12.12.1984
Efri deild: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1826 í B-deild Alþingistíðinda. (1311)
201. mál, tímabundið vörugjald
Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Virðulegi forseti. Hv. fjh.- og viðskn. Ed. hefur fjallað um mál þetta, sérstakt tímabundið vörugjald heitir það fullu nafni. N. hefur orðið ásátt um að mæla með samþykkt þessa frv. og rita allir nm. undir nál. Hv. þm. Stefán Benediktsson sat fundi n. er málið var rætt og lýsir sig samþykkan áliti n., en einstakir nm. áskilja sér þó rétt til að bera fram brtt. eða styðja till. sem fram kynnu að verða bornar.
Þetta mál er gamalkunnugt. Þetta sérstaka tímabundna vörugjald er nú hartnær tíu ára og hefur fremur hækkað heldur en hitt. Þetta er afturganga sem menn hafa ekki komið fyrir enn þá, en vonandi verður nú höfuðið einhvern tíma af henni höggvið og komið við þjóhnappana.
Þetta er að mínu mati ein þeirra löggjafa sem hefur valdið miklu tjóni í þessu þjóðfélagi. Það hefur verið svo, nú hátt á annan áratug, að samhliða gengisfellingum hafa stjórnvöld alltaf fundið upp á því snjallræði að hækka vöruverð með nýjum skattaálögum til þess að keyra verðbólguna enn þá hraðar upp á við. Væntanlega hefur það þó ekki verið tilgangurinn, heldur hitt að bjarga þeirri skepnu sem alltaf á fyrst að fóðra, þ.e. ríkissjóðnum, við halla. Þetta hafa verið kennisetningar, sem sérstakir sérfræðingar allra ríkisstj. um langt skeið hafa haldið mjög á loft, að í baráttunni við verðbólguna ríði á því fyrst og síðast að tryggja að ríkið yrði rekið með greiðsluafgangi eða a.m.k. hallalaust þó að það hafi raunar aldrei verið vegna þess að það hafa alltaf verið fölsuð fjárlögin, fundið upp á að setja lánsfjáráætlanir og sérlög um alla skapaða hluti og gera fjárlög aldrei upp með réttum hætti. Það er ekki heldur gert nú, eins og birtist raunar í fjárlagafrv., þar sem reikningsreglur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru sýndar. Þar sést að þetta er allt sýndarmennska með þennan hallalausa ríkissjóð. Það er deila um keisarans skegg. Þetta er allt saman gert upp með röngum hætti. Það hefur hæstv. fjmrh. verið svo kjarkaður að sýna með því að birta réttar útreikningsreglur í sjálfu fjárlagafrv., reglur þær sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sett.
Í annan stað hefur sú speki verið við lýði núna á annan áratug að brýna nauðsyn bæri til að frysta sem mest af sparifé landsmanna. Það væri líka leiðin til að ráða við verðbólguna að hafa helst enga peninga í umferð nema þá á svartamarkaði eða þá að taka þá í geymslu til bráðabirgða og úthluta þeim svo eftir geðþótta stjórnvalda og aldeilis ekki alltaf til arðvænlegra hluta eða þeirra arðvænlegustu. Af þessu súpum við nú seyðið og höfum sopið.
