12.12.1984
Efri deild: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1860 í B-deild Alþingistíðinda. (1324)

150. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. n. fyrir hennar störf að þessu máli. Hér er vissulega um vandasamt mál að ræða og sýnist sitt hverjum í þeim efnum. Ég hef oft sagt það áður að ég tel rangt að segja að eitt sé rétt og annað rangt í þessum efnum. Við verðum fyrst og fremst að viðurkenna að íslenskur sjávarútvegur á við mikla erfiðleika að etja. Við eigum engan annan kost en að reyna að komast út úr þeim erfiðleikum og nýta alla þá möguleika sem við sjáum til þess að svo megi verða.

En ástæðan fyrir því að ég kvaddi mér hér hljóðs var fyrst og fremst sú að hv. þm. Karl Steinar Guðnason lýsti áhyggjum sínum vegna sölu skipa frá hans kjördæmi. Það er að sjálfsögðu eðlilegt að menn hafi áhyggjur af slíku og þannig hefur það alltaf verið, að ef skip eru seld flyst með þeim afli. Ég get hins vegar sagt að ég er í prinsippinu andvígur því að ákveðinn afli fylgi skipi. Það er nú e.t.v. ein aðalástæðan fyrir því að ég taldi rétt að lög þessi giltu til lengri tíma en eins árs að það væri mögulegt að marka stefnu til lengri tíma. Það er svo að þegar skip er selt á árinu er erfitt að breyta þar um, en hins vegar, ef löggjöfin væri til lengri tíma, væri hægt að ákveða og segja fyrir fram um hvað mundi bíða slíks skips á næsta ári, t.d. ef það væri selt yrði það að hlíta sóknarmarki. Það er mjög óþægilegt að geta ekkert sagt fyrir um hvað muni verða árið eftir, t.d. spyrja margir um hvort ekki sé heimilt að flytja afla á milli ára, sem væri að mörgu leyti skynsamlegt. Þá mundi minna verða veitt og minni áhugi varðandi framsal á afla milli skipa. Það er hins vegar ekki hægt þegar lög gilda aðeins til eins árs. Það eru gerðar samþykktir um þessi efni sitt á hvað. Maður les samþykkt frá mörgum aðilum um að þessu verði að breyta, en hins vegar sé ekki rétt að slík lög gildi nema til eins árs. Ég get ofur vel skilið að menn vilji vera varkárir í þessum efnum, en það verður að sjálfsögðu ekki bæði sleppt og haldið.

Ég vænti þess að þetta lýsi ... (Gripið fram í.) Ef ætti að vera meiri afli eftir á Suðurnesjum yrði að vera mögulegt að úthluta slíku aflamagni til viðkomandi fiskvinnslustöðvar. Þessi skip eru farin og aðalgrundvallaratriði laganna og þeirra reglna sem í gildi hafa verið er að afla skuli úthlutað til skipanna. Það hefur oft verið um það rætt að rétt sé að fara aðra leið, þ.e. að úthluta aflanum til vinnslustöðvanna líkt og er t.d. gert í Kanada. Þar eru tiltölulega fá fiskvinnslufyrirtæki sem hafa nánast allan aflann. Um þetta er deilt. T.d. hafa útvegsmenn og sjómenn lagst mjög ákveðið gegn því og þetta hefur verið rætt bæði hér á Alþingi og í ráðgjafarnefndinni. Niðurstaðan er því sú að aflanum er úthlutað til skipanna. Meðan svo er hlýtur það að verða niðurstaðan að slíkt er ekki mögulegt.

Ég hafði einnig viðrað það við aðila og flutt um það till. að mögulegt væri, ef sérstaklega stæði á, að úthluta aflamagni til vinnslustöðva. Það hefur að vísu verið gert að því er varðar sjóskaða og það er fyrst og fremst atriði er varðar lengri tíma. Það hefur hins vegar ekki verið talið fært að veita slíka heimild sem að sjálfsögðu yrði vandmeðfarin og yrði að fara varlega með, en að upp gæti komið slíkt mál að það væri nauðsynlegt á meðan við því er algert bann að flytja inn ný skip eða byggja ný skip. Ef slíkt ætti að vera mögulegt yrði að flytja um það sérstakt frv. og samþykkja sérstök lög og ég vil alls ekki fortaka það að til slíks gæti komið, en vil taka það skýrt fram að það frv. sem hér um ræðir, eins og það er komið frá hv. n., leyfir ekki slíkt. Niðurstaða mín og svar til hv. þm. hlýtur því að vera það, að ef skip eru seld í burtu af svæðinu geta önnur skip á svæðinu ekki fengið það aflamark sem viðkomandi skip hafa haft áður.