13.12.1984
Sameinað þing: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1954 í B-deild Alþingistíðinda. (1407)
1. mál, fjárlög 1985
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Fulltrúi þingflokks BJ í fjvn., hv. þm. Kolbrún Jónsdóttir, hefur þegar gert grein fyrir brtt. sem við flytjum á þskj. 299. Ég mun því ekki fara um þær orðum sérstaklega, heldur langaði mig að víkja frekar að ákveðnum þáttum og því sem við getum kallað ákveðnum stefnum í sambandi við ríkisfjármálin.
Það sem er nokkuð fróðlegt að spyrja um fyrst, þegar maður hefur í höndum niðurstöður nokkurra mánaða vinnu í fjvn., er hvar pólitíkin sé í þessu. Er einhvers staðar í þessu vegvísir sem getur vísað okkur á svar við þeirri spurningu hvers konar þjóðfélag, hvers konar stefna í atvinnuháttum, hvers konar þróun eigi að verða hérna á næstu árum eða jafnvel til aldamóta? Eru einhvers staðar einhverjar ákveðnar línur lagðar í fjárlagafrv.? Er einhver ákveðin stefna mótuð? Því miður virðist mér í þetta sinn, eins og reyndar oft áður, að svo sé ekki. Það sem gerist er að ofan úr rn. koma fjárlög samin af embættismönnum rn. og eru að talsverðu leyti og af ýmsum eðlilegum ástæðum framlenging frá ári til árs með tiltölulega litlum breytingum. Það er þegar orðið svo að ríkisfjármál eru mjög bundin. Það eru í lögum ákvæði um framlög og það eru í lögum ákvæði um ýmiss konar varðveislu, um það hvernig fé er varið, og það olnbogarými sem Alþingi hefur í þessum efnum er þess vegna mjög takmarkað. Við sjáum raunar niðurstöðuna í tölum eftir nokkurra mánaða vinnu hv. fjvn. Það sem hefur breyst er að útgjöld hafa hækkað um 231 millj. Það er á að giska eitt prósent af niðurstöðutölum fjárlaga. Það er nú allt sem hefur gerst eftir alla þessa vinnu, eftir allt það sem menn hafa rætt og eftir allt það sem menn hafa ritað. Eftir allar þær spár og allar þær tilraunir til breytinga er niðurstaðan sú að útgjaldaliðir hafa breyst um 1%. Þetta er olnbogarýmið sem Alþingi hefur í þessum efnum. Það er afar lítið. Það er kannske ekki nema eðlilegt að menn sjái ekki stórar breytingar þegar svo er komið.
Við teljum hjá BJ að það hefði þurft að breyta verulega miklu. Það hefði þurft að sýna okkur og þjóðinni að ríkisstj. ætlaði sér eitthvað, hefði eitthvert markmið, sæi fyrir sér einhvers konar þjóðfélag sem hún ætlaði að stefna að. Við héldum þessu fram við umr. um fjárlög á síðasta ári líka og fluttum þá talsverðan fjölda brtt., ef ég man rétt milli 30 og 40, þar sem við reyndum að láta koma fram þær hugmyndir sem við höfðum í þessum efnum. Það vita allir að brtt.flutningur við fjárlög er ekki líklegur til stórárangurs vegna þess að þegar fjvn. í öllu sínu veldi hefur ekki nema 1% olnbogarými er olnbogarýmið, sem einstakir þm. og þingflokkar í stjórnarandstöðu hafa, verulega mikið minna.
Við fórum að þessu sinni svolítið aðra leið, eins og hv. þm. Kolbrún Jónsdóttir hefur gert grein fyrir. Við fluttum fáar brtt., en á vissan hátt stefnumarkandi fyrir það sem við teljum að þurfi að gera. Til að taka dæmi nefni ég till. nr. 3 og 5 á þskj. 299. Þær fjalla um að auka sértekjur Búnaðarfélags Íslands og Ríkismats sjávarafurða. Þar er á ferðinni sú stefna, sem við teljum að fylgja beri, að atvinnugreinar beri sjálfar þjónustukostnað sinn. Með brtt. nr. 4 viljum við lækka útflutningsbætur, en nýta féð til þess að mæta þeim þjóðfélagsbreytingum sem óumflýjanlega verða á Íslandi hvort sem ríkisstj. vill eða ekki. Við tökum sem dæmi að hægt sé að verja því fé sem úr útflutningsbótunum fæst til máls eins og brtt. 1 og 6 fjalla um, þ.e. símenntun og fiskeldismál. Við teljum að þetta sé pólitík. Við teljum að einmitt eitthvað slíkt sé nauðsynlegt og óumflýjanlegt að gera ef menn vilja vísa eitthvað veginn, ef menn vilja brjótast út úr þeirri þröng sem nú er talin vera.
