05.12.1984
Efri deild: 24. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1642 í B-deild Alþingistíðinda. (1128)

188. mál, barnabótaauki

Stefán Benediktsson:

Virðulegi forseti. Má ég spyrja aftur einnar spurningar: Með hvaða rökum... (Gripið fram í.) — Þú færð að gera örstutta aths. Ég geng þess viss að virðulegur forseti muni gefa þér tækifæri til slíks. — Með hvaða rökum gengur hv. 6. landsk. þm. þeirrar trúar þegar hann er að semja við vinnuveitendur í gegnum ríkisstj. að hann sé að semja við heiðarlega menn? Ég hef ekki heyrt hann halda því fram í ræðum áður en samningar gengu í gegn að þar væri um heiðarlega menn að ræða. Allavega hefur hann séð fulla ástæðu til að gagnrýna þá nánast fyrir hvert einasta verk sem þeir hafa unnið. Og að halda því fram að menn hafi setið við samningaborðið, skrifað undir samningana í þeirri góðu trú að þeir mundu verða haldnir, það er slík bábilja að ekkert barn sem komið er á 6. aldursár eða svo mun nokkurn tíma geta trúað slíku.