04.12.1984
Sameinað þing: 29. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1582 í B-deild Alþingistíðinda. (1067)

33. mál, lífeyrisréttindi húsmæðra

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Tilefni þess að ég kem aftur í ræðustól er að hv. síðasti ræðumaður taldi mig vera andvígan því að stofnsettur yrði lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn. Annaðhvort heyrir þm. illa eða hann gerir mönnum upp skoðanir af ásettu ráði. Ég sagði einmitt að auðvitað vildum við að til yrði einn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn. Það má þm. vera ljóst, ef hann fylgist með umr. okkar Alþfl.-manna, að lengi hefur verið barist fyrir því að svo yrði.

Ég harma hins vegar að mál skyldu þannig þróast á sínum tíma að stofnaðir voru ekki 100 lífeyrissjóðir heldur miklu fleiri sem hefur gert lífeyrissjóðakerfi okkar að hálfgerðri skrípamynd. En það er hægt að bjarga þessu. Það er hægt að breyta þessu og að því er unnið. En hraða þarf vinnubrögðum í þeim efnum. En það eru nokkrir sem eru fyrir utan okkar lífeyriskerfi þrátt fyrir marga lífeyrissjóði og við þurfum að vinna að því að tryggja rétt þess fólks, hvort sem það eru konur eða karlar. Til eru lög um eftirlaun aldraðra og til eru ellilaun. Ég tel miklu nær að virkja það kerfi. Það væri nær þm. sem er nú formaður annars þingflokks stjórnarliðsins að vinna að því að tekjutrygging yrði hækkuð eða ellilaun hækkuð. Það mundi leysa þau mál sem hann er að tala um. Þáltill. sem hér liggur fyrir býður ekki upp á annað en nýja skattlagningu. Ég heyrði ekki á máli hans hvernig ætti að afla tekna í þennan sjóð nema frá fjölskyldunni sem viðkomandi húsmóðir er frá. Viðkomandi heimilisfaðir greiðir nú 10% í lífeyrissjóð og ef konan ætti að fá sambærilegan rétt, ef verið er að tala um rétt í þessu tilviki, hlyti einnig að þurfa að greiða 10% fyrir hana. Það eru samtals rúm 20%.

Ég tel að stofnsetning svona lífeyrissjóðs yrði til þess að auka enn á stjórnleysið í lífeyrismálunum og gera launafólki mikið ógagn og húsmæðrum um leið. Mér finnst þessi till. vera meira í ætt við sýndarmennsku en rökrétta hugsun því að það er hægt að leysa þessi mál. Það er brýnt mál að leysa þau vandamál, sem þeir einstaklingar glíma við sem ekki hafa aðild að lífeyrissjóði, með því að hækka ellilaun eða hækka tekjutryggingu. Sjálfsagt er það miklu ódýrara líka. Það mætti einnig í þessu dæmi koma því svo fyrir að þeir sem eiga nóga peninga fái ekki þessa styrki frá ríkinu eða þessi laun, þannig að aðrir, sem minna mega sín, gætu fengið meira.

Ég tel að þessi till., þó að sjálfsagt sé góð meining á bak við hana, sé einskis virði fyrir það fólk sem er verið að tala um hér. Sú leið, sem bent er á þarna, er alls ekki leiðin að því marki að tryggja hag þessa fólks. Það eru til miklu einfaldari og rökréttari og eðlilegri leiðir.

Það er ekki nokkur vafi á því að sú stefna, sem þessi stóra nefnd, sem talað hefur verið um hér, vinnur eftir, er í þá átt að samhæfa lífeyrissjóðina, sameina þá, og að sú hugmynd sem kemur fram í lok grg. þessa frv. er alls ekki ný. Hún hefur verið lengi á sveimi og er til umræðu í þessum nefndum. Þær hafa því miður dregið allt of lengi að ljúka sínum störfum. Þar verður að taka á.

Ég endurtek að það væri nær fyrir hv. þm. að beita sér fyrir því innan stjórnarliðsins að hækka greiðslur til þess fólks sem erfiðast á í lífeyriskerfinu og koma því fyrir með þeim hætti að enginn þurfi að vera út undan í stað þess að koma með till. sem skrumskælir það erfiða kerfi, sem við erum með í Lífeyrismálum, enn meir en verið hefur.