06.12.1984
Sameinað þing: 30. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1648 í B-deild Alþingistíðinda. (1144)

75. mál, fræðslukerfi og atvinnulíf

Flm. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég hef ásamt hv. þm. Haraldi Ólafssyni, Davíð Aðalsteinssyni, Ólafi Þ. Þórðarsyni, Stefáni Guðmundssyni, Guðmundi Bjarnasyni og Þórarni Sigurjónssyni leyft mér að flytja till. til þál. á þskj. 75 um tengsl fræðslukerfis og atvinnulífs. Till. er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta athuga hvernig unnt er að tengja fræðslukerfið, einkum Háskóla Íslands, við atvinnulíf landsmanna framar því sem nú er.“

Till. var flutt á seinasta þingi samhljóða þessari og flutti ég þá framsöguræðu fyrir henni sem ég skal reyna að endurtaka ekki nema að nokkru leyti. Sú till. fór til n. mjög seint á þinghaldinu og n. komst ekki yfir að afgreiða hana þannig að hún hlaut ekki afgreiðslu á seinasta þingi. Þess vegna er hún nú endurflutt.

Á fjárlögunum fyrir árið í ár er varið að ég hygg milli 14 og 15% af útgjöldum fjárlaga til fræðslumála. Þetta sýnir hve geysistór útgjaldaliður fræðslumálin eru á fjárlögunum og hve útgjöld þjóðarinnar til fræðslumála eru stór þáttur sem að sjálfsögðu verður að nýta sem best m.a. á hagnýtan hátt. Það mætti með nokkrum rétti segja að vélvæðing hér á landi hafi hafist að nokkru ráði í kringum seinustu aldamót, að vísu í smáum stíl til að byrja með eins og allir vita, en smátt og smátt í vaxandi mæli. Og segja má að það hafi orðið hrein bylting í þessum efnum á þessari öld sem náði e.t.v. hámarki eftir síðustu heimsstyrjöld. Síðan hefur verið um að ræða frekari framþróun í þessum málum, þó að t.d. tilkoma tölvunnar nálgist nú byltingu sem á eftir að segja meira til sín þegar tímar líða.

Á seinustu áratugum hafa helstu atvinnuvegir þjóðarinnar, svo sem sjávarútvegur, landbúnaður, iðnaður, verslun og þjónusta, tekið flókna véltækni í þjónustu sína, þ. á m. margbrotnar og vandmeðfarnar tölvur og er ekki séð fyrir endann á þeirri þróun. Það er því augljóst að atvinnulífið kallar í sífellt vaxandi mæli á aukna starfskunnáttu og þekkingu er varðar meðferð, gæslu og viðhald hinna flóknustu véla og vélbúnaðar af ýmsu tagi. Það er því ekki óeðlilegt að spurt sé: Er þjóðin nægilega vel að sér í þessum greinum? Hefur fræðslukerfið fylgt þróuninni nægilega vel eftir eða er ástæða til að endurskoða nánar tengslin milli fræðslukerfisins og þarfa atvinnulífsins? Er fræðslukerfið nægilega aðlagað brýnustu þjóðfélagsþörfum? Þessum spurningum og mörgum fleirum þarf að svara.

Ef við lítum í kringum okkur og athugum helstu atvinnutæki íslensku þjóðarinnar blasir við hin flóknasta og margþættasta tækni af ýmsum gerðum. Það nægir að nefna fiskiskipastólinn sem er mjög nýtískulegur þótt skipin eldist með ári hverju. Hafa nú staðið miklar deilur um stærð fiskiskipaflotans og sýnist sitt hverjum. Ég álít að hann sé ekki of stór til að hagnýta það hráefni sem hægt er að afla hér við landið ef aflinn væri fluttur í vinnslu ferskur og í fyrsta flokks ástandi. Það eru verulega ónýtt tækifæri í fiskveiðum og allt of mikil brögð að því að komið sé með lélegt hráefni að landi. En það þarf stóran og vel útbúinn fiskiskipaflota til að flytja hráefnið að landi þannig að hægt sé að segja að það sé fyrsta flokks. Það ætti ekki lengur að tengja nafnið „aflakóngur“ við þá sem fiska flest tonnin, heldur við þá sem skila verðmætustu hráefni að landi með sem minnstum tilkostnaði.

