13.12.1984
Sameinað þing: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (1413)

1. mál, fjárlög 1985

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég skal reyna að vera ekki alveg jafnlangorður og ég var hér í dag þó að ástæða væri til að segja margt um ýmislegt það sem hér hefur komið fram. Tilefni þess að ég stend hér upp aftur er sérstaklega eitt atriði í máli hæstv. fjmrh. í ræðu hans áðan. Hann skýrði þar réttilega frá því, það er rétt að taka það fram, að ekki væru felld niður nein framlög til aðila vinnumarkaðarins sem væru lögboðin. Það er út af fyrir sig rétt. Hitt veit hæstv. fjmrh. jafnvel og raunar betur, hygg ég, en ég, að ótalmargar fjárveitingar sem eru í fjárlagafrv. og síðan fjárlögum eru ekki til komnar vegna lagaákvæða þar um.

Ég vakti á því athygli hér í dag að ýmsar nokkuð stórar upphæðir, a.m.k. að mati verkalýðshreyfingarinnar, sem verið hefðu á fjárlögum undanfarinna ára væru nú felldar niður. Og ég greindi frá því að það væri álit verkalýðshreyfingarinnar að hér væri um að ræða hluta af samkomulagi í samningum, þ.e. að verkafólk gaf eftir af sínu kaupi til þess að fá þessar fjárveitingar inn til margháttaðrar uppbyggingar. Ég held að menn megi ekki gleyma því. Og ég hélt satt að segja að núverandi hæstv. ríkisstj. þyrfti á flestu öðru að halda en að skera nánast við trog þessar fjárlagafjárveitingar til ýmissa þátta í uppbyggingu hjá verkalýðshreyfingunni. Það væri ekki á bætandi af hálfu ríkisstj. að halda þannig á málum, umfram það sem komið er, að egna til frekari átaka og óvildar af hálfu verkalýðshreyfingarinnar í garð hæstv. ríkisstj. Nóg hefur hæstv. ríkisstj. gert af slíku og ekki á bætandi.

Ég minnti líka á það í dag að á sama tíma og þetta væri gert, að skera niður við trog allar þessar fjárveitingar, þá væri verið að bæta við fjárútlátum af hálfu ríkisvaldsins til bænda, sem ég á engan hátt átel en eru tilkomin með svipuðum hætti. Þar á ég við afleysingarþjónustu í sveitum, en nú er verið að bæta við 9 stöðugildum umfram þau 51 sem fyrir hafa verið. (EgJ: Búið að svíkja það í fimm ár.) Má vera að það sé rétt sem hv. þm. Egill Jónsson segir, en trúlega hefur hann þá sjálfur staðið að svikunum því að ég veit ekki betur en hann hafi verið stuðningsmaður núverandi ríkisstj. síðan hún kom til valda. En það breytir ekki málinu. sé það rétt að þetta hafi verið svikið í fimm ár, þá er hér með þessari ákvörðun hæstv. ríkisstj., ef hún á að halda, um að skera þessar fjárveitingar gjörsamlega niður, verið að svíkja gefin fyrirheit fyrri stjórnvalda nátengd lausn kjarasamninga á sínum tíma. Og ég vil ekki trúa því fyrr en ég tek á að hæstv. núverandi ríkisstj. ætli að ganga enn frekar fram í þeim efnum að egna til óvildar hjá launafólki í garð hæstv. ríkisstj. Ég hygg að hæstv. ríkisstj. sé búin að gera nóg í þeim efnum þó ekki verði þar á bætt. Og hvað sem öllum lagabókstaf líður hef ég a.m.k. yfirleitt viljað líta svo á þó að ekki væri um skriflegt samkomulag að ræða, að munnlegt samkomulag ætti að standa ekkert síður en hið skriflega.

Verði ekki við það staðið að fjárveitingar verði til þeirra þátta sem ég rifjaði hér upp í dag og snúa að aðilum vinnumarkaðarins, þá er að mínu viti um hrein svik ríkisvaldsins að ræða á því samkomulagi sem gert var á sínum tíma og þetta ákvæði innifól.

Ég hef ekki ástæðu til að ætla að hæstv. fjmrh. gangi í broddi fylkingar þeirra sem vilja svíkja það samkomulag. Ég hef reynt hann að öllu öðru en slíku. Það er ekki vandi hans, a.m.k. í þeim viðskiptum sem ég hef átt við hann, að ganga á bak orða sinna. Ég hygg að hann vilji standa við það sem fyrirrennarar hans hafa gert samkomulag um, hversu vel eða illa sem honum fellur slíkt samkomulag. En orð skulu standa, og ég veit að hæstv. fjmrh. vill að slíkt gerist. Ég treysti á það og vil trúa því að hæstv. ráðh., formaður fjvn. og stjórnarliðið allt í fjvn., það þarf ekki að brýna minni hlutann, sjái svo til að við þennan þátt verði staðið. Þessu er að sjálfsögðu hægt að breyta síðar, ef menn komast að þeirri niðurstöðu t.d. í samningum við launþegahreyfinguna og aðila vinnumarkaðarins að skynsamlegra sé að halda á þessum málum með einhverjum öðrum hætti, en meðan þetta samkomulag er í gildi þá á við þetta að standa, og ég vil trúa því og treysta að svo verði gert.

Varðandi það síðasta sem hæstv. fjmrh. vék hér að, K-bygginguna, og fyrirheit hans um að hann mundi beita sér fyrir því að það fé, sem ekki hefði verið notað en verið hefði á fjárlögum undanfarinna ára til K-byggingarinnar, yrði geymt fé, þá hef ég ekki aðrar upplýsingar en þær frá fjárlaga- og hagsýslustofnun að geymdar séu fjárveitingar að upphæð 11.6 millj. kr. sem veittar hafa verið til K-byggingar. Þær hafi ekki verið skornar, þær séu geymdar. Ég hygg því að það sé alveg á hreinu að til eru fjárveitingar upp á 11.6 millj. kr. sem ráðstafa má til framkvæmda við K-byggingu.

Ég sagði áðan að ég skyldi ekki verða eins langorður og ég var í dag. Ég þarf raunar ekki fleiru við þetta að bæta, en ég vil eindregið beina þeim tilmælum til hæstv. fjmrh. að hann endurskoði þá afstöðu, ef hann hefur hana, að skera niður þessar fjárveitingar til aðila vinnumarkaðarins. Ég óska í því sem öðru hæstv. fjmrh. heilla. Það er ástæða til þess að gera a.m.k. tilraun til þess að bæta samkomulag og sambúð verkalýðssamtakanna og aðila vinnumarkaðarins við ríkisvaldið, miklu frekar en fara enn frekar þá troðnu slóð að taka upp frekari slag við þessa aðila en þegar hefur verið gert. Ég vil trúa því að með hjálp góðra manna takist að fá þessari ákvörðun, ef um endanlega ákvörðun hefur verið að ræða, breytt þannig að þessir aðilar fái þennan hluta sem er samningsbundinn þó að það hafi ekki verið undirskrifað formlega.