10.12.1984
Efri deild: 25. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Forseta hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 10. des. 1984.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jón Kristjánsson félagsmálafulltrúi, Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Tómas Árnason,

4. þm. Austurl.“

Jón Kristjánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og kjörbréf hans því verið rannsakað. Hann er boðinn velkominn til starfa.