04.12.1984
Sameinað þing: 29. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1589 í B-deild Alþingistíðinda. (1073)
21. mál, Ríkismat sjávarafurða
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Hv. þm. hafa nefnt það að ekki eru nema nokkrir mánuðir síðan hér á hv. Alþingi var fjallað um frv. og samþykkt lög þar sem allveigamiklar breytingar voru gerðar á Ríkismati sjávarafurða. Segja má að það sé nokkuð mikil bíræfni hjá hv. flm. að rétt eftir að slíkur lagabálkur hefur verið samþykktur skuli lagt til að þessi stofnun verði lögð niður.
Því var haldið fram af flm. — en frv. var reyndar stjfrv. — að með þeirri breytingu, sem gerð var á starfsemi fiskmatsins, væri verið að breyta ýmsu til hins betra. Um það urðu dálitlar deilur hér í þinginu og menn voru ekki allir á eitt sáttir um það hvort þarna hefði verið farið til hins betri vegar eða til hins verri. M.a. var fullyrt að stefnt væri að því að kostnaður við ríkismatið yrði minni eftir þær breytingar sem lögin fólu í sér. Það hefði verið áhugavert við þessa umr. að fá um það upplýsingar hvernig sá þáttur hefði gengið fyrir sig. En einhvern veginn hefur maður á tilfinningunni að raunin hafi ekki orðið sú að rekstur Fiskmats ríkisins sé neitt ódýrari en Framleiðslueftirlit sjávarafurða þó að breytt hafi verið um nafn og kostnaður af þessu nýja kerfi, sem upp var sett, hafi jafnvel orðið meiri. En um þetta er að vísu ekki hægt að fullyrða neitt.
Í sambandi við það sem hér hefur verið haldið fram, bæði af flm. og hv. 3. þm. Vesturl., vil ég gera nokkrar athugasemdir. Í fyrsta lagi í sambandi við ferskfiskmat. Ég hef ekki heyrt neinn sjómann tala um að æskilegt sé að fella niður ferskfiskmat og að það sé leið til betri samskipta milli útgerðar og sjómanna. Ég hef ekki heyrt neina nema ákveðna skrifstofumenn, þá fyrst og fremst skrifstofumenn hér í Reykjavík og jafnvel forstjóra vissra stofnana, halda þessu fram. Það hefur reyndar einn og einn forustumaður í samtökum fiskseljenda verið á þeirri skoðun að hægt væri að komast fram hjá ferskfiskmati en sú skoðun hefur ekki átt hljómgrunn meðal sjómanna.
Hvernig mundi verðlagning eiga sér stað hjá því fyrirtæki þar sem fiskkaupandinn er hinn sami og eigandi útgerðarinnar? Ætli það þurfi ekki einhver aðili að koma þar á milli sem liti hlutlaust á hvaða afurð sjómaðurinn er að selja til fiskvinnslurnar en það væri ekki bara mál útgerðar og fiskkaupanda sem er oft og tíðum sama fyrirtækið. Vandamálið er næstum eins stórt þegar um tvo óskylda aðila er að ræða. Það er oftast nær mjög erfitt að ná beinu samkomulagi milli tveggja aðila um gæði. Það hlýtur að vera nauðsynlegt að þriðji aðili — og þar er enginn eðlilegri en aðili frá ríkinu — komi til með að fella slíkan úrskurð.
Útflutningsmatið er mikilsverðari þáttur og skiptir miklu meira máli. Um það, skal ég viðurkenna, eru mjög skiptar skoðanir. Fisksölufyrirtækin eru á því að eðlilegt sé að þau fái sjálf að sjá um sitt fiskmat, þau fái sem sagt að búa þessa framleiðsluvöru að öllu leyti til útflutnings og það eigi að skapast trúnaður milli kaupanda í útlandinu og þessa sölufyrirtækis um það hvernig varan sé.
Reynslan af þessu er því miður ekki nógu góð. Það er ekki óalgengt að við heyrum þá umræðu í þjóðfélaginu að þessi sölufyrirtæki okkar séu að sumu leyti orðin ansi stór og erfitt sé að fylgjast með rekstri þeirra. Raunverulegur eignaraðili að þessum fyrirtækjum er almenningur á Íslandi, sjómennirnir, fiskvinnslufólkið — (Gripið fram í: Að sölusamtökunum?) — Að sölusamtökunum vegna þess að þetta er sölufyrirtæki sem er að selja þeirra afurðir og þeirra vinnu. Eiga stjórnendur þessara fyrirtækja að vera nokkurs konar lögregla yfir því hvernig sú vara er hantéruð á erlendan markað sem þetta fólk hefur verið að afla og framleiða? Ég held að okkur sé jafnnauðsynlegt að hafa opinbert eftirlit á sölu afurðanna okkar og okkur er nauðsynlegt að hafa opinbert eftirlit á ýmsum þáttum í löggæslunni. Það er ekki síður nauðsynlegt að við séum með opinbert eftirlit á því hvernig framleiðslufyrirtækin skila þeim afurðum sem í þeirra hendur eru settar heldur en hverja aðra löggæslu á landinu.
