06.12.1984
Sameinað þing: 30. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1665 í B-deild Alþingistíðinda. (1154)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Það hefur verið talað um að forseti ætti e.t.v. að gera athugasemdir við þau ummæli sem hér hafa verið viðhöfð og gerð athugasemd við. Skv. 69. gr. þingskapa ber forseta undir vissum kringumstæðum að víta þm. ef þm. eru bornir brigslyrðum. Ég hef áður lýst því að ég tel að forseta beri að fara með gát með þetta vald og betra sé að það sé frekar vangert en ofgert í að beita því. Að sjálfsögðu getur oft verið um álitamál að ræða. En ég hygg að það sem ræður úrslitum í þessu tilfelli sé að talað var um að það nálgaðist ákveðinn verknað en ekki staðhæft að hann hefði verið framinn. Því er þessu máli lokið.