06.12.1984
Sameinað þing: 30. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1665 í B-deild Alþingistíðinda. (1155)

Umræður utan dagskrár

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Það mál sem hér er í raun til umfjöllunar er vissulega mjög alvarlegt, en ég tel að það sé farsælast fyrir okkur að spara okkur stóryrðin þangað til málið er að fullu upplýst. Ég lýsi yfir ánægju með fyrstu viðbrögð utanrrh. í þessu máli þess efnis að fá betri upplýsingar um það mál sem hér er til umfjöllunar.

Við skulum líta á hvað hefur gerst. Eftir því sem við erum upplýst um, án þess að hafa fengið nokkuð að sjá, hefur bandarískur maður, Arkin að nafni, afhent forsrh. og utanrrh. ljósrit af nokkrum blaðsíðum úr skjali og þetta skjal sagði hæstv. utanrrh. að nefndur bandarískur aðili, Arkin hefði tjáð þeim að fjallaði um heimildir Bandaríkjaforseta varðandi staðsetningu á kjarnorkuvopnum. Nú hef ég ekki séð skjalið, en maður hlýtur að spyrja sig hvort það hafi ekki ótvírætt mátt lesa af þessu skjali hvers efnis það hafi verið. Maður hlýtur líka að spyrja hvort ekki sé hugmyndin að neinir aðrir fái að sjá þessar ljósrituðu síður, sem virðast vera brot úr stærra plaggi ef ég skildi hæstv. utanrrh. rétt.

Þessi aðili, Arkin frá Bandaríkjunum, hefur áður verið með fullyrðingar um að hér væru nú kjarnorkuvopn, eins og upp hefur verið rifjað. Það reyndist rangt. Hann hefur játað að það sé rangt. Sú saga hans í þessu máli gefur auðvitað fyllsta tilefni til þess að við verðum enn þá varfærnari í umr. okkar á grundvelli staðhæfinga frá þessum aðila. Þess vegna finnst mér rangt, eins og hv. þm. Hjörleifur Guttormsson gerði áðan, að ganga út frá staðhæfingum hr. Arkin sem staðreyndum og hafa síðan uppi stóryrði í þessu máli.

Í þessu máli hlýtur það að vera meginatriði fyrir okkur að fara einmitt að eins og mér sýnist að hæstv. utanrrh. sé að gera, að fá hinar fyllstu upplýsingar um þetta mál og þá í fyrsta lagi að fá viðbrögð bandarískra stjórnvalda við því sem hér er um að ræða, en jafnframt hljóta íslensk stjórnvöld að gera það sem í þeirra valdi stendur til að afla sér sjálfstæðra upplýsinga um hvað sé hér á ferðinni. Við hljótum að hafa uppi okkar eigin eftirgrennslan. Ef hr. Arkin hefur á réttu að standa skal hann hafa þökk fyrir upplýsingarnar, en ef hann hefur enn einu sinni á röngu að standa held ég að ekki sé ráðlegt fyrir hann að koma hér öllu oftar með staðhæfingar. Meginatriði málsins er að hér er um alvarlegt mál að ræða. Því hljóta menn að taka hverjar þær ábendingar sem fram koma til athugunar til þess að afla sér fyllstu upplýsinga í málinu, og mér sýnist að hæstv. utanrrh. hafi farið hárrétt að í þessum efnum, en jafnframt hljótum við að hafa uppi okkar eigin eftirgrennslanir til að ganga úr skugga um hvað hér sé á ferðinni.

Ég vil líka ítreka það, sem ég sagði í upphafi, að mér finnst að hæstv. ráðh. hefðu kannske átt að ganga harðar að hr. Arkin en mér virðist, af því sem þeir hafa hér upplýst, um það hvernig þetta plagg væri til komið, hvernig þess hefði verið aflað. Jafnframt sýnist mér að utanrmn. -menn hljóti að gera kröfu til þess a.m.k. að þeir fái aðgang að þessum upplýsingum, þannig að þeir geti metið sjálfir hvernig þeim virðist þær vera.

