16.10.1984
Sameinað þing: 6. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (123)
13. mál, athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur
Flm. (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Á s.l. þingi gerði ég fsp. til hæstv. heilbrmrh. um það hverjar aðstæður væru hér á landi til að veita athvarf og heilbrigðisþjónustu þeim börnum og unglingum sem eru illa haldin andlega og líkamlega um styttri eða lengri tíma vegna fíkniefnaneyslu. Í svari hæstv. ráðh. kom fram að þrátt fyrir það að neyð þessa tiltölulega fámenna hóps sé vel kunn þeim, sem með heilbrigðismál barna og unglinga fara, hefur þetta því miður ekki verið gert að forgangsverkefni þar sem önnur mál hafa þótt brýnni. Af svari hæstv. ráðh. mátti þó heyra að hann hafði mikinn skilning á vanda þessa hóps og því tel ég víst að hann muni leggja því máli lið sem ég flyt hér nú, þáltill. um athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur sem er 13. mál þessa þings á þskj. 13 og er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela heilbrmrh. að skipa þriggja manna nefnd sem leggi fram ákveðnar tillögur um það hvernig best sé að veita athvarf og heilbrigðis- og félagslega þjónustu þeim börnum og unglingum yngri en 18 ára, sem eru illa haldin, andlega og líkamlega, vegna fíkniefnaneyslu.“
Meðflm. mínir að þessari till. eru hv. þm. Kristín Halldórsdóttir og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir.
Á s.l. 20 árum hefur neysla vímuefna meðal ungs fólks á Vesturlöndum færst stórfelldlega í aukana. Ætla má af könnunum að víða hafi um 80% ungmenna á gagnfræða- og menntaskólastigi neytt eins eða fleiri vímuefna í því skyni að komast í einhvers konar vímuástand. Með vímuefni er átt við einhvern eftirtalinna efnaflokka: a) Róandi efni eins og áfengi, svefnlyf, valíum og önnur róandi lyf, b) örvandi efni eins og amfetamín, kókaín og ýmis megrunarlyf, e) kannabisefni eins og marihuana og hass, d) skynvilluefni eins og LSD og meskalín, e) kvalastillandi efni eins og ópíum, morfín, heróín, kódeín, petidín og metadon, f) lífræn leysiefni eins og lím, þynni og úðunarefni, g) ofnæmis- og sjóveikilyf, h) ýmis önnur efni eins og t.d englaryk. Lengi vel vorum við Íslendingar lausir við þennan vágest ef undan er skilið áfengi og þess var ekki neytt í verulegum mæli meðal barna og unglinga. Á s.l. árum hefur þó ástandið breyst til hins verra og virðist almenn vímuefnaneysla meðal barna og unglinga fara vaxandi.
Engar tæmandi rannsóknir liggja fyrir um vímuefnaneyslu unglinga hér á landi, en þó má draga ályktanir af þeim könnunum sem gerðar hafa verið. Í heilbrigðisskýrslum, fylgiriti 1982, eru bornar saman kannanir á áfengisneyslu 1972 og 1980 og kemur þá fram að stöðugt fleiri unglingar telja áfengisneyslu eftirsóknarverða og að marktæk fylgni er á milli þessa viðhorfs og hærri tíðni eigin neyslu. Enn fremur að notkun áfengis meðal íslenskra unglinga hefur aukist verulega hin síðari ár. Unglingarnir drekka oftar og meira í hvert sinn en áður. Það var einnig ljóst af þessari könnun að áfengisnotkun fullorðinna er veruleg og vaxandi og trúlegt er að notkunarvenjur unglinga endurspegli þær venjur sem almennt tíðkast í landinu.
Árið 1970 kom fram í könnun að kannabis var nær óþekkt meðal 15 ára unglinga í Reykjavík. Síðari kannanir 1972 og 1980 sýndu að þeim unglingum, sem hafa notað kannabisefni, hefur fjölgað mikið. Enn fremur kom greinilega í ljós fylgni milli notkunar áfengis og kannabisefna.
Á allra síðustu árum hefur svo aukist verulega bæði framboð og fjölbreytni þeirra vímuefna sem eru á boðstólum og aldurshópur neytenda er orðinn breiðari. Samkvæmt upplýsingum þeirra, sem vinna að málum unglinga, er í dag hópur unglinga frá 13 ára aldri a.m.k., jafnvel yngri, sem neytir vímuefna reglulega, sumir daglega. Þessi hópur notar flest þau efni sem aðgengileg eru á markaðnum hverju sinni og neytir efnanna á ýmsan hátt. Virðist fara vaxandi sú tilhneiging að sprauta ýmsum efnum beint í æð og gildir þá einu hvort um er að ræða áfengi, muldar sjóveikitöflur, amfetamín eða annað. Grunur leikur enn fremur á því að þau efni sem eru í duftformi séu oftar en ekki blönduð öðrum efnum, eins og t.d talkúmi, til að drýgja þau eða jafnvel heróíni til að skapa stærri og háðari neytendahóp. Þarf ekki að tíunda þá hættu sem hlýst af því að sprauta slíkum efnum beint inn í blóðrásina.
