04.12.1984
Sameinað þing: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)

140. mál, símalyfseðlar

Fyrirspyrjandi (Salome Þorkelsdóttir):

Herra forseti. Sunnudaginn 4. nóv. s.l. birtist grein í helgarblaði NT þar sem skýrt var frá því hvernig blaðamönnum tókst að verða sér úti um vímugæf lyf með því að hringja í nokkur apótek, taka sér læknisnafn, valið af handahófi úr læknaskrá, en aðgang að henni fengu þeir á Borgarbókasafninu þar sem hún liggur frammi sem handbók en ekki til útlána. Þannig gáfu þeir út lyfseðla símleiðis með því að villa á sér heimildir. Í umræddri blaðagrein er það nákvæmlega tíundað hvernig blaðamennirnir báru sig að. Ég tel ekki ástæðu til að fara út í þá sálma hér. En ástæðuna fyrir þessu tiltæki sínu töldu blaðamenn vera þá, að orðrómur væri uppi um að sú iðja væri nokkuð stunduð af óprúttnum mönnum að hringja í apótek undir fölsku nafni og verða sér þannig úti um lyf á ólöglegan hátt. Blaðamennirnir vildu sem sagt láta reyna á hvort þetta væri hægt og tilganginn sögðu þeir þann að benda á gloppu í kerfinu sem þyrfti að laga.

Ég tel gilda ástæðu til að fá hér á hv. Alþingi fram upplýsingar frá hæstv. heilbrmrh. um hvernig þær reglur eru sem gilda í þessum efnum. Símsending lyfseðla er í mörgum tilfellum hagkvæm og nauðsynleg þjónusta, sem læknar og lyfjafræðingar veita sjúklingum, og má með engu móti falla niður. Þess vegna er brýnt að þannig sé að þessum málum staðið að komið verði í veg fyrir hugsanlega misnotkun eftir því sem kostur er.

Ég vil taka fram að ég tel að þeir sem þessum málum sinna, þ.e. læknar og lyfjafræðingar, leggi sig fram um að koma í veg fyrir slíka misnotkun sem hér hefur verið fjallað um, en ekki er hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd sem reynsla blaðamannanna skýrir frá. Þess vegna er fsp. mín lögð fram. Hún er á þskj. 145 og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„1. Hvaða reglur gilda um útgáfu lyfseðla í gegnum síma?

2. Er fyrirhugað að breyta þeim reglum til þess að koma í veg fyrir misnotkun?“