Um símenntunina er það að segja að lengi hefur verið talað um að símenntun sé óumflýjanlegt verkefni. Hún hefur aldrei verið það meira en nú. Þær breytingar sem verða á hverju ári, næstum í hverjum mánuði í atvinnulífi þjóðarinnar, valda því að fólk verður að standa frammi fyrir því, ekki kannske einu sinni heldur jafnvel oftar á ævinni, að breyta um vinnu, taka upp aðra atvinnu. Slíkt er ekki hægt án þess að til öflugrar símenntunar komi. Þess má raunar sjá ýmis merki um þessar mundir að kominn er þrýstingur á þetta mál. Við sjáum það í því að ýmiss konar sérskólar, einkaskólar, hafa tekið til starfa, t.d. í tölvufræðum. Þar var það einkaframtakið sem gekk á undan, gerði sér grein fyrir þörfinni og hefur leyst þarna að talsverðu leyti úr. Hins vegar hefur íslenska skólakerfið algerlega brugðist. Menn verða að gera sér grein fyrir því að skyldum þess sleppir ekki við eitthvert ákveðið aldursstig, eins og menn hugsuðu e. t. v. áður. Menn vaxa ekki upp úr því að skólakerfið eigi að hugsa til þeirra. Skólakerfið þarf að hugsa til fólks alla ævi þess.
Þetta eru örfá dæmi um það sem ég tel að þurfi að gera í þessum efnum.
Af sama toga, till. um framtíðina, eru brtt. nr. 8 og 9 þar sem lagt er til að afla fé til iðnþróunarsjóða í landshlutum og að ríkissjóður geti ábyrgst áhættulán til nýrra fyrirtækja í iðnaði.
Ég vil að lokum gera að umræðuefni tvö ákveðin afmörkuð mál. Annað þeirra er fiskeldi, sbr. brtt. sem vikið var að hér að framan.
Menn hafa á undanförnum misserum rætt talsvert um fiskeldi. Við höfum séð þar vonir kvikna og sömuleiðis slokkna. Það er alveg ljóst að fiskeldi er álitlegur kostur í okkar þjóðfélagi og okkar atvinnuháttum og einn af þeim sem á að leggja áherslu á í framtíðinni. Hins vegar er mikil nauðsyn á því að ríkisvaldið marki þar ákveðna stefnu.
Í Morgunblaðinu þann 2. nóv. s.l. er ágætisgrein þar sem er viðtal við Úlfar Antonsson líffræðing sem vinnur hjá Rannsóknaráði ríkisins og hefur talsvert kynnt sér fiskeldismál. Úlfar bendir á í greinargóðu og mjög athyglisverðu viðtali að það séu ákveðin verkefni sem óumflýjanleg.t sé að sinna í sambandi við fiskeldismál.
Í fyrsta lagi telur Úlfar að það þurfi að skapa lagaramma fyrir fiskeldi, þannig að því sé fundinn staður í íslensku stjórnkerfi og tilteknir séu þeir sem þar eigi að hafa stefnumarkandi áhrif. Menn spyrja: Er fiskeldi landbúnaður eða er fiskeldi sjávarútvegur? Hvar á að finna þessu stað?
Í öðru lagi telur Úlfar að nauðsynlegt sé að efla sjóð sem veiti fyrirgreiðslu til eldis, þannig að tryggðar séu fjárfestingar og rekstrarlán. Þetta hefur verið gert erlendis og gefið góða raun.
