11.12.1984
Sameinað þing: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1782 í B-deild Alþingistíðinda. (1274)
185. mál, áhrif ákvæðislaunakerfa á heilsufar
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Örfá orð. Ég vil upplýsa að þessi bæklingur sem 4. þm. Suðurl. er að vitna til, var kynntur á þingi Alþýðusambandsins og jafnframt skorað á verkalýðsfélög að kaupa a.m.k. eitt eintak fyrir hvern félagsmann sem ynni í fiskvinnslu. Upplagið var 5 þús. eintök og þau seldust upp á þinginu. Hygg ég að það ætti þá að vera nokkurt öryggi fyrir því að þetta kæmist í hendur þeirra sem við þessi störf vinna.
Hitt er athyglisvert og nánast ógnvænlegt, að við þennan undirstöðuatvinnuveg Íslendinga skuli atvinnusjúkdómar þeirra kvenna sem bónus stunda í fiskvinnslu vera 71%. Ég held að niðurstöður þessa bæklings gefi til kynna að hjá því verði ekki komist að gera rækilega úttekt í þessum efnum og það liggi fyrir endanlega staðfest að þarna ríkir ákveðið ófremdarástand.
Ég vil aðeins upplýsa að Verkamannasamband Íslands hefur í undirbúningi ráðstefnu meðal fiskvinnslufólks þar sem niðurstöður þessa bæklings verða sérstaklega til umræðu. Einstaklingsbundinn bónus í því formi sem hann er nú hefur löngum, að margra áliti, verið álitinn mjög gallaður, en jafnógnvekjandi tölum og hér liggja fyrir hefðu satt að segja fáir trúað. Ég legg því áherslu á að jafnhliða því sem ég lofa því að beita mér fyrir því að þetta verði rækilega rætt í samtökum verkafólks, sem hlut eiga að máli, fylgist ráðh. líka með, og ég veit að hann gerir það, hvaða ráðstafanir hægt er að gera til úrbóta ef ekki á að afnema þennan bónus algerlega-og það kemur fullkomlega til greina.
Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri, en hitt er umhugsunarvert, þegar svona skuggalegar tölur koma upp úr könnun, hvort við þyrftum ekki að gera meira að því að kanna vísindalega áhrif atvinnusjúkdóma, áhrif vinnuumhverfis og ganga síðan í gagngerðar endurbætur. Trú mín er sú að slíkar rannsóknir, eins og hér hafa verið gerðar og er það vel, hafi meira gildi í reynd en heilar spítalabyggingar. Ég held að það sé verkefnið sem öðru fremur liggur fyrir okkur að átta sig á hvar vandinn er og komast síðan fyrir hann í tíma.
226). — Hvernig ræða skuli.
Að till. forseta var ákveðin ein umr.
Skóg- og trjárækt á Suðurnesjum, þáltill. 202. mál (þskj. 231). — Hvernig ræða skuli.
Að till. forseta var ákveðin ein umr.
Geymsla kjarnorkuvopna á íslensku yfirráðasvæði, þáltill. 204. mál (þskj. 239). — Hvernig ræða skuli.
Að till. forseta var ákveðin ein umr.
Nýjar hernaðarratsjárstöðvar á Íslandi, þáltill. 206. mál (þskj. 241). — Hvernig ræða skuli.
Að till. forseta var ákveðin ein umr. Afgreiðsla mála úr þingnefnd.