11.12.1984
Sameinað þing: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1765 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)
161. mál, atvinnumál fatlaðra
Fyrirspyrjandi (Geir Gunnarsson):
Herra forseti. Á þskj. 166 hef ég borið fram tvær fsp. til hæstv. félmrh. varðandi atvinnumál fatlaðra.
Eins og alkunna er hefur af hálfu stjórnvalda í landinu verið gert verulegt átak á undanförnum árum til þess að auka þjónustu við fatlaða með starfrækslu margs kyns stofnana, þannig að hagur þeirra sem búa við fötlun hefur nokkuð vænkast að þessu leyti þótt margt sé ógert og lögbundin framlög til Framkvæmdasjóðs fattaðra hafi verið grimmilega skorin niður að undanförnu. En fyrir þeim þætti að hver og einn fatlaður maður, sem eitthvað getur starfað, fái vinnu við sitt hæfi hefur þó líklega verið síst séð af öllu því sem að fötluðum snýr. Er óhætt að segja að sá stóri hópur þegna þjóðfélagsins sem hefur ekki fulla starfsgetu búi í raun við viðvarandi átvinnuleysi og tölur um heildaratvinnuleysi í landinu á hverjum tíma eigi sannarlega ekki við um þennan hóp fólks. Eftir því sem ég best veit er það svo, og má það merkilegt heita, að meðal fatlaðs fólks eru það einungis hinir blindu og sjónskertu sem búa ekki við atvinnuleysi.
Enginn vafi er á því að fjölmargt fólk sem telst að einhverju leyti fatlað gæti, sjálfu sér og þjóðfélaginu öllu til gagns, tekið þátt í atvinnulífinu ef komið væri til móts við það af hálfu þeirra sem hafa með höndum framleiðslu- og þjónustustarfsemi. Í þessum efnum er ríkið stór aðili. Stöðugildi hjá ríkinu og ríkisstofnunum eru um 18 þús. og er þá átt við fastráðið fólk en starfsmenn í þessum 18 þús. stöðugildum eru um 22 þús. þar sem ekki eru allir í föstu starfi. Það er ljóst að nýta mætti marga stöðuna fyrir fólk sem býr við einhverja fötlun því að störfin eru fjölbreytileg hjá ríkinu og áreiðanlega mörg sem fólk með skerta starfsgetu til erfiðisstarfa væri fullfært um að vinna ef því gæfist kostur á og væri þjálfað til þess. Ég hygg að því miður gangi þeir sem beita sér í þágu fatlaðra í atvinnuleit oft bónleiðir til búðar þegar opinberir aðilar eru annars vegar og fái þar fremur lakari undirtektir en hjá einkarekstrinum. Á þessu þarf að verða breyting og ríkið og sveitarfélög að koma miklu meir til móts við fatlað fólk í atvinnumálum þess en verið hefur til þessa.
Með lögum nr. 41/1983, um málefni fatlaðra, er gert ráð fyrir því að þeir sem hafa notið endurhæfingar skv. þessum lögum eigi sérstakan rétt þegar til fellur starf hjá ríkinu og hafi forgang til starfans ef hæfni viðkomandi er jafnmikil og annarra umsækjenda. Þessi lög tóku gildi 1. jan. 1984 og ég held að það sé sérstök ástæða til þess að vekja athygli á þeim ákvæðum þeirra, bæði fatlaðra manna og þeirra sem ráðstafa þeim störfum sem til falla, og að fylgjast þurfi með því frá upphafi hvernig lögin eru framkvæmd. Því hef ég lagt fram svohljóðandi fsp. til hæstv. félmrh., með leyfi hæstv. forseta:
„Hversu margir fatlaðir menn hafa fengið störf hjá ríkinu á grundvelli ákvæða 24. gr. laga nr. 41 23. mars 1983, um málefni fatlaðra, varðandi forgangsrétt fatlaðra til starfa hjá ríkinu að öðru jöfnu?“
Eins og ég áðan sagði tel ég brýnt að ákvæði laga um sérstakan rétt fatlaðra manna til starfa hjá ríkinu verði meira en nafnið tómt og í því skyni m.a. nauðsynlegt að vekja athygli hinna fötluðu á þeim rétti í hvert sinn sem auglýst er starf hjá ríkinu, stofnunum þess öllum, þ. á m. ríkisbönkunum, með því að þessi réttur verði sérstaklega áréttaður í hvert sinn sem þessar stofnanir auglýsa eftir starfsfólki. Mér er kunnugt um að bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur gert um það sérstaka samþykkt að fara þannig að og þannig hefur þetta verið framkvæmt. Í hverri auglýsingu um starf er minnt á rétt fatlaðra skv. lögum. Ég tel að þetta ætti ríkið, stærsti atvinnurekandinn í landinu og með þessar skyldur skv. lögunum, einnig að gera. Það mundi hvetja fatlaða til að sækja um störf og það væri einnig áminning til þeirra sem ráðstafa störfunum að gæta réttar hinna fötluðu.
Ég held að ástæðulaust ætti að vera að flytja brtt. við lögin um að skylt sé að geta þessa réttar fatlaðra í auglýsingum. Ég held að ef vilji er fyrir hendi geti hæstv. félmrh. tryggt framkvæmdina á þennan veg og því hef ég lagt fram svohljóðandi fsp. til hæstv. félmrh., með leyfi hæstv. forseta:
„Vill félmrh. beita sér fyrir því að í öllum auglýsingum um störf hjá ríkinu verði athygli fatlaðra, sem endurhæfingar hafa notið, vakin á rétti þeirra skv. fyrrgreindu lagaákvæði?“