05.12.1984
Efri deild: 23. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1614 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)
186. mál, frádráttur frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar í atvinnurekstri
Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Hæstv. forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur fjallað um þetta mál. Það er einfalt í sniðum. Það er einungis um það að ræða að breyta viðkomandi upphæðum til samræmis við verðlagsþróun. Í aths. segir að Þjóðhagsstofnun hafi gert áætlun um 25% hækkun launa milli áranna 1984 og 1985 þannig að tölur í þessu frv. hækki annars vegar að því er varðar frádrátt frá skattskyldum tekjum einstaklinga úr 20 þús. í 25 þús. og hjóna í 50 þús. úr 40. Menn þekkja þetta mál. Það var mikið til umr. í þessari hv. deild á síðasta þingi og þá voru þessi lög samþykkt. Nefndin hefur að vísu klofnað um þetta mál. Meiri hl. mælir með því að það verði samþykkt, að þessar tölur í skattalögum verði látnar fylgja sömu reglum og aðrar tölur, þær fylgi verðlagsþróun, en minni hl. er andvígur frv. Það hefði verið freistandi fyrir mig, sem æðilengi hef skrifað og talað um þetta mál, að hafa hér nokkur orð um það. Ég ætla þó ekki að tefja tímann mjög vegna þess að það eru miklar annir í þessari hv. deild en satt að segja hefði ég haldið að við gætum meira og minna sameinast um það að reyna að fá almenning til að taka þátt í atvinnulífinu með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir. Þessi frádráttur kemur að sáralitlu til góða ríku fólki eða atvinnurekendum. Þetta er það lág upphæð. Þetta er möguleiki fólksins í landinu, einmitt fátækara fólksins og þess sem er að reyna smám saman að byggja upp eigur sínar, til þess að verða virkur þátttakandi í atvinnulífinu og bæta sinn eigin hag um leið og það bætir þjóðarhag. Þess vegna hryggir það mig raunar að nefndin skyldi ekki verða sammála um að mæla með frv. Eins og ég sagði væri það freistandi að halda hér dálitla ræðu um þessi mál, bæði hérlendis og erlendis, t.d. þann árangur sem náðst hefur í Þýskalandi og Japan við að koma á því sem maður mætti kalla fjárstjórn fjöldans eða stjórn almennings. En ég ætla að geyma það til betra tækifæris.
Ég legg til fyrir hönd meiri hl. n. að frv. verði samþykkt.