05.12.1984
Efri deild: 23. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1616 í B-deild Alþingistíðinda. (1104)
188. mál, barnabótaauki
Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Hæstv. forseti. Þetta mál eins og það sem síðast var á dagskrá er einfalt í sniðum og þarfnast ekki skýringa. Það er af sama toga spunnið, þ.e. að hækka upphæðir, að vísu í þessu tilfelli beinar bætur en ekki beint að því er skatta varðar. En um er að ræða þó sömu upphæðina, þ.e. fjórðungshækkun. Það eru auðvitað allir sammála því að þetta verði gert til samræmis við verðlag- og launaþróun í landinu, enda er nefndin um það óskipt, en einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja og fylgja brtt.
Ég vil geta þess að hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir gat ekki mætt á þessum fundi vegna veikinda, en hún er einnig samþykk því að þessi hækkun verði.
Hv. þm. Stefán Benediktsson hefur flutt brtt., sem ekki kom þó beint til umr. á fundum nefndarinnar, þannig að hún tók ekki afstöðu til hennar, en fyrir hönd meiri hl. nefndarinnar lýsi ég því yfir að við munum greiða atkv. gegn brtt. og mælum með samþykkt frv. óbreytts.