11.12.1984
Sameinað þing: 32. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1784 í B-deild Alþingistíðinda. (1285)

45. mál, bætt merking akvega

Flm. (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um bætta merkingu akvega, sem er 45. mál Sþ. á þskj. 45. Tillgr. er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir átaki til að bæta merkingu akvega á landinu, setja upp aðvaranir við hættulegar ökuleiðir þar sem þær vantar eða þær eru ófullnægjandi og samræma allar merkingar vega alþjóðlegum reglum.“

Grg. með till. er stutt, herra forseti, en segir þó flest sem segja þarf að mínum dómi. Þar segir, með leyfi forseta:

„Mikið vantar á að leiðbeiningar- og aðvörunarmerkingar á íslenskum akvegum séu eins og best verður á kosið. Einkum og sér í lagi á þetta við um fjallvegi og ýmsar fáfarnari leiðir. Vaxandi umferð á þjóðvegakerfinu í heild gerir umbætur í merkingum nauðsynlegar og aukin umferð útlendinga með tilkomu bílferja og vaxandi umsvifum bílaleiga gera þörfina á alþjóðlegum merkingum og aðvörunum aðkallandi.

Tíðum óhöppum og slysum, sem í mörgum tilfellum má rekja til þekkingarleysis á viðkomandi akstursleiðum, mætti að líkindum fækka verulega með bættum merkingum sem skiljanlegar væru jafnt íslenskum sem erlendum ferðamönnum.

Þær merkingar, sem þóttu fullnægjandi á dögum brautryðjenda fjallaferða á landinu, eru það engan veginn í dag þegar segja má að landið liggi opið fyrir alþjóðlegri umferð. T.d., segir orðið „jeppavegur“, þannig skrifað á krossviðarspjald, erlendum ferðamanni harla lítið um eðli og ástand viðkomandi vegar, enda ekki óalgengt að hitta fyrir á vegum, þannig merktum, erlenda ferðamenn í vandræðum á vanbúnum bílum.

Sérstökum viðvörunum um hættuleg jökulvötn, sandbleytu, sandstorma, snögg veðrabrigði á hálendinu og fleira því um líkt þyrfti að koma eftir því sem fært er á veggspjöld og á veggkort og gefa ítarlegri upplýsingar í handbókum.

Nauðsynlegt er að vinna að þessu í nánu samstarfi við ferðamálayfirvöld, ferðafélög, náttúruverndarráð, landeigendur og aðra sem málið varðar.“

Við þetta þarf ég ekki miklu að bæta. Ég hef rætt þetta mál lítillega við starfsmenn umferðarmálaráðs og fleiri aðila sem kunnugir eru ástandinu í þessum efnum og ég hygg að ég megi segja að það hafi verið samdóma álit að átaks væri þörf í þessum efnum. Það er mín skoðun að okkur sé illa stætt á því, Íslendingum, að auglýsa landið okkar upp sem paradís ferðamanna, ekki síst óbyggðirnar, ef við ekki gerum allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi þeirra sem sækja okkur heim og reyndar okkar sjálfra í leiðinni.

Hér er ekki um kostnaðarsamar aðgerðir að ræða í sjálfu sér. Þvert á móti tel ég að verulega úrbót megi gera í merkingum t.d. hálendisveganna með tiltölulega litlum kostnaði. Það ber að hafa í huga að leiðangrar til aðstoðar bágstöddum ferðalöngum geta á móti kostað mikla peninga. Því er til nokkurs að vinna að fækka slíkum tilfellum.

Ég ætla ekki, herra forseti, að hafa að svo stöddu fleiri orð um efni þessarar till. Ég vænti þess að hún njóti velvilja hér á hv. sameinuðu þingi og fái liðlega afgreiðslu í nefnd. Ég segi þetta að gefnu tilefni.

Að loknum þessum hluta umr. legg ég svo til að málinu verði vísað til hv. allshn.