Í þriðja lagi nefnir Úlfar að nauðsynlegt sé að efla til muna allt rannsókna- og þróunarstarf varðandi fiskeldi vegna þess að ef við höfum ekki hæft fólk til að sinna þessum málum endast bernskubrekin okkur fram á gamals aldur. Við þekkjum þetta úr öðrum greinum sem við höfum lagt út í, t.d. í sambandi við skinnaiðnað. Nú eru líklega á milli 10 og 15 ár síðan menn hófu að rækta minka á Íslandi og það hafa sagt mér kunnugir menn að það sé kannske fyrst núna sem menn séu orðnir færir um að stunda minkarækt af þeirri þekkingu og af þeirri reynslu sem ekki verður bara lesin af bókum, heldur verður aflað eftir bóklesturinn með því að vinna við greinina. Rannsókna- og þróunarstarf í fiskeldi er nauðsynlegt verkefni og við höfum þess vegna lagt til að talsverðum fjármunum, sem veitt er til að viðhalda gömlu atvinnuháttunum í landbúnaði, verði varið í það að finna nýjum leiðum grundvöll.
Að síðustu ætla ég að gera að umtalsefni annað verkefni sem ég tel að menn eigi að sinna hérna í atvinnuháttum, en það er líftækni. Mér er kunnugt um að umsókn liggur hjá fjvn. um styrk til verkefnis í íslenskri líftækni. Það er styrkur að upphæð 16.4 millj. Mönnum þykir þetta kannske nokkuð há upphæð, en til gamans vil ég láta það koma fram að aukafjárveitingar til iðnrn. vegna samninga við Alusuisse á þessu ári nema 20 millj. Þarna er verið að fara fram á lægri upphæð en aukafjárveitingum til iðnrn., í einn afmarkaðan lið þar, nemur.
Mig langar að gera örstutta grein fyrir skoðunum mínum í sambandi við þetta líftækniverkefni. Um líftækni hafa verið talsverðar umræður á Íslandi á síðustu misserum og hefur sitt sýnst hverjum. Það er ekki umdeilt að líftækni mun verða mjög umsvifamikil atvinnugrein í framtíðinni í heiminum öllum. Það er löngu orðið tímabært að við byrjum að feta okkur áfram í því sem þarf að vinna þar. Það gerist ekki öðruvísi en að við verjum til þess fjármunum og að við mörkum stefnu í þeim efnum.
Í umsókninni sem hefur verið lögð fyrir fjvn. er gerð grein fyrir ákveðnum verkefnum. Annað þeirra er vinnsla ensíma úr íslenskum fiskúrgangi. Nú vill svo til að ég hef undir höndum grein sem birtist nýlega í kanadísku vísindatímariti um lífefnafræði og frumulíffræði. Hún birtist í sept. s.l. Þar eru kanadískir vísindamenn við háskólann á Nýfundnalandi að skýra frá því að þeim hafi tekist að einangra ensím úr innyflum þorska, raunar ensín svipaðs eðlis og okkar vísindamenn hafa verið að leita að á undanförnum árum. Hvað segir þetta okkur? Þetta segir okkur í fyrsta lagi að okkar menn hafa verið á réttu róli í þessum efnum. Þeir eru greinilega að vinna að verkefnum sem þykja annars staðar athyglisverð. Það vill oft bera við að við höfum vantrú á okkar eigin fólki, viljum sækja hlutina til útlanda. Hérna höfum við dæmi um að okkar menn eru með fingurinn á púlsinum, ef svo má að orði komast. Menn kunna að spyrja: Þýðir nokkuð fyrir okkur Íslendinga að vera að sinna þessum verkefnum? Eru ekki aðrir menn í útlöndum til þess miklu betur búnir? Þá er því til að svara, eins og reyndar kemur fram í skýrslu um samstarfsverkefni í líftækni sem ég vitnaði til áðan, að við höslum okkur völl sjálf vegna þess að við getum aldrei, ef við ekki eigum fólk, sem hefur innlenda reynslu á þessum sviðum, tekið við þeirri kunnáttu, þeirri þekkingu sem verður til erlendis. Við verðum þá sífellt þiggjandi og upp á aðra komin varðandi það hvernig úr þessum upplýsingum er unnið.
Það er augljóst að bara t.d. á þessu fiskensímasviði einu eru gífurlegir möguleikar. Það er ljóst af greinum. Sú sem ég vitnaði til er bara ein af mörgum. Það er verið að vinna að þessum efnum víða í kringum okkur. Þetta er eitt af stóru tækifærunum í þessari grein. Við eigum fólk sem getur unnið að þessu og það er beinlínis skylda okkar að styðja við bakið á því, þó að það fengi ekki nema brot af því sem við höfum varið til þess að endasendast um heiminn og reyna að semja við útlendinga um stóriðju sem ég tel að muni ekki ein og sér leysa vandamál okkar Íslendinga í atvinnumálum í framtíðinni.