12.12.1984
Neðri deild: 24. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1891 í B-deild Alþingistíðinda. (1390)
155. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessar umr. mikið. En þegar fyrra frv. var samþykkt hér, sem hæstv. ráðh. talaði um, þá neyddist ég til að vera á móti því vegna þess að að mínu viti er hér rofin sú meginhugsun, sem er í allri skattalöggjöfinni, að gjaldþol manna skuli ráða skattgreiðslum. Nú skal ég ekki endurtaka þá umr. alla en leyfi mér að vísa í þingtíðindi þeirra tíma. En það eru ákveðin atriði sem ég ekki skil og ég hlýt að spyrja hæstv. ráðh. um.
Nú er það til að menn haldi launum sínum þó að þeir hætti að vinna sakir aldurs. Þeir hafa samt sem áður leyfi til að greiða ekki skatta af tekjum s.l. tólf starfsmánaða. Skil ég það þá svo, að þeir hefji síðan aftur skattgreiðslur og greiði síðan skatta ævinlega eftir það? Sannleikurinn er sá, eins og ég minntist á í þeirri umr. sem áður fór fram um svipað efni, að það er til að fólk hafi beinlínis hærri tekjur þegar það hættir að vinna og er farið að taka ellilífeyri og ég get nefnt mýmörg dæmi þess. Láglaunakonur í verksmiðjum landsins hækka í launum þegar þær taka lífeyri og þann litla lífeyrissjóð sem þær eiga rétt á. Að ég ekki tali um hæstlaunaða fólkið í landinu. Við skulum taka dæmi eins og ég tók þá, hæstaréttardómara. Hvers vegna í ósköpunum skyldu þeir vera skattlausir í eitt ár? Mér er þetta aldeilis hulin ráðgáta. Ég vil þess vegna spyrja hæstv. ráðh. — og nú skal ég ekki þreyta örþreytta ráðh. vora sem hér hafa setið í allan dag-en ég hlýt að biðja um svar við þessu. Koma þessir menn aftur til með að greiða skatta eða hafa þeir bara ársfrí frá sköttum?
Ég held að þessi löggjöf sé ofurlítið vanhugsuð. Af langri reynslu minni skal það sagt skattstofum landsins til hróss, einkum og sér í lagi fyrrv. skattstjóranum í Reykjavík, Halldóri Sigfússyni, að hann brást ævinlega mjög vel og fljótt við umsóknum þeirra hundraða ellilífeyrisþega sem hættu störfum á miðju ári, og sótt var um fyrir niðurfellingu á sköttum. Ég sé því ekki vandamálið. Þetta hefur verið gert fyrir launafólk sem ekki réði við þessa skatta. En mergurinn málsins er þessi: Er óeðlilegt að gjaldþol manna ráði skattgreiðslu? Á því hefur skattalöggjöfin í landinu byggst. En hér er farið fram hjá henni. Og þessu vil ég fá svar við.