11.12.1984
Sameinað þing: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1760 í B-deild Alþingistíðinda. (1251)

73. mál, álver við Eyjafjörð

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég var beðinn um það hér áðan að nefna dæmi þess að sú bæjarstjórn sem nú hefur ráðið Akureyrarbæ um hríð hafi svo þrengt að atvinnurekstri þar að nýr iðnrekstur hafi ekki getað risið upp. Vil ég nefna í því sambandi heildverslun Valdimars Baldvinssonar sem hefur beðið í rúm tvö ár eftir því að fá lóð fyrir iðnaðarhúsnæði þar á staðnum. Og við vitum vel hverjir þar ráða. Þar hefur m.a. Alþb. og Kvennalisti mjög komið við sögu. En hitt lýsir ástandinu þar að í atvinnumálum er að takast æ meiri samvinna milli framsóknarmanna og sjálfstæðismanna, bæði í atvinnumálanefnd Akureyrarbæjar og eins í bæjarstjórn, vegna þess litla skilnings sem Kvennalisti og Alþb. hafa á þeim málum þar sem annars staðar.

Ég vil einnig út af ummælum Stefáns Valgeirssonar taka skýrt fram að það er rétt að skoðanir eru skiptar varðandi þetta álver. Ég held hins vegar að allir sem hugsa um þau mál í alvöru leggi áherslu á það að stofna ekki til neins þess atvinnurekstrar sem geti spillt náttúrufari. En það vekur athygli að bæði forstjóri og stjórnarformaður KEA og oddviti Arnarneshrepps eru í hópi þeirra manna sem vilja skoða áliðjukostinn vandlega og það segir sína sögu.

Ég vil svo að lokum aðeins taka fram, vegna orða hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar hér áðan þegar hann sagði að meginniðurstaðan væri sú að stóriðja leysti engan vanda á Eyjafjarðarsvæðinu og ræddi um það sem einhverja niðurstöðu nefndar, sem um þessi mál hefur fjallað, að slíkt stóriðjuver er mun fjölmennara en það stóriðjuver við Eyjafjörð sem þessi hv. þm. hefur beitt sér fyrir. Atvinnurekstur í álveri við Eyjafjörð mundi gefa meiri atvinnutekjur en slippstöðin á Akureyri og Útgerðarfélag Akureyrar samanlagt og eru þau fyrirtæki þó þær máttarstoðir í atvinnulífi á þessu svæði að enginn skyldi gera lítið úr því.

Við vitum það einnig að annar atvinnurekstur sem rekinn er í þessu héraði skapar ekki hærri meðaltekjur en þær sem greiddar eru af stóriðjurekstri. Þetta eru m.a. þær ástæður sem valda því að við hljótum að íhuga vendilega hvaða skilyrði séu fyrir því að stóriðja rísi við Eyjafjörð áður en sá staður er þurrkaður út. Og ég ítreka það, sem ég sagði áðan, að allir stjórnmálaflokkar sem eiga þm. á Alþingi, Kvennalisti, Alþb., Alþfl., BJ, Sjálfstfl. og Framsfl., hafa lýst yfir stuðningi við stóriðju rétt við bæjardyrnar á Húsavík. Það liggur þar með fyrir að allir þessir flokkar vilja íhuga stóriðjukostinn þar sem þeim þykir það henta. Þar er enginn flokkur undanskilinn ef marka má ummæli manna fyrir kosningar, þegar menn eru að reyna að krækja í atkv., karlar og konur.

Svo vil ég að síðustu víkja máli mínu til síðasta ræðumanns, hv. 3. landsk. þm. Hann talaði um það hér áðan að ekki hefði verið arður af stóriðju hér á landi. Ég bið hann um að skoða vel þær upplýsingar sem fyrir liggja um gjaldeyristekjur og annað af álverinu við Straumsvík. Það hefur verið reiknað út, m.a. af Háskólanum, hver arður er af því álveri. Ég vil benda hv. þm. á að innan 2–3 ára munu greiðslur fyrir raforkuna, fyrir það rafmagn sem álverið notar, hafa greitt 3/4 af kostnaðarverði Búrfellsvirkjunar, línu og straumbreytis og annars sem þarf til að koma þessari orku til álversins. Innan 2–3 ára hafa þær greitt að fullu þann hluta skuldanna sem stofnað var til vegna þessara álvera. Ef menn vilja tala um þetta eins og staðreyndir liggja fyrir um, þá eru niðurstöðurnar aðrar en fram komu í máli þessa hv. þm. Og ég held að hann hafi alla greind, ef hann hefur viljann, til að skilja hvernig þessi mál eru vaxin.