11.12.1984
Sameinað þing: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1772 í B-deild Alþingistíðinda. (1265)

169. mál, yfirtaka Landsvirkunar á Kröfluvirkjun

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Tímans vegna verð ég að hafa skemmri signingar yfir spurningum þessum en ég ella kysi og mun enda spara mér að lesa upp fyrirspurnirnar og bið þess vegna hv. þm. að fylgjast með á þskj.

Svar við 1. lið fsp. er að ég hef það í huga að Landsvirkjun taki við rekstri Kröfluvirkjunar og hef kannað það óformlega. Ég mun á næstunni snúa mér til meðeigenda ríkisins í Landsvirkjun og óska eftir formlegum viðræðum um hugsanlega yfirtöku Landsvirkjunar á Kröfluvirkjun.

Ég get ekki svarað 2. lið fsp. Málin eru engan veginn það langt komin að ég geti nefnt neitt verð í sambandi við sölu Kröfluvirkjunar til Landsvirkjunar.

Varðandi 3. lið fsp. telja Rafmagnsveitur ríkisins að miðað við ákveðnar forsendur — þær eru skýrðar nánar í bréfi Verkfræðistofunnar Strengs, sem ég hef í pússi mínum og hv. fyrirspyrjandi getur fengið ljósrit af ef hann æskir, og ég held að það væri fróðlegt og mundi skýra nánar það atriði sem hér um fjallar — geti virkjunin sjálf lokið við að greiða niður skuldir sínar skömmu eftir aldamót ef afl virkjunarinnar yrði aukið í 60 mw. Stærsta óvissan er gufuöflunin, en til þess að dæmið gangi upp þurfa nýjar vinnsluholur í framtíðinni að gefa af sér sem samsvarar að meðaltali u.þ.b. 8 kílóum á sekúndu af háþrýstigufu í upphafi miðað við 4% dvínun á ári.

Um 4. lið: Skuldir Kröfluvirkjunar nema um 3266 millj. kr., miðað við verðlag 20. nóv. s.l., að viðbættum áföllnum vöxtum sem reiknaðir eru og áætlaðir fram til næstu áramóta.

Um 5. lið: Hreinar tekjur Kröfluvirkjunar, fyrir afskriftir, árin 1984 og 1985 eru fyrir árið 1983 70 millj., ennþá er áætlað, og fyrir árið 1985 98.5 millj. kr. Sú tala er tekin upp úr áætlun fjárlagafrv. eins og það liggur nú fyrir.

Um 6. lið: Miðað við áðurnefnt söluverð, þ.e. núverandi söluverð á raforku eins og fram kemur í fsp., getur Kröfluvirkjunin:

a) ekki lokið við að greiða niður áhvílandi skuldir fyrir árið 2015 miðað við 5700 nýtingarstundir á ári og 30 mw. framleiðslu;

b) ekki lokið við að greiða niður áhvílandi skuldir fyrir árið 2015 miðað við 8000 nýtingarstundir á ári og 30 mw. framleiðslu.

Ég játa að þessi svör eru dálítið Delfí-kynjuð, en kannske hv. þm. ásamt mér geti ráðið frekar í þær upplýsingar sem ég hef aflað mér og hef hér í allmörgum gögnum meðferðis. Og kemur þetta þó víðar við sögu síðar í fyrirspurnunum.

Um 7. lið: Miðað við áðurnefnt söluverð á raforku getur Kröfluvirkjun hugsanlega greitt niður áhvílandi skuldir auk þeirra fjárfestinga sem talið er að þurfi til að virkjunin nái fullum afköstum, eins og segir í fsp.:

a) miðað við 5700 nýtingarstundir og 60 mw. framleiðslu tekst það árið 2012 ef raunvextir lána eru 4% og, eins og hér segir, afvöxtun kostnaðarkrafa er 5% — og er nýtt tæknimál í bókfærslu fyrir mig að segja, kann vel að vera að síðari tíma viðskiptafræðingar skilji þetta auðveldari skilningi en ég. — Ef vextir eru 6% eða hærri tekst það ekki fyrr en árið 2015;

b) miðað við 8000 nýtingarstundir og 60 mw. framleiðslu tekst það árið 2008 miðað við 4% raunvexti lána og 5% afvöxtun, en ekki fyrr en árið 2015 ef vextir eru 6% eða hærri;

c) miðað við 8250 nýtingarstundir og 60 mw. framleiðslu tekst það árið 2005 með 4% raunvöxtun lána og 5% afvöxtun, árið 2013 með 6% vöxtum, en ekki fyrr en árið 2015 með 8% vöxtum.

Um 8. lið: Verkfræðistofan Strengur hefur einnig reynt að meta framleiðslukostnað á þeirri raforku sem fengist við stækkun Kröfluvirkjunar. Í stuttu máli sagt, þá getur hann orðið sambærilegur og frá hagkvæmustu vatnsaflsvirkjunum landsins, ef nýjar vinnsluholur í framtíðinni gefa af sér að meðaltali a.m.k. 6–7 kíló á sekúndu í upphafi af háþrýstigufu miðað við 4% dvínun á ári.