Þegar hæstv. núv. ríkisstj. var mynduð í fyrra held ég að hún hafi gert nákvæmlega rétt að reyna að ráða niðurlögum verðbólgu með nokkuð snöggum hætti. Hún samþykkti að launþegar fengju 8% kauphækkun strax og síðan 4% í októbermánuði. Þetta gátu launþegar búið við. Það hefur víst birst opinberlega að ég setti það að skilyrði fyrir stuðningi við þessa ríkisstj. eða öllu heldur stjórnarstefnuna, því að stjórnin hafði ekki verið mynduð og ég vissi ekkert hverjir yrðu ráðh. eða neitt slíkt, að fyrsti liður í svokölluðum mildandi aðgerðum yrði sá að neysluskattar, sem legðust með mjög miklum þunga á brýnustu lífsnauðsynjar heimilanna, yrðu lækkaðir. Þetta var því miður ekki gert nema í mjög litlum mæli í fyrrahaust. Hins vegar vann hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar mjög mikið starf í fyrra fyrir áramótin að athugunum á því hvernig uppfylla mætti þetta fyrirheit hæstv. ríkisstj. og fjmrn. og hæstv. fjmrh. veitti þar alla aðstoð sem um var beðið og miklir útreikningar bárust okkur. Ég vil sérstaklega taka það fram að stjórnarandstöðuþingmenn unnu í þessu nákvæmlega jafnt og við stjórnarþm. og lögðu á sig mjög mikið erfiði til að reyna að samræma tollskrá og lækka þessi fávíslegu gjöld á brýnustu nauðsynjar, eins og fjölda matvörutegunda og alla þá smáhluti sem hver einasta fjölskylda þarf að nota og í mörgum tilfellum fátæku fjölskyldurnar og þær barnmörgu miklu meira magn af en hinir sem við betri hag búa.
Að þessu var unnið sleitulaust og við gerðum okkur vonir um það um þetta leyti í fyrra að eitthvað mundi rofa til í þessum frumskógi. Það gerði það ekki og því miður bar hæstv. ríkisstj. ekki gæfu til þess að lækka þessar gífurlegu álögur á launafólkið fyrri hluta þessa árs og því fór nú sem fór í þessum kjaradeilum sem öllum urðu til ógæfu og þá ekki síst ríkisvaldinu sjálfu og ríkissjóði. Því að það er nú einu sinni svo, þó að sumir hagfræðingar hérlendir vilji ekki viðurkenna það en þori þó ekki að mótmæla því, að ríkisútgjöldin eru ekkert annað, þegar upp er staðið, en annars vegar launagreiðslur og hins vegar gjaldeyrisnotkun. Ef þess vegna var unnt fyrir launamenn að sætta sig við minni kauphækkanir og gengið gat haldist stöðugra varð útgjaldahlið ríkisins auðvitað lægri alveg á sama hátt og tekjuhliðin. En þennan einfalda sannleika má nú ekki segja eða a.m.k. vilja þeir það ekki sem hafa haft meginráðin í þennan langa tíma, þennan upplausnaráratug, framsóknaráratug, ofstjórnaráratug eða hvað menn vilja nú kalla það. Þess vegna var líka komin fátækt á Íslandi áður en þessi hæstv. ríkisstj. tók við völdum.
Þegar við ræðum um skattamálin finnst mér dálítið skrýtið að jafnvel alþýðusamtökin leggja ekki neina megináherslu á að reyna að nota skattamál til að hjálpa þeim sem erfiðast eiga. Það er ekki það fólk sem borgar t.d. tekjuskattinn. Það er venjulega tekjuskattslaust fólk eða með mjög lítinn tekjuskatt. Það borgar reyndar útsvör og öll möguleg önnur gjöld. Þess vegna hef ég haldið því fram að undir þeim kringumstæðum sem við höfum búið við núna síðustu 2–3 árin, þar sem tekjur hafa rýrnað svo mjög, er meginástæða til að lækka þá neysluskatta sem leggjast með gífurlegum þunga á lágtekjufólkið. Þess er að gæta að auðvitað hefur lækkun tekjuskatts áhrif í þá átt að hægt er að ná skynsamlegum kjarasamningum, eða hóflegri skulum við segja. Fólk getur sætt sig við lægri laun ef það borgar lægri tekjuskatta, og að þessu einbeita sér nú allir að lækka tekjuskattana.
Það er eiginlega orðið nokkuð einróma álit, virðist vera, allra í þjóðfélaginu, að einmitt nú beri brýna nauðsyn til að lækka tekjuskatta. Ég hefði haldið að nær hefði verið að hækka skattfrelsismörkin, skattleysismörkin á tekjusköttum, en ekki endilega á þessum tíma að keppa að því að afnema tekjuskatt þó að auðvitað sé hann hvimleiður og beri að huga að því og þá sérstaklega að reyna að koma á meira réttlæti í innheimtu hans.