Ákaflega mikil breyting hefur orðið í rekstri útgerðar á allra seinustu árum. Nægir þar að nefna þá gífurlegu breytingu sem varð með olíuverðshækkununum á árinu 1973 fyrst og síðan 1979, sem hefur valdið nýjum viðhorfum í rekstri útgerðarinnar. Í kjölfar þessa hefur fjármagnskostnaður í heiminum stórhækkað þannig að það hefur valdið í vaxandi mæli gífurlega miklum erfiðleikum að fjármagna smíði fiskiskipa þegar af þeirri ástæðu hvað fjármagnið er orðið dýrt. Hér hafa orðið á gífurlegar breytingar sem verður auðvitað að taka tillit til en hafa valdið miklum erfiðleikum í okkar sjávarútvegi eins og öllum er kunnugt.

En með hliðsjón af sífellt bættri tækni, bæði til að finna fiskinn og til allra verka um borð og til að vinna hráefnið og nýta það, þarf æ meiri þekkingu á meðferð hinna flóknustu tækja. Sífellt er verið að vinna að ýmsum þáttum útgerðar. Tæknideild Fiskifélags Íslands er t.d. þátttakandi í norrænu rannsóknarverkefni á sviði orkusparnaðar í fiskveiðum á vegum NORDFORSK sem tæknideildin er aðili að. En tæknideildin hefur ásamt Fiskveiðasjóði allar götur frá 1975 unnið að útvegun búnaðar til mælingar á olíunotkun fiskiskipa.

Á miðju ári 1976 hófust mælingar um borð í ýmsum fiskiskipum og um seinustu áramót voru orkunotkunarmælar um borð í 268 skipum, en mælarnir eru nær allir íslenskir. Það er talið að notkun þessara mæla hafi sparað 3.5% af heildarnotkun almennt. Það er erfiðara að segja beint til um sparnað við sjálfar veiðarnar, en til mikils er að vinna, því að aðeins 1% olíusparnaður á íslenska fiskiskipaflotanum jafngildir sennilega útgjöldum sem eru ekki minni en 18 millj. kr., þannig að það telur fljótt í þessum efnum.

Margir eru þeirrar skoðunar að flest skip okkar séu mjög óhagkvæm með tilliti til orkusparnaðar. Það eru mörg atriði í gerð skipanna sem hér skipta verulegu máli og mætti þar nefna atriði eins og t.d. gerð stefnis, skrúfugerð og margt fleira. Margir álíta t.d. að skrúfugerðin á okkar togaraflota sé með þeim hætti að ástæða væri til að gera þar á breytingar í mjög mörgum tilvikum. Þetta hefur verið gert. Ég er ekki verkfróður maður en mér skilst að það felist aðallega í því að stækka skrúfuna. Með því móti sé hægt að spara verulega orku, veruleg olíuútgjöld. Þetta eru aðeins dæmi um hvað hægt er að gera í þessum efnum ef að þeim er skipulega unnið.

Það er ástæða til að spyrja hver hlutur Háskóla Íslands og vísindamanna okkar í þessum málum sé, um það hvernig á að gera fiskiskip nútímans úr garði. Það væri t.d. verðugt verkefni fyrir vísindamenn og fræðslukerfið að standa að hönnun fiskiskipa og vélbúnaðar sem gæti mætt kröfum nýrra tíma og nýrrar tækni þannig að hægt sé að halda úti skipum með góðum árangri. Ef litið er til fiskvinnslunnar, sem er ein af stærstu atvinnugreinum þjóðarinnar, þá hefur tækninni fleygt fram með ótrúlegum hraða. Hins vegar er því ekki að leyna að hægt er að bæta vélvæðingu og hagræða fiskvinnslustarfseminni stórlega frá því sem nú er og er að því unnið, m.a. með því að taka tölvur í þjónustu fiskvinnslustöðvanna og nýta þær við stjórnun og annað þar sem þær koma að gagni. Það er enginn vafi á því að afkoma þessarar atvinnugreinar er ekki síst undir því komin í framtíðinni að það takist að nýta tæknina og kunnáttuna einmitt til að gera mönnum kleift að reka þessi fyrirtæki á arðbæran hátt.

Það hefur mikið verið rætt um stærð fiskiskipaflotans og það hefur mikið verið rætt um fjárfestingu í sjávarútvegi, t.d. í fiskvinnslustöðvum. Ég held að nauðsynlegt sé að menn hafi í huga að á áratugnum 1970–1980 varð hagvöxtur á Íslandi nærri því 5% á ári að jafnaði og var það með því hæsta sem gerist meðal ríkustu þjóða heimsins. Þar á ég við þær þjóðir sem eru meðlimir í Efnahags- og framfarastofnuninni í París. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi vélvæðing, bæði í fiskiskipaflotanum og einnig í fiskvinnslustöðvunum, átti þar langríkastan þáttinn þó að margt fleira hafi komið til. Hins vegar stöndum við frammi fyrir miklum erfiðleikum, m.a. af ástæðum sem ég hef lýst og öðrum sem ég fer ekki út í í sambandi við þetta mál, þar sem eru verðbólgan og erfiðleikarnir sem hún skapar. Við stöndum sem sé frammi fyrir erfiðleikum sem er býsna erfitt að ná tökum á.

