10.12.1984
Neðri deild: 21. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1711 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)

133. mál, sala Landssmiðjunnar

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég tel rétt að ræða þetta mál við 1. umr. að nokkru, en ég á sæti í þeirri n. sem hæstv. ráðh. hefur lagt til að málinu verði vísað til og gefst mér þar færi á að skoða einstaka þætti þessa máls, sem er frv. til laga um heimild fyrir ríkisstj. til að selja ríkisfyrirtækið Landssmiðjuna hlutafélagi sem stofnað hefur verið til af nokkrum starfsmönnum fyrirtækisins.

Með framlagningu þessa frv. heldur hæstv. ríkisstj., hæstv. iðnrh., áfram á þeirri braut að selja ríkisfyrirtæki. Landssmiðjan er sem kunnugt er eingöngu í eigu ríkisins og hefur verið rekin síðan 1930 og gegnt verulegu hlutverki í málmsmíðaiðnaði og viðgerðaþjónustu í landinu, ekki síst fyrir ríkisfyrirtæki og skipakost ríkisins, auk þess sem fyrirtækið hefur unnið að þróun í sinni grein og sérstökum þróunarverkefnum, eins og hér hefur komið fram, m.a. í sambandi við fiskimjölsverksmiðjur.

Það er athyglisvert, þegar litið er á mál hæstv. ráðh. um þetta efni, að enginn viðhlítandi rökstuðningur og nánast engin viðleitni til rökstuðnings kemur fram hjá hæstv. ráðh. á nauðsyn að leita þeirrar heimildar sem hér er farið fram á. Hér virðist fyrst og fremst verið að þjóna hugmyndum, svo maður noti nú ekki orðið „hugsjónum“, hæstv. ráðh. og ríkisstj. um það að koma hlutafé ríkisins í fyrirtækjum í hendur einkaaðila og í þessu tilviki með stofnun hlutafélags með aðild starfsmanna Landssmiðjunnar. Ég vil taka það fram að mér finnst sú hugsun að starfsmenn eignist hlut í fyrirtækjum og aðild að rekstri þeirra og stjórnun út af fyrir sig góðra gjalda verð ef þannig er um hnútana búið að líkur séu til þess að um raunverulegan eignar- og umráðarétt sé að ræða og líkur á því að viðkomandi starfsmenn geti axlað þá ábyrgð sem felst í yfirtöku á viðkomandi fyrirtæki. Ég tel hins vegar að eins og hér er í pottinn búið með nýtt hlutafélag, Landssmiðjuna hf., sé langt frá því að nokkur trygging sé fyrir hendi að því leyti að fyrirtæki þetta hafi þann rekstrar- og þróunargrundvöll sem æskilegur væri og hlýtur að teljast út frá sjónarhóli þeirra sem við rekstrinum taka, og afstaða mín til þessa máls mótast m.a. af þeim horfum og líkum. Ég tel einnig að það séu engin frambærileg rök fyrir því að selja nú þetta ríkisfyrirtæki með þeim hætti sem hæstv. ráðh. leggur hér til. Landssmiðjan er fyrirtæki sem hefur gegnt skylduhlutverki um áratugi, lengst af verið rekin hallalaust og með ágóða. Þó að komið hafi til hallarekstrar tímabundið er þar ekki um slíkan halla að ræða að af þeim sökum sé nein ástæða til þess að hlaupa nú til og afsala hlut ríkisins, meirihlutaeign ríkisins í þessu fyrirtæki.

Ég vil minna á að í tíð fyrri ríkisstj. var unnið að málefnum Landssmiðjunnar með það í huga að renna styrkari stoðum undir Landssmiðjuna þannig að hún gæti orðið hlutgengur þátttakandi í þróun á því sviði sem henni er ætlað skv. gildandi lögum og hún gæti komið fótum undir rekstur og nýbreytni með allt öðrum hætti en verið hefur á undanförnum árum. Það gerðist raunar í tíð ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar árið 1978 að þáv. forstjóri Landssmiðjunnar, Ágúst Þorsteinsson, sneri sér til þáv. iðnrh., Gunnars Thoroddsens, með bréfi og óskaði eftir því að húsnæðismál fyrirtækisins yrðu tekin til endurskoðunar. Þar var vakin athygli á því að sótt hefði verið um byggingarleyfi á viðkomandi lóð, en þá komið synjun við þeirri ósk. Í þessu erindi var óskað eftir viðræðum við iðnrn., í fyrsta lagi til þess að fá leyfi til að selja þáverandi húsnæði og lóð í áföngum, í öðru lagi leyfi til að sækja um lóð á svæði sem hentaði smiðjunni betur og í þriðja lagi leyfi til að byggja nýtt búsnæði sem hentaði betur starfsemi smiðjunnar.

