05.12.1984
Efri deild: 23. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1616 í B-deild Alþingistíðinda. (1102)
186. mál, frádráttur frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar í atvinnurekstri
Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Ég kveð mér einungis hljóðs til þess að fagna þeim ummælum hv. þm. Eiðs Guðnasonar að hann og hans flokkur séu ekki andvígir þeirri meginhugsun sem felst í þessu frv. sem verið er að breyta hér örlítið. Auðvitað er það meginatriði málsins að menn geti sameinast um að finna réttu leiðirnar til þess að alþýða Íslands geti tekið beinan þátt í atvinnurekstri og þar með bæði bætt eigin hag og þjóðarheildarinnar og styrkt íslenska atvinnuvegi. Við skulum ekki á þessari stundu fara að deila um það hvort við höfum hitt nákvæmlega á rétta hlutinn þegar þessi lög voru samþykkt. Auðvitað eru þau eins og öll mannanna verk til endurskoðunar og fyrstur skal ég verða til þess að taka þátt í því að reyna að finna heppilegri og betri leiðir til að ná þessu sameiginlega markmiði. En ég tel að allir Íslendingar ættu að geta sameinast um að leita leiða til þess að bæta fjárhag og afkomu allrar alþýðu og styrkja atvinnuvegina. Þetta hefur verið gert, eins og ég sagði áðan, t.d. þegar þýska undrið varð á 7. áratugnum. Þá var það einmitt í þessu horfi, t.d. Volkswagen-verksmiðjurnar, þýski stálhringurinn o.s.frv. Allt var þetta gert að almenningshlutafélögum og dreift mjög víða þannig að flestir borgarar landsins urðu þátttakendur. Þetta er gert í Japan þar sem fólkið er mjög að auðgast og þjóðin í heild. Við skulum þess vegna ekki deila um tæknileg atriði í þessu heldur leita leiða til þess að sameinast um að þetta verði framtíðarstefna íslensku þjóðarinnar í atvinnumálum.