04.12.1984
Sameinað þing: 29. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1592 í B-deild Alþingistíðinda. (1074)

21. mál, Ríkismat sjávarafurða

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það er að sjálfsögðu mjög svo virðingarvert í því ástandi sem nú er í þjóðfélaginu í dag að menn hugi vel að því hvar megi spara, hvar megi draga úr, hvað megi leggja niður. Að því er mig varðar er rétt að taka fram að ég er enginn sérstakur ríkisforsjármaður, hvorki í þessum efnum né öðrum. En ég verð að segja varðandi þessa till. hv. þm. Stefáns Benediktssonar að mér finnst hún afskaplega einföld. Þar er lagt til að leggja niður heila stofnun. Það segir, með leyfi virðulegs forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að annast framkvæmd þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til að leggja megi niður starfsemi Ríkismats sjávarafurða.“ Ekkert meir.

Það kom í hug minn hvort ekki hefði mátt bæta þarna við í áframhaldi t.d.: með því að skipta um nafn. Það er ekki orð um það með hvaða hætti á að breyta, hvort eitthvað á að koma í staðinn og þá hvað. Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta. En ég vil þó segja að ég óttast það verulega ef horfið yrði að því ráði að þessi stofnun yrði lögð niður. Þá kæmu upp ýmis vandamál og ekki hvað síst í samskiptum sjómanna og fiskkaupenda. Það er fyrst og fremst það atriði sem ég óttast að mundi leiða til vandræða ef ekkert yrði tekið upp í staðinn sem hægt væri, a.m.k. til tilraunar, að hafa sem nokkurs konar öryggisventil til lausnar vandkvæða sem upp kæmu.

Við skulum ekkert ganga að því gruflandi að fiskkaupendur eru, eins og aðrir menn, breyskir. Þeir mundu að sjálfsögðu — að vísu misjafnlega eftir því hvert innrætið og gerð er — fara eins langt í þessum efnum og þeir teldu sig geta. Á hverjum bitnaði það? Á sjómönnum fyrst og fremst því að hér er um að ræða að verðleggja þessa vinnu sjómanna. Málið snýst í raun og veru fyrst og fremst og nánast eingöngu um það hvað sjómaður ber úr býtum fyrir þann afla sem hann kemur með að landi.

Menn segja hér og líklega er það að mörgu leyti rétt, þó að hv. þm. Skúli Alexandersson mótmæli því harðlega, að þetta muni hafa gengið nokkuð þokkalega í októbermánuði í verkfalli BSRB og þar með þeirra manna sem áttu að sjá um ferskfiskmatið. En ég held að það sé ekki einhlítur dómur á ágæti þess ástands þó að hálfan mánuð, þrjár vikur sé að verki staðið með nokkuð eðlilegum hætti í þessum efnum. Það þarf lengri tíma til að skera úr um hvort framkvæmanlegt sé, svo að eðlilegt megi teljast, að leggja niður t.d. ferskfiskmatið í því formi sem það nú er hjá Ríkismati sjávarafurða. En ég tel þó að það sé kannske sá þátturinn sem menn telja fyrst og fremst að megi breyta. En ég óttast, a.m.k. fyrst í stað meðan verið er að koma festu á þá hluti, að það þurfi að vera einhver aðili sem er öryggisventill og úrskurðaraðili í deilum sem ég er handviss um að mundu koma upp annars vegar milli fiskseljenda, þ.e. sjómanna, og hins vegar fiskkaupenda.

Eins og hv. 3. þm. Vesturl. nefndi áðan munu vera um 40 millj. ætlaðar á næsta ári til þessara mála. Ef hægt er að spara þar án þess að rýra á nokkurn hátt starfsemi af þessu tagi á það að gerast. Í fjöldamörgum tilfellum er hægt að finna tilteknar stofnanir og afskipti ríkisvaldsins af hinum ýmsu málefnum sem vissulega mætti minnka og þar með spara.

Segjum svo að Ríkismat sjávarafurða yrði lagt niður og sú starfsemi, sem þar er innt af höndum, látin fara inn í fiskvinnslustöðvarnar sem yrðu trúlega sá aðilinn sem líklegast er að fengi þetta verkefni. Er líklegt að það mundi á engan hátt vera á kostnað ríkisins? Er líklegt að þeir aðilar tækju þennan þátt málsins að sér án þess að fá nokkra greiðslu fyrir? Lægi það fyrir mundi ég skoða hug minn um það hvort ætti að breyta í það form. Ég er hins vegar ekkert viss um að slíkt ætti sér stað. Og hver er þá sparnaðurinn ef ætti að borga einhverjum öðrum aðila kannske álíka upphæð til að sinna þessum eftirlitsþætti og Ríkismat sjávarafurða fær nú til þess í óbreyttu formi?

En allt eru þetta mál sem að sjálfsögðu ber að skoða, ekki hvað síst á þeim tímum, sem við lifum nú, þegar allt er í hers höndum að því er virðist af hálfu ríkisvaldsins þegar láta á fé af hendi rakna til hinna bráðnauðsynlegustu þarfa í þjóðfélaginu. Sé hægt með skikkanlegum hætti að fá aukna fjármuni til brýnni verkefna en menn telja að hér um ræði þá á að sjálfsögðu að gera það. En mér er það raunar óskiljanlegt hvernig á því geti staðið að jafn rökrænn þm. og hv. þm. Stefán Benediktsson er skuli ekki láta fylgja með þessari þáltill. með hvaða hætti hann telur að eigi að gera þessa hluti, með hvaða hætti eigi að breyta, í hvaða form. Ég geri fullkomlega ráð fyrir að hann sé búinn að hugsa þessi mál mjög vel og gera sér grein fyrir því hvað hann vilji að verði uppi í þessum efnum verði af þessari breytingu.

En ég get mjög vel tekið undir það að varðandi Ríkismat sjávarafurða og raunar fleiri stofnanir sem ríkið rekur sé vissulega ástæða til að skoða þau mál betur, endurmeta hvort þörf sé á því að ríkið sjálft hafi jafnmikil afskipti af þessum málum og verið hefur. Ég gæti vel trúað að það mætti slaka þarna nokkuð á. En ég held þó að nauðsynlegt sé í jafnviðkvæmu máli varðandi ferskfiskmatið að ákveða laun sjómannanna. Það mál þarf að skoðast mjög vel áður en breytingar eru gerðar þó að ég vilji á engan hátt útiloka að hægt sé að gera breytingar á þann veg að minnka afskipti ríkisvaldsins, draga úr kostnaði þess við framkvæmdina. Best er auðvitað ef hægt er að láta fiskkaupendurna um að borga þennan brúsa. En að sjálfsögðu þarf að taka fram að það verði gert á þann veg að hagur sjómanna sé á engan hátt skertur.