Um 9. lið: Varðandi gildi Kröfluvirkjunar fyrir rekstur byggðalínukerfisins er mat Rafmagnsveitna ríkisins eftirfarandi:

Rekstraröryggi byggðalína. Kröfluvirkjun hefur vegna staðsetningar sinnar mjög mikið gildi í þá veru að auka rekstraröryggi á byggðalínum. Sé hún ekki tengd landskerfinu leiða allar bilanir á byggðalínunum á álagstíma til straumleysis hjá einhverjum notendum nema bilun á kaflanum frá Akureyri að Hryggstekk á Austurlandi. Ef Kröfluvirkjun er hins vegar inni má reikna með að kerfið þoli allar bilanir á byggðalínum nema á fyrsta kaflanum, þ.e. á Skarðsheiðarlínu. Kröfluvirkjun eykur þannig verulega stöðugleika landskerfisins. Að auki er virkjunin mikilvæg vegna launaflsframleiðslu og spennustýringar á byggðalínunum.

b) Töp á byggðalínum. sparnaður í minni afltöpum á byggðalínunum getur numið 5–6 mw. ef framleidd eru 30 mw. í Kröfluvirkjun inn í landskerfið. Svarar það til 15–20 gígawattstunda í minni orkutöpum á ári. Raunverulegur sparnaður er þó vitanlega háður því hvernig framleiðslugeta Kröfluvirkjunar er nýtt.

Rétt er að benda á það að í skýrslu Verkfræðistofunnar strengs frá maí 1983 er gengið út frá því að svonefnt suðvestursvæði geti staðið undir nægu gufumagni fyrir vél 2 í Kröfluvirkjun. Nú er ljóst að svo verður ekki þar sem svæðið er mun afkastaminna en áætlað var. Frekari gufuöflun mun beinast að Leirbotnasvæðinu og er töluverðri óvissu undirorpið. Að óbreyttu skipulagi munu Rafmagnsveitur ríkisins stuðla að því á næstu árum að áfram verði reynt til hins ýtrasta að afla nægilegrar gufu fyrir Kröfluvirkjun. Nýjar rannsóknir á kviku, gasinnihaldi og jarðvökva Leirbotnasvæðisins benda til þess að umtalsverð dvínun hafi orðið á gasmagni þar. Rafmagnsveitur ríkisins telja því eðlilegt að þreifað verði fyrir sér með gufuöflun á Leirbotnasvæðinu á næstunni. Er þá vænlegt að reyna svæðið í námunda við holur nr. 4 og 10 sem báðar eru mjög afkastamiklar. Vatnsaflsvirkjanir eru að öðru jöfnu, segir hér, öruggari og áreiðanlegri í uppbyggingu þetta er álit Rafmagnsveitna ríkisins — heldur en gufuvirkjanir, ekki síst eins og málin hafa þróast við Kröfluvirkjun, en þar hefur eldvirkni tvímælalaust haft áhrif á gufuöflunina.

Ég vil nú að vísu skjóta því hér inn í að vatnsaflsvirkjanir eru því aðeins öruggar að úrkoma sé næg. Rétt er að benda á það að nýleg gengisfelling og almennar kaupgjalds- og verðlagshækkanir hafa áhrif á niðurstöðu þessara útreikninga til hins verra fyrir hag Kröfluvirkjunar. En aftur á móti, vegna gengisfellingarinnar og áðurnefndra hækkana er á næstunni væntanleg hækkun á gjaldskrá Landsvirkjunar. Mun sú hækkun að sjálfsögðu breyta áðurnefndum niðurstöðum til hins betra fyrir Kröfluvirkjun. Hefði t.d. 14% hækkun þau áhrif að unnt reyndist að greiða upp skuldir Kröfluvirkjunar miðað við 30 mw. framleiðslu og 8000 nýtingarstundir undir lok athugunartímabilsins, eða um 2015, miðað við 4–5% vexti.

Síðan er ég í tíunda lagi spurður hvort ég hyggist, ef af afhendingu Kröfluvirkjunar til Landsvirkjunar verður, setja einhver skilyrði um áframhaldandi rekstur og uppbyggingu virkjunarinnar. Það er of snemmt fyrir mig að sitja fyrir svörum um þetta atriði, en ég trúi að hún verði því aðeins seld og yfirfærð til Landsvirkjunar að Landsvirkjun sjái sér hag í því að reka þetta fyrirtæki í framtíðinni.

Í ellefta lagi er ég spurður: Þarf yfirtaka Landsvirkjunar á Kröfluvirkjun, með þeim kjörum sem ríkið hyggst bjóða, að leiða til breytingar á raforkuverði til almennra nota í landinu? Þótt menn hafi ekki gert upp við sig þau kjör, sem þessi virkjun kann að vera boðin á, þá má það ekki verða.