Í þessum hópi eru unglingar sem flestir eru hættir í skóla og margir án þess að hafa lokið lögboðnu skyldunámi. Þeir eru ekki í vinnu eða stunda hana stopult og eru að miklu leyti lagstir út en hafast við í tilviljanakenndu húsnæði eða skjóli, eins og hitaveitukompum og þvíumlíku, sem er þeirra eina örugga athvarf. Þessir unglingar fjármagna neyslu sína á ýmsan hátt, með ígripavinnu, sölu og dreifingu vímuefna, eitthvað er um þjófnað og önnur lögbrot og sögusagnir hafa heyrst um vændi barnungra stúlkna.
Þessi harði kjarni ungra neytenda, sem er á aldrinum 11–16 ára og telur um 20–30 einstaklinga að því er talið er, hefur síðan óæskileg áhrif á svonefndan áhættuhóp sem neytir fíkniefna að staðaldri og telur marga tugi unglinga. Þar eru börn allt frá 10 ára aldri sem farin eru að nota vímuefni í einhverjum mæli og stöðugt verða þau börn yngri sem þreifa fyrir sér í þessum efnum.
Oft er um að ræða einstaklinga sem búa við erfiðar aðstæður á heimili og í skóla og koma frá láglaunahópum þjóðfélagsins. Þetta er þó ekki einhlítt því að börn, sem alist hafa upp við góðar aðstæður, geta líka ánetjast vímuefnafíkn. Það er ótrúlegt að nokkur ætli sér eða vilji verða háður vímuefnum, en það sem byrjar annað hvort sem flótti frá raunveruleika sem unglingurinn ræður ekki við eða þá sem fikt, rekið af ævintýralöngun eða löngun til að upphefja sig í augum félaganna, getur fyrr en varir orðið að líkamlegum og sálrænum bindandi vana og unglingurinn missir stjórn á neyslu sinni.
Öll þau vímuefni, sem áður voru talin upp, geta valdið líkamlegum eða andlegum skemmdum, sum ef neysla þeirra er mikil og langvarandi, önnur geta haft varanlegt og óbætanlegt heilsutjón í för með sér þótt þeirra sé aðeins neytt í eitt sinn. Dæmi um slík efni eru LSD, englaryk og sniffefni.
Mörg þeirra barna og unglinga, sem eru reglulegir neytendur vímuefna, hafa þegar beðið óbætanlegt tjón á heilsu sinni. Önnur eru í mikilli hættu. Þau ráfa um umhirðulítil og vanrækt á þeim stöðum þar sem unglingar leita saman í hjarðir, áður á Hallærisplaninu en nú í seinni tíð fremur á Hlemmtorgi og í leiktækjasölum þar í grennd, en langstærstur hluti þessa vandamáls er bundinn við höfuðborgarsvæðið. Sum eru illa haldin eða ósjálfbjarga og eiga í ekkert hús að venda vegna félagslegra vandræða. Flest þurfa þau læknismeðferð, hjúkrun og félagslegan stuðning um lengri eða skemmri tíma og þörf þeirra er brýn.
Haft hefur verið á orði að vímuefnafíkn mætti líkja við smitsjúkdóm og áður var minnst á þann áhættuhóp sem verður fyrir áhrifum af hinum harða kjarna reglulegra neytenda. Áhættuhópurinn er síðan óhjákvæmilega í tengslum við jaðarhópa, bæði í Reykjavík og úti á landsbyggðinni, sem standa fjær en eru samt í hættu. Enginn veit hvað þessir hópar eru stórir en víst er að við höfum ekki efni á því að missa eitt einasta ungmenni í súginn á þennan hátt.
Eðlileg viðbrögð til „sóttvarnar“, ef svo mætti að orði komast, eru m.a. að einangra smitberana og uppræta þann jarðveg þar sem smitsjúkdómurinn þrífst.
Vegna aldurs síns eiga þessir einstaklingar ekki greiða leið inn í heilbrigðiskerfið og er því nauðsynlegt að þar verði sköpuð sú aðstaða sem þeir þarfnast. Gera verður skyndiátak til að skipuleggja samvinnu milli heilbrigðis- og félagsmálastarfsfólks um meðferðarúrræði. Er því lagt til að nefndina skipi fulltrúi heilbrigðiskerfisins, t.d geðlæknir, fulltrúi Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar og fulltrúi frá Unglingaheimili ríkisins. Það er áætlað að nefndin muni skila tillögum sínum fyrir 1. maí 1985.
Ég álít að þarna sé e.t.v. fyrst og fremst þörf á góðum vilja og samræmingaraðgerðum miklu fremur en fjárfrekum meðferðarúrræðum og því vona ég að hæstv. heilbrmrh. muni taka þessu máli vel.