17.10.1984
Efri deild: 4. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í B-deild Alþingistíðinda. (135)

57. mál, almannatryggingar

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Þar sem ég á ekki sæti í þeirri hv. nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar vil ég koma hér í ræðustól og lýsa eindregnum stuðningi mínum við þetta frv. Einhver kann að kalla þetta lítið mál en ekki vil ég meina að svo sé. Réttindaleysi húsmæðra þeirra sem heimavinnandi eru blasir alls staðar við. Við getum litið til lífeyrissjóðsmála, tryggingamála, fæðingarorlofsmála og starfsreynslumála svo að eitthvað sé nefnt.

Þetta frv. tekur það skref í réttlætisátt að viðurkenna að veikindi húsmæðra skuli virt rétt eins og veikindi annarra og metin á sambærilegan hátt til dagpeninga. Þótt ýmsir vankantar séu á því hvernig sjúkradagpeningar eru metnir er hér tvímælalaust um að ræða skref í réttlætisátt í þessum málum. Ég treysti því að hv. nefnd athugi vendilega bæði mat á sjúkradagpeningum annars vegar og hins vegar það sem hv. flm. kom inn á, hvernig greiðslu fyrir heimilisaðstoð er háttað í því tilfelli.