Síðustu fréttir, sem við höfum af okkar sölufyrirtækjum í Bandaríkjunum, eru þær að aðalkaupandinn, John Silvers, fer fram á að fá að fara inn í hvert fyrirtæki á Íslandi og fylgjast með því hvernig framleiðslan sé. Sýnir þetta að sá þáttur framleiðslunnar okkar, sem hefur verið mest undir eftirliti framleiðslufyrirtækjanna sjálfra, sé í það háum gæðaflokki að við getum treyst þessum fyrirtækjum fullkomlega? Ég held að það sé mjög hættuleg þróun ef við stöndum frammi fyrir því að erlendir kaupendur geri kröfu til þess að fá að koma með sína eftirlitsmenn inn á íslenska vinnustaði til að samþykkja það að þessi eða hin varan sé söluhæf á þeirra mörkuðum. Ég tel að hægt sé að forðast þetta. Það hefur sýnt sig að það hefur verið hægt að forðast þetta þar sem ríkiseftirlitið hefur verið gott.
Það er ekki eingöngu í sambandi við Austur-Evrópuríkin sem við getum nokkurn veginn gengið út frá því að ríkismat sé tekið gilt. Eftirlit ríkisins í Bandaríkjunum í sambandi við afurðir er ekki minna á mörgum sviðum en fyrir austan tjald. Hreinlætiseftirlit og hreinlætisskyldur eru ekki minni og jafnvel meiri en þar. Það er krafist ríkiseftirlits, það er krafist ríkisstimpla. Ég tel að með því að draga úr eðlilegu og sjálfsögðu eftirliti ríkisins með því að afurðir okkar séu gæðavara á markaðnum séum við að fara spor aftur á bak. Því miður hefur það sýnt sig á ýmsa vegu.
Á okkar aðalmarkaði fyrir austan tjald er nú beinlínis krafist þess að ríkisstimpill sé settur á vöruna, að það sé opinbert ríkiseftirlit með þeirri vöru sem seld er. Það hefur verið ýjað að því að nóg sé að hafa einn, tvo menn með stimpla sem skelli þessu á án þess að raunverulega sé fylgst með því hvaða vörur sé verið að senda á markað. Það yrði sjálfsagt svipað og átti sér stað í sambandi við ákveðna stimplayfirferð á vörum til Nígeríu á árunum 1981–1982. Þar var stimplum skellt á — og hver var útkoman? Það var talið nokkurn veginn víst að það mætti selja svertingjunum hvað sem væri og ekki þyrfti svo mikið „kontról“ í kringum það. Menn fóru ekkert að rífa upp pakka eða kassa, þeir skelltu bara stimplunum á. Það var nóg að senda einn mann hringinn í kringum landið — þeir þurftu ekki einu sinni að vera tveir sem skelltu stimplinum á. Hvernig fór um þann markað? Hann fór náttúrlega á þann veg að við eigum sjálfsagt enn langt í land þangað til við höfum unnið upp trúnað í sambandi við þau viðskipti.
Flm. nefndi að styrkja þyrfti Fiskvinnsluskólann. Ég tek undir það. Það mundi hafa mun meiri áhrif á gæði og gæðamál í fiskframleiðslunni en að halda uppi ríkismatinu. Það er ekki hægt að setja neitt jafnaðarmerki þarna á milli. Áhrif og stjórnun fiskeftirlitsmanna og matsmanna í þá átt að auka gæði hafa alltaf verið fyrir hendi og eiga að vera fyrir hendi og við eigum að styrkja báða þessa þætti. Allt undanhald á eftirliti með gæðum af opinberri hálfu og undanhald á því að auka menntun á þessu sviði verður á hinn verri veg.
Því er svo haldið fram að á meðan á verkfalli stóð hafi allt gengið fyrir sig á þann máta að það hafi verið gengið fram hjá fiskmati. Ég vil hreinlega mótmæla svona umtali af því að ég veit það og — ég veit ekki hvernig á að orða það — þakka BSRB fyrir að þeir gengu fram hjá því að fylgjast með því að þessir menn væru í verkfalli. Ég veit ekki betur en að meginhluti þessara manna hafi verið í fullri vinnu allan tímann. Það er af og frá að hlutirnir hafi gengið jafnvel betur fyrir sig vegna þess að þeir voru hvergi nálægt. Þar sem það hefur átt sér stað að þeir hafa ekki verið til staðar var fullur trúnaður á milli þessara manna og annarra sem sinntu þessu verki. Það var ekki vegna þess að þessir menn hefðu horfið af vinnustað eða horfið frá sinni vinnuskyldu.
Það er sjálfsagt þannig með þessa till., eins og flestar aðrar af þessum bandormstill. hv. flm. um að leggja niður vissar ríkisstofnanir, að sjálfsagt er hægt að benda á ýmsa galla á þessu fyrirtæki sem og flestöllum hinum fyrirtækjunum. Við vitum að sjálfsagt verður aldrei stofnað svona fyrirtæki án þess að ýmsir gallar verði á því. En það á ekki að segja að vegna þess að það séu einhverjir gallar á því þurfi endilega að leggja það niður. Það á að betrumbæta það og gera það að betri stofnun. Ég tel að eitt af frumskilyrðum í íslenskum sjávarútvegi sé að Ríkismat sjávarafurða verði alltaf skipulagt á hinn heppilegasta og besta hátt. Ég er alveg á móti því og tel það mjög mikla afturför ef horfið verður frá því að halda uppi opinberu ríkiseftirliti á öllum sjávarafurðum sem við flytjum frá landinu.