Þetta erindi hafði ekki hlotið afgreiðslu þegar ríkisstjórnarskipti urðu 1978, en ég minni á að afstaða þáv. iðnrh. Gunnars Thoroddsens til Landssmiðjunnar var jákvæð og það kom fram í máli hans hér á Alþingi í tíð ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar þar sem m.a. var til umræðu álit nefndar sem sett hafði verið á fót af fyrrv. ríkisstj. varðandi sölu ríkisfyrirtækja. Dr. Gunnar Thoroddsen, bæði sem ráðh. og síðan sem þm. og því næst forsrh., var mjög velviljaður málefnum Landssmiðjunnar og að renna styrkari stoðum undir hana og studdi þær tillögur sem fram komu í minni tíð sem iðnrh.

varðandi uppbyggingu Landssmiðjunnar. Þau áform lutu m.a. að því að koma upp nýju húsnæði fyrir Landssmiðjuna í Kleppsvík og laga það að áformum sem þá voru uppi í sambandi við skipaverkstöð í Reykjavík. Áformin um skipaverkstöð voru engan veginn ný af nálinni, heldur höfðu verið á dagskrá mjög lengi. Þann tíma, sem Sjálfstfl. fór ekki með meirihlutavöld hér í Reykjavíkurborg, var unnið að því að koma fótum undir þær áætlanir og áform sem vörðuðu uppbyggingu nýtískulegrar skipaverkstöðvar í Reykjavík. Það liggur hins vegar fyrir og hefur raunar gert lengi að enginn áhugi hefur verið hjá borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstfl. hér í Reykjavík fyrr eða síðar á að koma fótum undir nýtískulega skipaverkstöð hér, sem gæti sinnt þjónustu, ekki fyrst og fremst við fiskiskipaflotann, heldur við kaupskipaflota landsmanna. Það gerðist því eftir að Sjálfstfl. endurheimti sinn meiri hl. hér í borginni að áformin um skipaverkstöð í Kleppsvík nálægt Sundahöfn voru kistulögð af þessum sama meiri hl.

Vissulega má leiða rök að því að þessi breytta afstaða hafi haft áhrif á möguleika og áform Landssmiðjunnar til að reisa og reka með hagkvæmum hætti það húsnæði sem hannað var á árunum 1981 og byrjað var að reisa, ef ég man rétt, á árinu 1982 við Kleppsvík. Í ljósi þess voru gerðar breytingar á byggingaráformum yfir fyrirtækið og þær áætlanir lágu fyrir, áform um minni byggingaráfanga lágu fyrir þegar hæstv. iðnrh. venti sínu kvæði í kross og ákvað að láta Landssmiðjuna fylgja næsta í hópi þeirra ríkisfyrirtækja sem hann hafði sett á söluskrá, ef svo má segja, í traustu bandalagi við hæstv. fjmrh. Að vísu heyrist það, m.a. í Morgunblaðinu, að ýmsum innan Sjálfstfl. finnst hægt ganga í því hugsjónamáli flokksins að selja ríkisfyrirtæki og er það eitt af mörgu sem hæstv. fjmrh. hefur fengið nú að undanförnu ákúrur fyrir úr aðalmálgagni Sjálfstfl. En hæstv. iðnrh. ætlar að reyna að hressa upp á hugsjónina í framhaldi af því að Lagmetisiðjan Sigló var seld, að láta nú Landssmiðjuna fylgja og afsala ríkinu með öllu hlutdeild í því fyrirtæki. Má segja að hæstv. fjmrh. hafi fengið þarna stuðning og traustan bandamann sem er hæstv. iðnrh. því það er þó helst þar sem þokar fram þeim hugsjónamálum Sjálfstfl. sem ég hef minnst hér á.

