12.12.1984
Efri deild: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1825 í B-deild Alþingistíðinda. (1309)

187. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég kem hér aðeins út af spurningu hv. þm. Karls Steinars Guðnasonar sem var: Hvernig á að jafna mismuninn milli þeirra hjóna annars vegar þar sem bæði vinna úti og hins vegar þar sem aðeins annað vinnur úti og hitt kemst ekki út að vinna, t.d. sökum gæslu vanheils barns? Ég var einmitt að gera till. um það hér áðan í ræðustól að í stað samsköttunar yrði þessu fé varið til greiðslu barnabóta. (Gripið fram í.) Nei, samkvæmt sömu tekjuviðmiðunum. Ekki til allra, heldur með tekjuviðmiðunum eftir þörf hverju sinni, þannig að féð væri í raun greitt til þess sem heimavinnandi væri og hann eða hún — í flestum tilfellum hún — gæti sjálf valið hvort hún notaði þetta fé til að kaupa gæslu fyrir þann sem bindur hana heima eða notað það á annan máta. Það var það sem ég var að tala um.

Ég hreyfði þeirri hugmynd líka að greiða laun til heimavinnandi kvenna, að ríki og sveitarfélög gerðu það. Það mundi leysa stóran vanda í margs konar lagasetningu, en það leysir örugglega ekki fjárhagsvanda ríkissjóðs. Ég er hrædd um að íslenska ríkið færi á höfuðið ef það yrði gert. Þar yrði um gríðarlegar fjárhæðir að ræða. En þetta eru tillögurnar sem ég var að minnast á í staðinn fyrir það fyrirkomulag sem í frv. er.

Upphlaup hv. þm. Árna Johnsen í hvert sinn sem Kvennalistakonur fara í ræðustól í þinginu eru fróðlegt rannsóknarefni. Kannske verða þau fróðlegt rannsóknarefni í kvennafræðum framtíðarinnar, en efnislega eru þau ekki svaraverð.