05.12.1984
Efri deild: 23. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1616 í B-deild Alþingistíðinda. (1101)

186. mál, frádráttur frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar í atvinnurekstri

Ragnar Arnalds:

Virðulegi forseti. Eins og hv. dm. sjálfsagt minnast vorum við Alþb.-menn andvígir setningu þeirra laga sem hér um ræðir. Það leiðir því nokkuð af sjálfu sér að við erum einnig andvígir því að nú sé verið að hreyfa þær upphæðir sem í lögunum standa til hækkunar.