11.12.1984
Sameinað þing: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1752 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)

73. mál, álver við Eyjafjörð

Fyrirspyrjandi (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svörin — og vil að vísu harma það að hvað umhverfisþættina. varðar þá var aðeins um upptalningu að ræða á þeim athugunum sem í gangi eru en litlar upplýsingar að hafa um hvað þær hafa leitt í ljós að svo komnu máli, en ég geri ráð fyrir að það muni þá koma á daginn þegar þessum rannsóknum lýkur.

Ráðh. tiltók það hér að að hans áliti komi ekki til greina að reisa álbræðslu við Eyjafjörð ef sýnt er að mengunarhætta stafi af fyrirtækinu. Í því sambandi vil ég minna á að eftir því sem mér hefur verið tjáð af umhverfismálasérfræðingum munu rannsóknir af því tagi sem hér um ræðir sjaldnast geta gefið afdráttarlausar niðurstöður, já- eða nei-niðurstöður. Óvissuþættir eru vanalega margir og niðurstöðurnar verða því að sæta mati og túlkun hverju sinni. Við getum að því er virðist ekki byggt alfarið á þessum rannsóknum. Og þá vaknar sú spurning í mínum huga hvort það borgi sig að verja þeim milljónum sem hér um ræðir til þessara rannsókna. Hvort það borgi sig ekki einfaldlega að hverfa frá þeirri hugmynd að reisa stóriðjuver í miðju landbúnaðarhéraði og verja þessu fé til einhvers nytsamlegra.

Ég hef hér nefnt þegar helstu rök sem hníga gegn því að reisa álver við Eyjafjörð og auka stóriðju hér á landi yfirleitt. Ég ætla ekki að endurtaka þau, enda er afstaða Kvennalistans í þessum málum öllum hér kunn. En það eru fleiri en hv. alþm. sem velta fyrir sér stóriðju og efnahagsmálum. Nýlega rakst ég á grein þar um eftir Birgi Árnason hagfræðing í tímaritinu Mannlíf. Vil ég hér, með leyfi forseta, lesa dálítinn spotta úr þessari grein. Þar segir:

„Í nútíma velferðarríkjum eru stjórnvöldum lagðar þær skyldur á herðar að tryggja vöxt og viðgang efnahagsstarfseminnar og gengi stjórnmálaflokka ræðst að miklu leyti af því hvernig stjórn þjóðarskútunnar ferst þeim úr hendi. Íslendingar standa nú frammi fyrir þeim vanda að viðhalda sæmilegum hagvexti þegar fiskistofnarnir í sjónum umhverfis landið eru gjörnýttir. Viðbrögð hverrar ríkisstjórnarinnar á fætur annarri hafa verið mikil áform um aukna stóriðju. Ræður þar miklu sá útbreiddi misskilningur að náttúruauðlind sé forsenda blómlegrar atvinnugreinar, en ekki síður hitt að stór orku- og iðjuver eru tilvaldar skrautfjaðrir í hatta stjórnmálamanna, enda áþreifanlegri en flest annað.

Enn sem komið er hefur ekkert orðið úr framkvæmdum því að erfitt hefur reynst að sýna fram á að jafnvel vænlegustu fyrirtækin gæfu nokkuð í aðra hönd. Af þeim sökum rær núverandi ríkisstjórn að því öllum árum að fá fjölþjóðafyrirtæki til að leggja stórfé í stóriðju hér á landi, einkum álver. Það er næsta borin von að það takist nema íslenska ríkið leggi fram verulegan skerf á móti. Sú tíð er liðin að fjölþjóðahringarnir séu sérlega ginnkeyptir fyrir fullu í yfirráðum yfir framleiðslutækni og mörkuðum og þeim þykir eftirsóknarverð trygging í því að ríkisstjórnir viðkomandi landa taki stóran þátt í fjármögnun iðjuveranna. Deilurnar um eignarhlut útlendinga í stóriðjufyrirtækjum á Íslandi eru því harla innihaldslitlar því að kostirnir í þeim efnum eru langtum færri en menn hafa ímyndað sér. Þótt einstaklingar setji yfirleitt ekki fé í vonlaus fyrirtæki er ríkisstjórnum trúandi til þess, enda sýsla þær með annarra fé. Gífuryrtar yfirlýsingar stjórnmálamanna á undanförnum árum um nauðsyn þess að fara stóriðjuleiðina í eflingu íslensks efnahagslífs auka hættuna á því að almannafé verið kastað á glæ. Um leið mundi sverfa mjög að fjármögnunarleiðum annarra atvinnugreina. Brýnasta verkefni ríkisvaldsins í hagvaxtamálum er ekki að leggja ofurkapp á aukna stóriðju heldur að tryggja að sömu arðsemiskröfur séu gerðar í öllum geirum atvinnulífsins og að framtakssamir einstaklingar eða samtök þeirra fái fé til arðbærra fjárfestinga.“

Þessi lokaorð tek ég undir og vil minna á það í leiðinni að síðasta spurning mín til hæstv. iðnrh. snerist um það hvort hugað væri að annarri atvinnuuppbyggingu í Eyjafirði en stóriðjuuppbyggingu. Kom fram í máli ráðh. að svo sé ekki, að á Eyjafjarðarsvæðinu gildi sömu reglur og um önnur svæði landsins, þar sé sami stuðningur við iðnað og annars staðar. En það kemur mér í raun og veru dálítið spánskt fyrir eyru vegna þess að nú eru ein meginrökin með álveri við Eyjafjörð þau að skapa þurfi atvinnu á þessu svæði. Því má ætla að sérstaka áherslu þurfi að leggja á atvinnuuppbyggingu á Eyjafjarðarsvæðinu fram yfir önnur svæði.

En þar sem ég mun vera búin með ræðutíma minn hér í fsp.-tíma læt ég máli mínu lokið hér um í bili.