Ég minni á að þegar var búið að fjárfesta í grunni nýbyggingar fyrir Landssmiðjuna við Skútuvog, sem metin er að verðgildi 66 millj. kr. á núverandi verðlagi, og það hefur komið fram við umr. um þetta mál og er vakin athygli á því í nál. minni hl. iðnn. Ed. að hæstv. fjmrh. telur með öllu óvíst að hægt sé að fá nema eitthvert brot af verðgildi þessarar fjárfestingar til baka eða með sérstakri sölu, þannig að út frá hagsmunum ríkissjóðs virðist ekki vera eftir miklu að slægjast í þessu máli.

Ég vil taka það fram að ég tel út af fyrir sig ekki hafa verið óeðlilegt að huga að breyttu rekstrarformi varðandi Landssmiðjuna að einhverju leyti. Ég kynntist því í starfi mínu sem iðnrh. að ríkisfyrirtækin sem rekin hafa verið sem hrein ríkisfyrirtæki, eins og t.d. lagmetisiðjan Sigló og Landssmiðjan, áttu undir högg að sækja gagnvart sjóðum og lánastofnunum vegna sinna beinu tengsla við ríkissjóð. Það var gjarnan viðkvæðið þegar erindi voru upp borin að það væri nærtækara að leita til hins stóra bakhjarls, ríkissjóðs, en að berja upp á hjá lánastofnunum um fjárhagslega fyrirgreiðslu. Ég tel að við þessu hefði verið auðveli að bregðast með öðrum hætti en gert er með fyrirliggjandi frv., með því að athuga um breytingu á rekstrarforminu t.d. á þann hátt að stofnað hefði verið hlutafélag þar sem ríkið hefði átt meiri hluta áframhaldandi í Landssmiðjunni, en opnuð hefði verið heimild til sölu á hluta af hlutafé fyrirtækisins til starfsmanna upp að ákveðnu marki og gerðar ráðstafanir til þess fremur að greiða fyrir því að um slíka hlutdeild gæti orðið að ræða.

Þannig hefur málum hins vegar verið háttað hjá Landssmiðjunni að starfsmenn hafa verið hlutgengir í sambandi við rekstur fyrirtækisins og málefni þess á ýmsa lund með sérstakri samstarfsnefnd sem starfandi hefur verið og í hafa átt sæti fulltrúar starfsmanna og stjórnenda fyrirtækisins, þannig að þar var um allnáið samstarf og gagnlegt samstarf að ræða að því er mér er best kunnugt. En það er engin ástæða til þess, að mínu mati, að hafa á móti því, nema síður sé, að starfsmenn í fyrirtækjum sem vilja eignast hlut í viðkomandi fyrirtæki eigi þess kost. Ég held hins vegar að hér hefði þurft að horfa til heildarhagsmuna, hagsmuna ríkisins, hagsmuna starfsmannanna og möguleika þeirra á því að gerast þarna hluthafar með virkum hætti, án þess hins vegar að dregið yrði úr líkunum á því að hægt væri að þróa og reka fyrirtækið sem nýtískulegt málmsmíðafyrirtæki á burðugan hátt til frambúðar. Ég tel nauðsynlegt að ofan í þetta mál verði farið frekar af iðnn., eins og hæstv. ráðh. hefur líka lagt til, og ég tel að hér sé rasað mjög um ráð fram með flutningi þessa frv. Ég geri ráð fyrir því að við skoðun þess verði þeirri afstöðu minni ekki breytt þó að ég sé að sjálfsögðu opinn fyrir því að líta á breytingu á rekstrartilhögun fyrirtækja almennt og opnum augum.

Ríkisaðild ein saman og ríkisrekstur er ekkert fast í hendi af hálfu Alþb. Það hefur mjög oft komið fram í umr. hér í þinginu. En við teljum hins vegar að það beri síst að útiloka að ríkið eigi aðild að rekstri fyrirtækja og geti verið þar í ýmsum greinum frumkvæðisaðili og þá gjarnan í sem nánustum tengslum við þá sem í fyrirtækjunum starfa. Hér er án rökstuðnings í rauninni verið að ganga í hina áttina út frá þeim sérkennilegu hugsjónum, sem Sjálfstfl. hefur sett framarlega á sína stefnuskrá, að útiloka ríkið nánast frá hlutdeild og rekstri í fyrirtækjum og selja þau ríkisfyrirtæki sem nú eru eða minnka hlut ríkisins í fyrirtækjunum hvað sem það kostar.