Stefna íslenskra stjórnvalda í þessum efnum hefur verið mjög skýr, og hún hefur verið rifjuð upp, um það að Íslendingar vilja ekki að hér séu staðsett kjarnorkuvopn. Ég tek undir það, sem hæstv. utanrrh. sagði, að sé hér um raunverulega ákvörðun að ræða, staðfesta af Bandaríkjaforseta, er það vitaskuld brot á varnarsamningnum og brot á fleiri samkomulögum sem gerð hafa verið, og hlýtur það að teljast mjög alvarlegt. Nú vitum við ekki hvers konar viðbrögð við fáum frá Bandaríkjastjórn. Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson sagði að þau gætu sjálfsagt orðið af ýmsu tagi, eins og því að meiningin hafi alltaf verið að afla heimildar íslenskra stjórnvalda. Við skulum meta þau viðbrögð þegar þar að kemur og ef þau reynast ekki fullnægjandi, ekki svarað þeim spurningum sem við berum fram, hljótum við að halda áfram frekari eftirgrennslan. En dóma í þessu máli skulum við geyma okkur þangað til það er upplýst.

Ég sagði áðan að stefna íslenskra stjórnvalda væri skýr og ég tel að svo sé. Ég held að það gildi um alla flokka hér á Alþingi að þeir séu þeirri stefnu eindregið fylgjandi, sem hér hefur ríkt að hér skuli ekki staðsett kjarnorkuvopn. Sú stefna hefur ítrekað komið fram. Ég rifja þetta upp vegna þess að hér hefur aðeins komið til umfjöllunar hvort ástæða væri til þess fyrir Alþingi að taka af öll tvímæli um þetta atriði með löggjöf eða þáltill. Ég held menn ættu að hugsa sig aðeins um áður en þeir stíga það skref. Sannleikurinn er sá að uppi er umræða um kjarnorkuvopnalaus svæði á Norðurlöndum. Mér sýnist að löggjöf eða þál. um þetta efni væri það skref sem menn væru að stíga um leið og þeir vildu lýsa því yfir og í því fælist að menn væru hluti af kjarnorkuvopnalausu svæði. Skilningur okkar í Alþfl. hefur verið sá að við teldum mjög æskilegt að komið yrði á kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum, en við höfum ævinlega litið svo til að við ættum ekki að gera það einhliða, heldur ætti það að vera hluti af heild. Við vildum t.d. fá viðurkenningu stórveldanna á því að þau mundu virða slíkt svæði og ábyrgjast og við gerðum kröfu til þess að um einhver viðbrögð yrði að ræða, tilslakanir ef menn vilja svo kalla það, af hálfu t.d. Sovétríkjanna. Þess vegna segi ég að menn ættu að hugsa sig um áður en þeir stíga skref af þessu tagi varðandi löggjöf eða þáltill., vegna þess að mér virðist, við fyrstu sýn a.m.k., að það mundi jafngilda yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaus svæði, og það tromp vil ég eiga til að þrýsta á um frekari afvopnun í kringum okkur, en ekki að gefa slíka einhliða yfirlýsingu án þess að eitthvað komi á móti. Ég geri þetta sérstaklega að umtalsefni í tilefni af þeim umr. sem hér hafa farið fram um þetta efni og í tilefni af ummælum hæstv. forsrh.

Í ræðu sinni stakk hæstv. utanrrh. upp á því að sett yrði á fót nefnd til að fjalla um öryggismál Íslands, fyrirkomulag þeirra svo og um afvopnunarmál. Ég tel að þetta sé merk yfirlýsing hjá hæstv. ráðh. og það gæti orðið mjög til góðs að slík nefnd yrði einmitt sett á fót til að fjalla uni þessi atriði. Að því leytinu er ég mjög ánægður með að hæstv. utanrrh. skyldi taka svo til orða sem hann gerði hér áðan og gera tillögu um þetta efni. Vitaskuld er viðfeldnast í þessum efnum að frumkvæði um þetta mál komi frá ráðh. sjálfum. Ég fagna því þessari yfirlýsingu.

Herra forseti. Ég skal ekki fjölyrða frekar um þetta. Ég sagði að þær upplýsingar, sem við hefðum um þetta mál, væru ákaflega takmarkaðar. Við leggjum áherslu á að það verði upplýst. Við teljum nauðsynlegt að það verði gert með eins ítarlegum hætti og mögulegt er og að íslenskir aðilar grípi til þeirra aðgerða til að upplýsa þetta mál sem bestar kunna að verða. En dóma skulum við ekki fella fyrr en upplýsingarnar liggja fyrir og það er í raun kjarni málsins. Umr. um málið sjálft eiga að fara fram þegar það er upplýst. Nú á að ræða með hvaða hætti með skuli fara þær staðhæfingar sem fram hafa komið. Þess vegna hef ég fyrst og fremst gert það að umfalsefni í ræðu minni og látið í ljós ánægju með viðbrögð utanrrh. að því er varðar upplýsingar frá Bandaríkjastjórn, en jafnframt bent á að nauðsynlegt sé að við könnum málið sérstaklega og sjálfstætt sjálfir.