11.12.1984
Sameinað þing: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1782 í B-deild Alþingistíðinda. (1273)
185. mál, áhrif ákvæðislaunakerfa á heilsufar
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Út af fsp. hv. 4. þm. Suðurl. get ég sagt að ég tel sjálfsagt að athuga að gefa þessa skýrslu út. Hins vegar vil ég taka fram, eins og kom fram í svari mínu, að þessi skýrsla er fyrst birt 4. des. s.l. og ég hef því miður ekki enn þá fengið sjálfur eintak í hendurnar af skýrslunni frá nefndinni.