05.12.1984
Efri deild: 23. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1609 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)

133. mál, sala Landssmiðjunnar

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Mér þykir þetta trúarbragðarugl, sem kemur fram í mörgum, ansi undarlegt. Menn vilja hafa ríkisfyrirtæki í landinu af einhverjum trúarkreddum eingöngu, án tillits til raka, tillits til hagkvæmni og tillits til þess hvort það er fólkinu til góðs eða ekki.

Mér skilst að hv. 2. þm. Austurl. hafi býsnast yfir því að ég hafi vitnað í álit járniðnaðarmanna og talið þar vera rödd afturhaldsins. Ég nefndi nú sérstaklega að ég teldi hv. 4. þm. Vesturl. Skúla Alexandersson vera í gervi afturhaldsins þegar hann mælti gegn sölu þessa fyrirtækis og er það afleitt þegar menn yfirfæra það á aðra. Það er að fara rangt með og það er ljótt að skrökva, hv. þm. Helgi seljan.

Hins vegar finnst mér að umsögn Félags járniðnaðarmanna sé þannig vaxin að tæpast sé hægt að taka hana alvarlega. Ég verð að játa það. Ég minni á að verkalýðsfélög eða verkalýðsforingjar geta haft rangt fyrir sér eins og hverjir aðrir og menn sem eru í verkalýðsfélögum hafa líka margar skoðanir. Menn eru með og móti málum eftir því sem þeim sýnist vera hagkvæmt fyrir sína félaga.

Ég er þeirrar skoðunar að með því að ríkisreka Landssmiðjuna sé ekki nægilega séð fyrir hagsmunum þess fólks sem mundi starfa þar. Ég held að ef þetta fyrirtæki yrði rekið af þrótti undir öðru eignarformi mundi það fólk geta haft betri laun en það hefur. Ég hygg að sú sé reynslan mjög víða að einkafyrirtæki geti greitt hærri laun en ríkið. Því miður er það svo.

Ég endurtek að mér finnst ástæðulaust að fara eftir einhverjum gömlum trúarkreddum í þessum efnum. Ef það sýnir sig að fyrirtæki skila ekki hagnaði eða eru ekki nægilega vel rekin eða hafa ekki aðstöðu til þess vegna þeirra sem stjórna fyrirtækinu, þ.e. ríkisvaldið, á að leita annarra leiða. Ég endurtek að þetta fyrirtæki hefur skilað góðu hlutverki, gerði það á sínum tíma. Hugsjónin á bak við það var þörf á sínum tíma. En við lifum í öðrum tíma í dag. Við eigum að halda okkur við nútíðina og framtíðina, en ekki fortíðina, í þessum efnum.