17.10.1984
Efri deild: 4. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
61. mál, átak í dagvistunarmálum
Árni Johnsen:
Virðulegi forseti. Því verður ekki á móti mælt að í dagvistarmálum barna þarf að vinna skipulega og e.t.v. skipulegar en gert hefur verið. En þegar lagt er fram frv. á þeim nótum sem hér er, að lögbinda eigi ákveðna upphæð af fjárlögum, þá er ástæða til að skoða slíkt. Á hinn bóginn, þegar gengið er fram hjá þeim meginpósti sem þetta frv. byggir á, þ.e. upphæðinni, prósentuupphæðinni, og kannað hvað segir í grg. með frv., þá eru þar hrópandi andstæður sem undirstrika það, sem síðasti ræðumaður sagði, að ekki er skynsamlegt að marka slíkt mál með ákveðinni prósentu.
Í fyrsta lagi er ekki vitað um þörfina fyrir dagvistunarheimili í landinu í dag. Það er ekki vitað um raunverulega þörf og er mjög vandasamt að gera slíka úttekt. Hún liggur ekki fyrir. Það er vissulega um þörf að ræða, en það er einnig um gerviþörf að ræða. Sú 10 ára áætlun sem hv. flm. setur á loft lýsir ekki þessu máli samkvæmt raunveruleikanum að mínu mati.
Það er ljóst að það er mjög mismunandi ástæða til dagvistunar í.hinum ýmsu plássum landsins og mest er hún vissulega á höfuðborgarsvæðinu, en á hinn bóginn er ekki heldur nægilega tryggt að farið sé að ákveðnum reglum í byggingu slíkra mannvirkja. Ég get nefnt dæmi um leikskóla á Sauðárkróki, nýjan leikskóla sem heitir Furukot. Þar eru 80 börn á dag, tvískipt, fimm starfsmenn. Það er mjög vistlegt og heimilislegt hús, einingahús sem kostaði liðlega 2 millj. kr. og er 250 fermetrar að stærð sem þýðir að það gætu verið þar fleiri börn ef starfsmönnum væri fjölgað. Nú annar þetta hús eftirspurn á Sauðárkróki. Það er einmitt þannig sem þessum málum á að vera farið, að hægt sé að sinna því sem þarf.
Ef þetta hús hefði verið byggt á sama hátt og hægt er að sjá víða um land, og þó kannske sérstaklega hér á Reykjavíkursvæðinu, þá hefði það kostað liðlega 100% meira í byggingu ef farið væri að staðli, sem miðað er við og flm. hefur hér getið um, miðað við byggingarvísitölu. Þetta þýðir að ef það hefði átt að leggja fram 147 millj. kr., 0.8% af fjárlögum, á þessu ári, og byggt væri samkvæmt þeim stöðlum sem reiknað er með, þá væri hægt að komast af með helmingi lægri upphæð eða meira en það miðað við að byggt væri skynsamlega. Þess vegna stenst ekki að binda þessa hugmynd prósentutölu.
Markmiðið hlýtur að vera að byggja upp aðstöðu fyrir fjölskylduna í landinu. Dagvistarkerfið er einn þáttur í því. En það er álitamál hvað það á að vera ríkjandi þáttur og hvað það er aðkallandi þáttur þegar á heildina er litið. Ég undirstrika að í ákveðnum hluta er þörfin brýn. Markmiðið getur ekki verið að það eigi að byggja upp færibandakerfi fyrir börn, stofnanakerfi, og skapa þannig óraunverulegt samfélag fyrir börnin. Það hlýtur að vera eðlilegt að það sé ákveðinn sveigjanleiki í þeim efnum sem öðrum þar sem um fólk er að ræða. Þetta hefst ekki í byggingu nema með aukinni hagsæld, festu í efnahagsmálum. Þannig er hægt að skapa eðlilegar aðstæður fyrir börnin. En hætta er á að prósentuuppbygging í þessu efni, eins og flm. setur fram, leiði til óþarflegrar miðstýringar á uppeldi barna.
Það er mikill munur að sinna brýnni þörf eða að splæsa í allar áttir í slíkum framkvæmdum. Það tel ég að frv. hv. þm. geri. Það er ekki byggt á rökum. Það er sagt í grg. að 80% af mæðrum í landinu séu útivinnandi, en 90% af feðrum eða konum og körlum, eins og það er orðað. Þetta segir ekki alla söguna og þýðir ekki að fólk sinni ekki á eðlilegan hátt sínum börnum og fjölskylduskyldum í þeim efnum.
Það var minnst á seðlabankabyggingu af síðasta ræðumanni. Það gæti verið skynsamlegt að standa að flutningi frv. um að gera seðlabankabygginguna að dagheimili, en það kann ekki góðri lukku að stýra að leggja fram frv. eins og hér hefur verið gert. Það er að vísu ekki nýtt að þm. leggi fram frv. sem binda ótrúlega stóran hluta af fjárlögum ríkisins í ákveðnar framkvæmdir og miðstýra þannig fjármagninu án þess að nokkuð svigrúm sé til magurra eða góðra ára. Það hefði verið skynsamlegra að gera þetta með því móti að hægt væri að taka á málunum af skynsemi. Ég tel að á þessum grundvelli sé þetta frv., því miður, út í hött og lögð sé áhersla á rangan punkt í máli sem vissulega hefur þungamiðju.