12.12.1984
Neðri deild: 23. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1875 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)

153. mál, heilbrigðisþjónusta

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil minna á að þegar frv. um heilbrigðisþjónustu kom til umr. á Alþingi 1973 náðist mjög víðtæk samstaða á milli allra flokka um afgreiðslu þess máls þó að menn greindi á um ákveðnar greinar frv. Þessi lög tóku svo gildi 1. jan. 1974. Það kom vitaskuld fljótt í ljós að ýmsir annmarkar voru á lögunum, enda er enginn maður svo fullkominn að geta sett jafnviðamikla löggjöf sem ekki þyrfti að endurskoða að fenginni nokkurri reynslu. Síðan hafa lögin verið endurskoðuð tvisvar sinnum, verið lagaðir þeir annmarkar sem hafa verið í sambandi við framkvæmd laganna og nýleg endurskoðun var einnig framkvæmd, en þrátt fyrir það koma ýmsir gallar í ljós.

Til að fyrirbyggja misskilning hv. 3. landsk. þm., sem virtist alveg hissa á því að það væri ekki búið að byggja og taka í rekstur allar heilsugæslustöðvar, gerðu fyrstu lögin ráð fyrir því að uppbygging á hinu nýja heilsugæslukerfi hefði forgang úti á landsbyggðinni og sérstaklega á þeim stöðum þar sem engar slíkar stofnanir voru fyrir og höfðu aldrei verið til. Alþingi markar svo sína fjármálastefnu frá ári til árs með fjárframlögum. Þannig hefur verið byggð upp heilsugæslan úti á landi og einnig hér á höfuðborgarsvæðinu, en þó með miklu takmarkaðri hætti. Það eru því fjárframlögin sem hafa ráðið ferðinni. Löggjöfin í heild gerði auðvitað ráð fyrir þeirri uppbyggingu á nokkuð löngum tíma. Það gekk enginn þm. þess dulinn að þetta mundi taka mörg ár. Uppbyggingu heilsugæslustarfseminnar úti á landi er ekki lokið þó að hún sé komin langt á veg. Hér hafa og verið byggðar, eins og menn vita, heilsugæslustöðvar, bæði í Reykjavík og nágrenni.

Það sem kemur upp er að það hafa verið að rísa upp svokallaðar læknamiðstöðvar og þá þarf að finna einhver skil á milli heilsugæslustöðvanna og þessara stöðva, fyrir utan innlagningastofnananna allra, því að það er í raun og veru einn og sami aðilinn sem greiðir þetta allt þó að það sé annaðhvort greitt beint af fjárlögum eða í gegnum sjúkratryggingakerfið, sjúkrasamlög og sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins. Spurningin er: Eigum við að byggja alfarið upp heilsugæslukerfi á öllu höfuðborgarsvæðinu eða þurfum við að taka eitthvert mið af annarri uppbyggingu, þannig að stofnanir séu ekki reknar hlið við hlið og ekkert skipulag á milli, þannig að hér í margmenninu geti fólk valið um stofnanir á sama tíma og heilsugæslukerfið er einrátt víðast hvar á landsbyggðinni? Ég tel að reynslan af heilsugæslustofnununum í landinu hafi verið góð. Það eru auðvitað alltaf til einhverjir annmarkar, sem upp hafa komið, en þegar á heildina er litið er ég ánægður með þá uppbyggingu. En það má margt færa til betri vegar og það verður auðvitað alltaf að vera í endurskoðun því að eins og ég sagði áðan er enginn hlutur fullkominn.

Það sem að mér snýr í þessu efni er að ég vil ekki hafa þessa skýru, afdráttarlausu breytingu núna um áramót, þegar óvissa ríkir og samstaða er ekki til. Og ég tel, með allri virðingu fyrir till. sem hér er flutt, útilokað að hafa þennan frest til 1. maí. Það er útilokað af tæknilegum ástæðum, af fjármálalegum ástæðum og yfirleitt að koma því á á þessum tíma. Breyting á þessu kerfi verður að fara fram um áramót. Ef nefndin skilar áliti og ef samkomulag næst um þessar breytingar er engin ástæða til að vefengja eða draga í efa að hin nýja breyting geti tekið gildi um næstu áramót.

Þetta er ekki allt saman fjárhagslegs eðlis. Hérna er líka um hluti að ræða sem þarf að huga betur að. Það var eftirtektarvert sjónarmið allra þeirra manna sem komu á þennan fund í heilbrmrn. í vor. Þar drógu þeir auðvitað fram og höfðu áhyggjur af þeim mikla kostnaði sem kemur á bæjarfélögin því að rekstur heilsugæslustöðvanna hvílir á læknishéruðunum og þar þarf auðvitað að mörgu að hyggja.

Það má segja að gjarnan hefði þessi athugun mátt vera enn fyrr á ferðinni og ég var svo bjartsýnn að ég trúði því að nefndin mundi geta lokið sínum störfum á haustdögum. En ég segi það alveg eins og er að annað er útilokað en að þetta frv. fari í gegnum hv. Alþingi. Ég ætla þó ekki að hafa neina fyrirfram skoðun á þessu efni. Þm. hafa heyrt skoðun mína á heilsugæslukerfinu úti um land. Þeir mega gjarnan líka heyra þá skoðun að ég hef talið að sú starfsemi sem á sér stað í heilsugæslustöðvum í höfuðborginni og næsta nágrenni hennar hafi reynst að mörgu leyti vel. En við megum ekki búa þannig út tvöfalt kerfi sem samfélagið á að standa undir. Þarna verða að vera skynsamleg skil og góð þjónusta við það fólk sem til þessara stöðva þarf að leita. Ég áskil mér því allan rétt að mynda mér skoðun uns nefndin hefur lagt fram sínar tillögur og sjá þá hvað þar hefur verið lagt fram og hvað hægt er að ná sæmilegu samkomulagi um án þess að stíga skref til baka í heilbrigðisþjónustu, heldur stíga skref fram á veginn.