12.12.1984
Neðri deild: 24. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1883 í B-deild Alþingistíðinda. (1374)

191. mál, almannatryggingar

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. er fylgifrv. með fjárlagafrv. fyrir 1985 og gerir ráð fyrir því að á því ári verði lagt á sjúkratryggingagjald með sama hætti og gert var á grundvelli laga nr. 80/1983 og lagt var á á þessu ári. Álagt sjúkratryggingagjald á árinu 1984 nemur 142 millj. kr. og er áætlað að af þessari fjárhæð innheimtist 125 millj. Ætla má að álagning sjúkratryggingagjalds skv. þessu frv. nemi 170 millj. kr. og innheimt fjárhæð þess verði nálægt 150 millj. Samkvæmt þessu frv. er gengið út frá að skattbyrði vegna sjúkratryggingagjalds verði óbreytt hlutfall af tekjum gjaldenda á greiðsluári milli áranna 1984 og 1985.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.