12.12.1984
Efri deild: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1823 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)
187. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Albert Guðmundsson:
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. fjh.- og viðskn. fyrir skjót og vel unnin störf í sambandi við afgreiðsluna á því frv. til l. sem hér er á dagskrá um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekju- og eignarskatt. Ég vil ekki lengja þessar umr., enda væri það rangt af mér, en ég vil aðeins leiðrétta smámisskilning sem kom fram hjá hv. 11. þm. Reykv. Það er nú ekki hægt um vik að greiða 200 millj. í auknum barnabótum. Við erum ekki farnir að greiða út úr ríkissjóði. Við erum að minnka ríkissjóðstekjur en við erum ekki með peninga í höndunum sem við getum greitt frjálst í þetta eða hitt. Við verðum þá fyrst að innheimta það, lækka þá niðurfellingu úr 600 millj. í 400 til að ná þessum 200 millj. inn til að geta greitt þær í auknum barnabótum. Það getur vel verið að það sé það sem hv. þm. átti við, en þetta er ekki sú leið sem við höfum valið. A.m.k. hefur mér ekki dottið í hug að fara þá leið og ég hef ekki heyrt um hana á þessu stigi. Ég skal ekki dæma um það hvort sú leið sem ég hef valið er endilega sú besta. Eins og fram kom hjá hv. 3. þm. Norðurl. v. koma ýmsar leiðir til greina. Þetta er leið sem við höfum valið og þetta er vissulega leið, en það var bara engin, leið valin til slíkrar lækkunar af síðustu ríkisstj. Nú er þó verið að fara þessa leið til að lækka tekjuskattinn. En það var engin leið farin af fyrrv. ríkisstjórn þó að nú komi fram frá fyrrv. stjórnarsinnum að ýmsar leiðir komi til greina.
En ég er ánægður með það að jafnvel þeir sem eru ábyrgir fyrir því að hafa ekki farið neinar leiðir í þessa átt áður fyrr eru þó sáttir við þá leið sem hér hefur verið valin. En ég vil líka leiðrétta það að hér er ekki um skattskipti að ræða. Eins og hv. alþm. öllum er ljóst voru fjárlögin fyrst lögð fram með skattaskiptum, eins og hv. 3. þm. Norðurl. v. gat um. Það stendur í fjárlagafrv. að fella skuli niður tekjuskatt að upphæð 600 millj. kr. og innheimta þá upphæð með óbeinum sköttum. En þetta hefur breyst eins og allir hv. þm. vita. Innheimtan á móti er fallin niður þannig að 600 millj. kr. Tekjumissir vegna lækkunar tekjuskatts blasir við ríkissjóði.
Hitt er svo annað mál að það verður vonandi — ég veit þó ekki hvort ég þori að vona það — það verður líklega samþykkt að endurgreiða sjávarútvegi um 500 millj., eða einhvers staðar á milli 400 og 500 millj. kr., í uppsöfnuðum söluskatti. Og á móti þeim tekjumissi hefur komið fram frv. um að hækka söluskatt um 1/2%. Það er ekki gert vegna þess að tekjuskattur er lækkaður. Ég vildi bara að þetta kæmi ljóst fram.