En svo haldið sé áfram og komið að stjórnuninni, þá hefur tæknin og tölvan leyst af hendi á fljótvirkan hátt hin ýmsu störf og skapað ný viðhorf í stjórnunarmálum. Sama má segja um landbúnaðinn eins og fiskveiðarnar og fiskvinnsluna. Flóknar og stórvirkar vélar eru þar sífellt að koma til sögunnar og hafa margfaldað afköstin. Það þarf býsna mikla þekkingu og kunnáttu í meðferð tækja og véla til þess að búa vel nú á dögum. Ekki þarf í þessu sambandi að ræða háþróað iðntækniþjóðfélag nútímans með hinum flóknustu og fíngerðustu tækjum og tilfæringum.

Það sama hefur í raun og veru skeð í verslun og raunar hvers konar þjónustugreinum. Þar hefur tæknin einnig haldið innreið sína og það eru miklir möguleikar fólgnir í því að beisla hana á þeim sviðum. Auðvitað fer fram margþætt tilraunastarfsemi sem snertir atvinnulífið. En það er einnig þörf á að efla verkmenntun og starfskunnáttu á fleiri sviðum en þeim sem sérstaklega snerta vélbúnað og tækni. Margs konar önnur menntun og starfsþjálfun getur komið atvinnulífinu að miklu gagni, þ. á m. er brýnt að efla hönnunarmenningu þjóðarinnar, þjálfun sölumanna, stjórnunarfræði og fleiri greinar hagnýtrar verkmenningar. Síst ber að vanmeta nauðsyn skipulegrar þjálfunar starfsmanna í fyrirtækjum, enda nauðsynlegt að efla verkmennt þjóðarinnar á öllum stigum starfsskiptingar atvinnulífsins, en ekki í hinum hærri þrepum einum saman. Slík ræki við almenna verkmenntun mun leiða af sér trausta verkmenningu þjóðarinnar og gera hana hæfari til stórra átaka í arðbærri framleiðslu af ýmsu tagi.

Mér er það nokkuð minnisstætt að ég stundaði framhaldsnám við bandarískan háskóla fyrir 30 árum og gerði mér dálítið far um að kynnast því hvernig háskólar þar í landi starfa. Það sem vakti einna mesta athygli mína var hversu háskólarnir eru tengdir sterkum böndum við atvinnulífið, það kemur fram í ýmsum greinum, t.d. er tilraunastarfsemi háskólanna í mjög nánum tengslum við atvinnulífið. Haldin eru námskeið í háskólunum þar sem fyrirtækin eiga kost á að senda unga menn til að fylgjast með því nýjasta á sviði tilrauna og menntunar sem snertir þeirra starfsvettvang. Ég er ekki í nokkrum vafa um að ein af ástæðunum fyrir því að Bandaríkin eru langsterkasta framleiðsluþjóðfélag veraldar er sú að þeim hefur kannske tekist umfram aðrar þjóðir að tengja atvinnulífið við háskólana og fræðslukerfið í landinu. Þó þarf ekki að efast um að þar eru ýmsir misbrestir á.

Þrátt fyrir þörfina á sérhæfðu námi í nútímaþjóðfélagi má ekki missa sjónar á því hlutverki skólanna að koma nemendum almennt til nokkurs þroska. Hins vegar finnst mér vera álitamál hvort við eigum að halda þeirri stefnu í skólamálum sem við höfum markað, þ.e. að hafa tiltölulega langt almennt nám áður en menn fara í sérnám. Ýmsar þjóðir, eins og t.d. Bandaríkjamenn og fleiri þjóðir, haga þessum málum á þann veg að menn byrja fyrr á sérnámi en hér er á Íslandi. Það eru sjálfsagt bæði gallar og kostir við þetta, en ég er þeirrar skoðunar að við ættum að huga að því að hefja fyrr sérnám en við gerum. Ég held að það mundi skila meiri og betri árangri en það fyrirkomulag sem við búum við þó það hafi ýmsa góða kosti.

Á seinustu árum hefur orðið mikil breyting á háskólanámi að því leyti til að það eru margfalt fleiri stúdentar sem nú stunda nám við háskólana en var fyrir örfáum árum. Það hefur orðið stökkbreyting í þessum efnum. Sem dæmi um það má nefna að ég hygg að það sé ekki langt frá því að um 7000 stúdentar stundi nám við Háskólann hér og við erlenda háskóla. Það er býsna mikill fjöldi og það veltur á miklu að vel takist til um námið og ekki síst að það komi að sem hagnýtustum notum í þjóðfélaginu.

