04.12.1984
Sameinað þing: 29. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1578 í B-deild Alþingistíðinda. (1060)

33. mál, lífeyrisréttindi húsmæðra

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það er að sjálfsögðu eðlilegt og réttmætt af hæstv. forseta að brýna þm. á að sinna þingskyldu hér á Alþingi og ekki vanþörf á að því er æðimarga varðar. En mér sýnist vera að sækja í sama horfið og hér hefur gerst, einmitt á þeim tíma árs sem nú er, undangengin mörg þing, að hvort sem um er að ræða þingfundi í Sþ. eða í deildum eru haldnir margir nefndarfundir í senn víðs vegar hér í húsinu og í nærliggjandi húsum sem þýða að þm. geta ekki setið þingfundi ef þeir ætla að sinna nefndastörfum. Ég held að það sé komin enn einu sinni fullkomin ástæða til að íhuga — og meira en íhuga, gera gangskör að því — að nefndarfundir séu ekki haldnir á þeim tíma sem þingfundatími er, hvort sem um er að ræða í Sþ. eða í deildum.

Hér er auðvitað um að ræða stjórnunaratriði. Yfirleitt eru formenn þingnefnda úr stjórnarliði. Verður að ætlast til þess að þeir hinir sömu séu ekki að boða nefndarfundi á sama tíma og þingfundir eiga sér stað.

Ég skil vel að hæstv. forseti hefur áhyggjur af þessari þróun, sem virðist alltaf sækja á verri veginn, og er ekki vanþörf á að ýta við hv. þm., en mér finnst eins og það sé sami keimur af því og hjá okkar ágætu klerkum, að yfirleitt hittir umvöndunin þá sem mæta, en nær ekki eyrum hinna sem sjaldnar koma og sitja.