frekar undir menntmrn. vegna gildandi laga um stjórnarráð og þess háttar. En satt að segja blæs ég á allt slíkt þegar slík mál eiga í hlut. Ég held endilega að það séu þessir tveir ráðh. eða tvö rn., sem fara með siglingar og fiskveiðar, sjútvrn. og samgrn., sem eigi að hafa öll þessi mál í sinni hendi og þetta komi raunar öðrum rn. lítið við.
Það sem slíkur menntunarsjóður sjómanna mundi geta stuðlað að er ekki bara það að undanþágur yrðu alveg bannaðar, eins og við lögðum til í nefndinni, heldur er lagt til í þessu frv. að við vinnum okkur út úr þessu vandamáli, sem er auðvitað aðalatriðið í þessum tillögum frá nefndinni, sem hæstv. ráðh. skipaði til að endurskoða þessi lög, eða taka á starfi þeirra sem hafa unnið við það frá 1978 og ekkert hefur orðið ágengt, taka á því og afgreiða það. Slíkur sjóður verður líka til þess að laða nemendur að þessum fagskólum og þá kannske um leið til þess að létta á öðrum fagskólum í landinu.
Það sem þarf svo að gera í framhaldi af þessari endurskoðun er að framfylgja því sem ég held að ég hafi lagt til á árinu 1964, þegar ég lagði fram till. um endurskoðun á lögum um Stýrimannaskólann, sem þá var samþykkt og reyndar framkvæmd og kannske kom enn betur fram þegar lögin um Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum voru sett, að það verður að tengja þetta nám öðru námi í landinu. Það er margt sem getur orsakað það að þessir menn verði að leita í land eftir atvinnu, jafnvel eftir stuttan starfstíma til sjós. Það geta verið bæði slys og veikindi sem valda því, heimilisaðstæður o.fl. Þeir geta orðið, eins og margir heimilisfeður verða að gera, að fara í land til þess að hugsa um sína fjölskyldu, sín börn ef þeir verða einstæðir o.s.frv., þannig að þetta er reyndar líka orðið kvennamál hið mesta.
En ég held að nauðsynlegt sé að um leið og menntunin verður aukin hjá þessum mönnum og tengd meira kannske við önnur þjóðnýt störf í þjóðfélaginu, þá verði reynt að ná láréttri tengingu við aðra skóla, svo að nemendur þessara skóla eigi þá kost á að halda áfram námi ef þeir vilja leita fyrir sér við aðra skóla í landi. Þetta er tiltölulega mjög auðvelt fyrir vélskólamenn. Þeir eiga beinan aðgang að frekari tæknimenntun í tækniskólum. Það er hins vegar öllu verra fyrir skipstjórnarmennina. Þeir munu vera eina fagstéttin á skipaflotanum íslenska sem ekki getur nýtt sitt nám við störf í landi.
Ég vil nú láta þetta almenna tal um þessi mál koma hér fram við 1. umr. En í framhaldi af því að nefndin skoði þetta mál sé ég persónulega ekki neitt því til fyrirstöðu að þingið takist á við þennan vanda og reyni að afgreiða málið fyrir næstu áramót. Og ég álit að það muni verða fullur vilji hjá þm. til þess, því að það er enginn vafi á því að samþykkt þess verður til bóta.
Ég ég held að í sambandi við athugun málsins væri forvitnilegt fyrir þm. í heild að fá að sjá þessa skýrslu sem fulltrúar þeirra hafa látið af hendi til hæstv. ráðh. Og um leið vil ég spyrja hæstv. ráðh. hvort nokkuð sé farið að huga að frekari framkvæmd á þeim tillögum sem nefndin lagði til samfara þessari áfangaskýrslu.