Þegar ég talaði fyrir þessu máli í fyrra gerði ég nokkra grein fyrir framhaldsskólakerfinu, hvernig það væri. Í ljós kom þegar ég fór að athuga það, og það þekkja menn, að það er býsna ólíkt í hinum ýmsu skólum. Þetta hefur kannske valdið vissum erfiðleikum fyrir Háskólann vegna þess að skólakerfin eru mismunandi á framhaldsskólastigi og dálítið erfitt fyrir Háskólann að fylgjast með undirbúningi þeirra nemenda sem koma til náms. Framhaldsskólarnir kvarta undan lélegum undirbúningi grunnskólans, Háskólinn kvartar undan lélegum undirbúningi sumra stúdenta og margir skólamenn álita að auka ætti sambandið milli hinna ýmsu skólastiga, þannig að t.d. Háskólinn þekkti betur til þekkingar væntanlegra nemenda. Það getur verið þáttur í þessu máli að skoða þetta nánar. Auðvitað er þetta í sífelldri skoðun á vegum menntmrn. og fræðsluyfirvalda en það gæti verið ástæða til að gefa gaum að þessu atriði sérstaklega.

Hinn merki skólamaður Guðmundur Arnlaugsson, fyrsti rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, sagði efnislega í ræðu sem hann flutti á ráðstefnu BHM 26. nóv. 1983 að við upphaf kennaraferils síns fyrir stríð hefðu nemendur oft brotist áfram af dugnaði og elju við erfiðar ástæður. Hann sagði að þegar hann bæri þessa gömlu vini sína saman við slakasta hluta nemenda í seinni tíð, sem létu berast með straumnum án verulegs áhuga eða hugsjónar, gæti hann ekki varist þeirri hugsun að víst væri þessu fólki hollt að ögn erfiðara væri að komast af hjalla í skólakerfinu. Hann sagði og, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég held að framhaldsskólinn verði að sætta sig við að vera víður inngöngu og reyna að gera sem best við alla sem í hann koma. En ég held jafnframt að hann ætti að vera þröngur útgöngu. Hann ætti að gera talsverðar kröfur til nemenda sinna og ekki hika við að láta þá hverfa úr skólanum sem ekki sinna þeim kröfum.“

Það er sjálfsagt að viðurkenna að fræðslukerfið hefur um margt leitast við að fylgjast með tímanum og ýmislegt hefur verið og er vel gert í þessum efnum. Margir sérskólar starfa á tæknisviðum og búa nemendur undir vandasöm störf í þágu atvinnuveganna. Má þar nefna t.d. Vélskóla Íslands, stýrimannaskólana, Tækniskólann, búnaðarskólana, og þar með búnaðarháskólann á Hvanneyri, iðnskólana, Fiskvinnsluskólann og ýmsa fjölbrautaskóla með brautir á véla- og tæknisviði. Ýmiss konar námskeið fara einnig í vöxt. Útgerðartækni hefur verið kennd við tækniskólann síðustu 6–7 árin, en annars hefur kennslu í sjávarútvegsgreinum lítið verið sinnt til þessa á æðsta stigi fræðslumála. Þó er þetta okkar þýðingarmesti atvinnuvegur.

Á Akureyri hefur tekið til starfa verkmenntaskóli. Þar eru nú við nám líklega yfir 700 nemendur og sá skóli skiptist í hinar ýmsu deildir á sviði verkmenntunar. Hv. þm. Ingvar Gíslason, þegar hann var menntmrh., undirbjó þetta mál og núv. hæstv. menntmrh. gaf út heimild í nóv. 1983 til skólans um að hann mætti útskrifa þegar á fyrsta starfsári sínu stúdenta á viðskiptasviði og síðar á uppeldis- og heilbrigðissviði.

Þá er rétt að geta þess að fyrrv. menntmrh. Ingvar Gíslason skipaði nefnd undir forustu Valdimars Kr. Jónssonar prófessors á grundvelli þáltill. sem Guðmundur Karlsson fyrrv. alþm. flutti og fékk samþykkta hér á Alþingi um að koma á fót kennslu í sjávarútvegsgreinum við Háskóla Íslands. Þessi nefnd hefur skilað áliti og er það til umfjöllunar hjá rn., að ég hygg, samtökum sjávarútvegsins og fleiri aðilum. Þá er rétt að geta þess einnig að á síðasta ári var ráðinn endurmenntunarstjóri við Háskóla Íslands og hefur hann staðið fyrir endurmenntunarnámskeiðum fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga. Iðntæknistofnun hefur einnig í undirbúningi námskeið fyrir unga menn sem gegna vandasömum störfum í iðnaði.

