11.12.1984
Sameinað þing: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1769 í B-deild Alþingistíðinda. (1262)
161. mál, atvinnumál fatlaðra
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég hef litlu við að bæta öðru en að ég get endurtekið það að ég hef áhuga fyrir því að einmitt þetta atriði, sem hv. fyrirspyrjandi lagði sérstaka áherslu á, komist í framkvæmd. Ég endurtek að ég hef þegar látið undirbúa að skrifa öllum opinberum stofnunum til þess að herða á þessu atriði sem varðar atvinnumál fatlaðra.
Ég vona að þrátt fyrir að nú er að verða ár frá því að lögin tóku gildi dragi enginn í efa að í félmrn. hefur verið unnið mikið að undirbúningi þessara mála og ég geri mér miklar vonir um að sú ráðstefna um atvinnumál fatlaðra, sem ákveðin er í byrjun febrúar n.k., en er búin að vera í undirbúningi síðan í október í haust, hafi einhver áhrif í sambandi við þennan mikilvæga þátt í málefnum fatlaðra.
Ég vil einnig geta um eitt mál sem oft hefur verið til umr. á hv. Alþingi. Það er í sambandi við aðgengi fatlaðra. Fyrir þremur dögum var mér afhent opinber úttekt og skýrsla sem gerð hefur verið um opinberar byggingar á Reykjavíkursvæðinu og á öðrum stærstu stöðum á landinu um hvernig þetta húsnæði er saman sett og upp byggt varðandi aðgengi fatlaðra. Það verður að segjast eins og er að því miður er það sorgleg staðreynd hvað við erum illa á vegi stödd hvað þetta varðar. Það er alveg ljóst að það kostar stórkostlegar fjárhæðir að lagfæra þessa hluti og verður að gera það skipulega á næstu árum. Í framhaldi af þessari skýrslu, sem er viðamikil, sem ég hef gert ráðstafanir til þess að útbúa þannig að allir hv. þm. fái hana í hendur, verður að gera framkvæmdaáætlun um endurbætur á opinberu húsnæði. Það sem ég legg mikla áherslu á er að framkvæmd skipulagslaga í landinu, byggingarlaga, verði þannig í nútíð og framtíð að ekki þurfi sífellt að vera að gera endurbætur til þess að fullnægja ákvæðum laganna sem sett voru um að tryggja aðgengi fatlaðra, þannig að sífellt sé verið að endurbyggja og endurbæta nýjar byggingar sem eiga að uppfylla þetta skilyrði. Ég hef lagt áherslu á það hjá embætti húsameistara ríkisins og skipulagsstjóra ríkisins að gerð verði sérstök könnun á því hvaða arkitektar og opinberir aðilar það eru sem halda áfram að láta byggja húsnæði án þess að taka fullt tillit til þess sem lögin gera ráð fyrir.
Fjármálin ætla ég að geyma til umr. um fjárlögin, en ég vil segja að það er mín aðalstefna í þessum málum að þrátt fyrir þrengingar í fjármálum og samdrátt o. s. frv. sé lögð áhersla á að reyna að tryggja öllum stofnunum, bæði gömlum og nýjum, fyrir fatlaða rekstrarfé í fjárlögum. Það er mikilvægt og ég tel að í öllum aðalatriðum hafi það tekist.
Hins vegar má deila um framkvæmdasjóðinn. Það mál er ekki enn þá komið á lokastig. Það eru mismunandi tölur lagðar þar til grundvallar. Margir halda því fram að miða eigi við byggingarvísitölu 1. jan. 1984 þegar lögin tóku gildi og síðan aftur 1. jan. 1985 og svo koll af kolli, en grunntalan 55 millj. verði alltaf sem viðmiðunartala. Þá munar þarna æðimiklu á því sem sumir halda fram.
Ég ætla ekki að ræða það núna, en ég vona að úr þessu rætist. En alla vega er aðalatriðið að tryggja rekstur á þeim stofnunum sem fyrir eru og þeim fjölmörgu nýju stofnunum sem sífellt er verið að byggja upp þrátt fyrir lítið fjármagn. Það horfir allt í jákvæða átt í sambandi við þessi mál.
Það var farið fram á það í fjvn. að vissir þættir, bæði fyrir svæðisstjórn Reykjavíkur og aðrar svæðisstjórnir í landinu, yrðu lagfærðir þannig að svæðisstjórnirnar fengju meira fjármagn. Ég hef grun um að einhver árangur komi í ljós við afgreiðslu fjárlaga.