Lækkun neysluskattana, það sem við höfum verið að reyna að vinna að, það sem hefur verið unnið að í fjmrn. undir handleiðslu hæstv. fjmrh. þó að hann framkvæmi það ekki, telji sig ekki geta það eða hvað sem því veldur, hefur auðvitað tvöföld áhrif í baráttunni við verðbólguna. Hún hefur sömu áhrifin og lækkun tekjuskattanna að því leyti að fólk getur lifað við lægri laun, af því að vöruverð verður lægra, alveg eins og það getur lifað við eitthvað lægri laun af því að skattarnir eru lægri. En neysluskattalækkunin hefur líka þau áhrif að verðlag verður beinlínis lægra og verðbólgan er þess vegna viðráðanlegri. Ef þessu úrræði hefði verið beitt í fyrra eða á fyrri hluta þessa árs er ég sannfærður um að það hefðu náðst heilbrigðir kjarasamningar og verðbólgan væri kannske komin niður undir núll. Við hefðum unnið fullnaðarsigur. Þá var að vísu boðin 1200 millj. tekjuskattslækkun á lokastigi. Það hefði sjálfsagt gert það að verkum líka að við hefðum náð sæmilega hóflegum kjarasamningum, en það hefði ekki verkað jafnmikið á verðlagsþróun og verðbólgu og 1200 millj. kr. lækkun á neyslusköttum. Ef slík lækkun hefði verið boðin og hún hefði verið framkvæmd og laun hefðu kannske ekki hækkað nema um 6% gegn því að vöruverð lækkaði sem svaraði 2, 3 eða 4% í kaupmætti, þá væri verðbólgan líklega búin og við stæðum alls ekki frammi fyrir þessum vanda sem við sjáum nú fyrir okkur.
Um þetta gæti ég auðvitað talað í allan dag, en skal ekki tefja tímann, enda er hann naumur. Ég vona nú samt að menn hugleiði þetta mál þangað til í óefni kemur aftur. Þessi ríkisstj. lofaði mér því og flokkur minn að þetta yrði gert. Það var sett sem fyrsti liður í mildandi aðgerðum og ég studdi þann stjórnarsáttmála á þeirri forsendu. Það var öllum ljóst í mínum flokki og var raunar birt opinberlega. Ég ætla þess vegna, hæstv. fjmrh., að vænta þess að þó að þetta hafi ekki tekist núna verði haldið áfram endurskoðun tollskrárinnar og strax í byrjun vorþingsins eða nú eftir jólaleyfi verði tekið til við að finna það út með hvaða hætti megi bæta kjör í þessu landi á þann veg að lækka þessa okurtolla og skatta á brýnustu lífsnauðsynjar alls fólks í þessu landi. Það hafa verið gerðir miklir útreikningar. Það að lækka alla tolla, þannig að engir tollar yrðu hærri en 30%, og afnema vörugjaldið mundi að vísu kosta ríkissjóð, segja þeir, brúttó 2 milljarða, um það bil, en bætir kjör fólks, raunverulega bætir kjör fólks, um ca. 3%. Ríkið borgar nú sjálft um þriðjung af þessum gjöldum því að það verður að borga af öllu því sem það sjálft notar. Það verður alveg áreiðanlega einhver von til þess að vinnufriður héldist á næsta ári ef þetta yrði gert og þess vegna skora ég nú á hæstv. fjmrh. að beita sér fyrir því að svo fari. Ég veit að hann hefur viljað þetta, og hann hefur hjálpað okkur við alla þessa vinnu, haft um hana forgöngu að ýmsu leyti. Honum hefur ekki tekist það eða ekki gert það allavega. Ég lýk orðum mínum með því að segja við hæstv. ríkisstj. að hún framfylgi nú þessu loforði sínu og fari strax eftir jólaleyfi að vinna að því.