Það sem ég hef nú minnst á er aðeins upptalning nokkurra tilvika. Margt fleira mætti nefna í þessum efnum. Núv. hæstv. menntmrh. lýsti því yfir, þegar hún tók við ráðherrastörfum, að hún hefði áhuga á tengslum milli fræðslumála og atvinnulífs. Þegar í júlímánuði 1983 skipaði hún fjölmenna nefnd um tengsl atvinnulífs og skóla. Þessi nefnd er nokkuð fjölmenn og í hennar erindisbréfi — ég veit að ég má áreiðanlega lesa upp úr því, með leyfi forseta og hæstv. menntmrh., — segir svo:

„Nefndin fjalli um það hvernig breyta þurfi skólamenntun þannig að hún búi nemendur betur undir margs konar atvinnuþátttöku í þjóðfélagi nútímans. Það verði sérstaklega kannað á hvern hátt bein þátttaka í atvinnugreinum geti orðið hluti náms og á hinn bóginn hvort skólinn geti miðlað atvinnuvegum fræðslu með beinni hætti en nú er.“

Þetta er nokkuð fjölmenn nefnd, sem hefur unnið að gagnasöfnun í þessum málum, en það er auðvitað frumatriði að afla gagna, gera sér grein fyrir því hvernig skólakerfið raunverulega er og hvernig það starfar áður en menn eru í stakk búnir til að gera tillögur til úrbóta.

Þessi till., sem við flytjum hér, er því ekki flutt sem gagnrýni á menntmrh. seinustu ára, sem ég hygg að allir hafi haft áhuga á þessu máli, heldur í þeim tilgangi að freista þess að Alþingi lýsi yfir vilja sínum í þessum mikilvægu málum. Ég mundi gjarnan vilja mega gera grein fyrir því hvernig ég áliti heppilegast að vinna að þessu máli áfram.

Það er nú svo að það eru uppi ýmsar hugmyndir um það hvernig Alþingi eigi að starfa. Sumir telja að Alþingi eigi að starfa með þeim hætti að þm. séu heils árs menn, embættismenn, séu ekki í öðrum störfum, þingið starfi allt árið o.s.frv. Aðrir eru hins vegar þeirrar skoðunar að heppilegra sé að hafa þetta á svipaðan veg og verið hefur, þingið starfi frá byrjun októbermánaðar og fram í maíbyrjun, þm. geti verið að hluta til í öðrum störfum í þjóðfélaginu. Um þessar stefnur hafa menn deilt eins og kunnugt er. Ég er fylgismaður þess fyrir mína parta að þingið starfi með svipuðum hætti eins og gert hefur verið með einni undantekningu þó og sú undantekning er að það verði gert miklu meira af því en gert hefur verið nú um mörg ár að setja mþn. í þýðingarmikil mál. Ég álít að þetta mál sé einmitt þeirrar tegundar að ástæðá væri til að setja mþn. í málið þannig að hún starfaði milli þinga. Nefndin fengi þær upplýsingar og þær tillögur sem vinnunefnd hæstv. menntmrh. mun skila af sér, vonandi fyrr en síðar, og síðan starfi mþn. þm. að málinu því að ég er viss um það að það tekur langan tíma að vinna að þessu máli svo að vel sé. Ég vil því leyfa mér að beina því til nefndarinnar, sem verður nú sennilega hv. atvmn., málinu var vísað þangað í fyrra, að hún athugi þetta, athugi hvort ekki væri ástæða til þess fyrir Alþingi að setja niður mþn. sem hefði það verkefni á sinni stefnuskrá að auka tengsl fræðslukerfisins og atvinnulífsins.

Ég vil svo ljúka máli mínu, herra forseti, með því að ítreka og undirstrika það að ég álít að Íslendingar hafi ekki enn þá náð nándar nærri tökum á því að tengja skóla- og fræðslukerfi við atvinnulíf landsmanna. Mér er sagt að þessarar þróunar gæti einnig talsvert víða í Evrópu. Hins vegar held ég, eins og ég hef áður drepið á, að Bandaríkjamenn hafi í þessum efnum náð meiri og sterkari tökum á sínum fræðslumálum en flestar aðrar þjóðir.

Herra forseti. Ég vil svo leyfa mér að lokinni þessari umr. að leggja til að málinu verði vísað til hv. atvmn.