11.12.1984
Sameinað þing: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1764 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)

73. mál, álver við Eyjafjörð

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég sé ástæðu til að koma hér aftur inn í þessa umr. vegna þeirra ummæla sem féllu hjá hv. 2. þm. Norðurl. e. og hæstv. iðnrh. nú síðast í sambandi við þá iðnþróunarnefnd sem starfaði á árunum 1981–1983 varðandi Eyjafjarðarsvæðið allt. Hæstv. ráðh. gat hennar að engu í sínu svari og nú kemur hann og segir að atvinnumálanefndir séu víða starfandi. Það má rétt vera. Þó er mér ekki kunnugt um að það sé víða á landinu sem sérstakar stjórnskipaðar nefndir vinni að því að fara ofan í saumana á atvinnuhorfum til lengri tíma litið.

Ástæðan fyrir því að þessi nefnd var sett á laggirnar var bæði áhugi heimamanna og það viðhorf iðnrn. á þeim tíma að nauðsynlegt væri að fara sérstaklega ofan í málefni Eyjafjarðarsvæðisins alls með tilliti til þeirrar umr. m.a. sem þar færi fram um þörfina á stóriðju, sem að sumra mati var talin leysa allan vanda. Niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir og ég gat þess í örstuttu máli hér áðan. Meginniðurstaðan var sú að stóriðja leysi ekki atvinnuvanda Eyjafjarðarsvæðisins. Auðvitað skiptir fyrirtæki á borð við álver og önnur stóriðja máli í víðara samhengi, það vefengir enginn. En ef ég man rétt var það, miðað við 10–15 ára tíma, innan við fjórðungur af þeim störfum sem menn töldu nauðsynlegt að yrðu til, nýjum störfum á Eyjafjarðarsvæðinu, sem fyrirtæki á borð við álver kæmi til með að leysa. Því er það eðlileg ályktun af slíku að slíkt stórfyrirtæki skipti ekki meginsköpum um þann vanda sem við er að fást í sambandi við uppbyggingu og þróun á þessu svæði.