10.12.1984
Neðri deild: 22. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1736 í B-deild Alþingistíðinda. (1233)
167. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hv. þm. Halldór Blöndal kvaddi sér hljóðs til að flýta fyrir framgangi þess máls sem hér er á dagskrá og benti á að hann teldi ekki samræmi í þeirri afstöðu sem fram hefði komið til þessa máls. Ég held að það sé óhjákvæmilegt út af þessum orðum hans að fara nokkrum orðum um þetta frv. og benda á að það er í rauninni tvennt sem hérna þarf að skoða.
Annars vegar eru allir sammála um að fiskverð geti tekið gildi frá og með 21. nóvember, eins og t.d. hefur komið fram í till.-gerð hv. þm. Margrétar Frímannsdóttur og hv. þm. Karvels Pálmasonar. Hins vegar á að reyra fiskverð fast út næsta ár eða út samningstímabilið vegna þess að ríkisstj. ætlar sér bersýnilega að nota þessa fiskverðsákvörðun til að halda hlut sjómanna föstum. Brtt. okkar gengu út á það að stytta þennan tíma þannig að Verðlagsráð sjálft ákveði fiskverðstímabilið. Síðan kemur hér talsmaður stjórnarliðsins Halldór Blöndal og ræðst að stjórnarandstöðunni með offorsi í þessu máli með yfirlýsingum um að ríkisstj. sé hér sérstaklega að bæta hlut sjómanna. (Gripið fram í: Hann var nú óvenju hógvær.) Ja, heyr á endemi.
Staðreyndin er sú að það mun vera ætlun ríkisstj. með þessu frv., ef að lögum verður, að binda kjör sjómanna út næsta samningstímabil, út ágústmánuð, eða lengur en kjör sjómanna hafa nokkru sinni verið bundin. Hér er því um að ræða fantalega aðför að sjómannastéttinni í landinu, sem Sjálfstfl. beitir sér fyrir og Framsfl. hér á hv. Alþingi. Af þessum ástæðum var það sem hv. þm. Margrét Frímannsdóttir og hæstv. forseti Nd., sem nú er, Karvel Pálmason beittu sér fyrir því að flutt var hér brtt. um að fiskverð gæti tekið gildi frá og með 21. nóvember, því væri flýtt að sjómenn fengju sínar hækkanir á borð við aðra, þannig að þeir væru eins settir gagnvart kjaraskerðingarstefnu ríkisstj. og aðrir.
Stjórnarandstaðan hér var ekki tilbúin til þess að fallast á að reyra sjómenn með alveg sérstökum hætti og alveg sérstaklega hlýt ég að mótmæla þeim vinnubrögðum sem hér eru viðhöfð. Það eru eftir níu dagar af þinghaldinu til jóla. Þess er óskað af ríkisstj. að hér séu afgreidd fjöldamörg frv., kvóti, söluskattshækkun og ég veit ekki hvað og hvað og þetta mál líka. Þegar málin eiga að fá afgreiðslu hér í hv. Nd. nennir stjórnarliðið ekki að mæta til að taka þátt í atkvgr. og stjórnarandstaðan verður að hjálpa til við það að lempa mál í gegn. Þegar stjórnarandstaðan svo féllst á að hjálpa til við að afbrigði fáist fyrir málum rís hér upp varaformaður þingflokks Sjálfstfl. og efnir til umr. um þetta mál sem hafði þó fengið þinglega meðferð við 2. umr. rétt áðan. Er það ætlun stjórnarliðsins að vinna svona að afgreiðslu mála fram að hátíðum? Ber að líta svo á að þetta útspil varaformanns þingflokks Sjálfstfl. sé til marks um það hvernig stjórnarliðið ætlar að haga sér hér á næstu vikum eða voru þetta aðeins ómagaorð, var hann hér bara að skeyta skapi sínu á ræðustólnum eins og hv. þm. gerir stundum, eða ber að líta á þetta sem stefnumótun af hálfu stjórnarliðsins við að tefja fyrir málum sem ráðh. eru svo að reyna að þræla hér í gegn?
Ég mótmæli þessum vinnubrögðum stjórnarliðsins og hv. þm. Halldórs Blöndals, varaformanns þingflokks Sjálfstfl., um leið og ég undirstrika að afstaða okkar til þessa máls skýrist auðvitað fyrst og fremst af því að við viljum að það sé til þess fullt svigrúm fyrir Verðlagsráð sjávarútvegsins að ákveða fiskverðstímabil svo sem verið hefur, þannig að sjómenn verði ekki bundnir út þetta samningstímabil með sitt fiskverð og lengur en nokkurn tíma hefur verið. Þetta tel ég óhjákvæmilegt, herra forseti, að komi hér fram af minni hálfu.